Fréttablaðið - 29.10.2018, Page 38
Merkisatburðir
1665 Portúgalskir hermenn
hálshöggva Anton fyrsta
Kongókonung.
1787 Don Giovanni, ópera
Mozarts, er frumsýnd í Prag.
1863 Fulltrúar átján ríkja
koma saman í Genf og
stofna Alþjóðaráð Rauða
krossins.
1888 Níu ríki undirrita
sáttmála í Konstantínópel
um siglingar í gegnum
Súesskurðinn.
1901 Leon Czolgosz, sem
myrti William McKinley
Bandaríkjaforseta, er tekinn
af lífi.
1914 Ottómanveldið hefur
þátttöku í fyrri heimsstyrj-
öldinni.
1919 Fyrsta tölublað Al-
þýðublaðsins kemur út.
1922 Rekstur dvalarheim-
ilis hefst í Grund við Kapla-
skjólsveg í Reykjavík.
1922 Viktor Emmanúel
þriðji Ítalíukonungur gerir
Benito Mussolini að for-
sætisráðherra.
1923 Lýðveldið Tyrkland er
stofnað eftir fall Ottóman-
veldisins.
1925 Einnar og tveggja
krónu peningar eru settir í
umferð.
1929 Svarti þriðjudagurinn
á Wall Street.
1960 Cassius Clay, síðar
Muhammad Ali, vinnur sinn
fyrsta sigur sem atvinnu-
maður í hnefaleikum.
1969 Tölvur tengjast í fyrsta
sinn yfir ARPANET, forvera
veraldarvefsins.
1994 Francisco Martin
Duran skýtur nærri þrjátíu
sinnum að Hvíta húsinu í
Bandaríkjunum.
1998 Fellibylurinn Mitch
gengur á land í Hondúras.
1998 Eldsvoði á nætur-
klúbbi í Gautaborg kostar
63 lífið.
2002 Eldsvoði í verslun í
Ho Chi Minh borg kostar 60
lífið.
2004 Al Jazeera sýnir
myndband í fyrsta sinn þar
sem Osama bin Laden játar
ábyrgð sína á árásunum 11.
september 2001.
2012 Fellibylurinn Sandy
gengur á land í Bandaríkj-
unum.
2015 Kína tilkynnir um lok
einsbarnsstefnunnar.
Ísraelski herinn réðst inn á Sínaískaga í Egyptalandi á þessum
degi árið 1956. Innrásin markaði upphaf Súesdeilunnar.
Átökin áttu eftir að standa yfir í níu daga og náðu Ísraelar að
vinna Sínaískagann af Egyptum. Þeir héldu skaganum fram í
mars. Alls létust 172 ísraelskir hermenn, allt að 3.000 egypskir
hermenn, tíu franskir, sextán breskir og um 1.000 almennir
borgarar í átökunum.
Íslensku dagblöðin greindu frá innrásinni á forsíðu. „Ástand-
ið í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs hefur þótt svo alvar-
legt, að öllum bandarískum þegnum sem þar dveljast var á
sunnudaginn ráðlagt að halda heim nema þeir hefðu knýjandi
ástæður til að vera um kyrrt,“ sagði meðal annars í frétt Þjóð-
viljans. Að auki sagði að mikil hætta væri á því að árásin myndi
marka upphaf nýrrar styrjaldar í Palestínu.
„Til þessara aðgerða hefði verið gripið vegna síendur-
tekinna árása Egypta á samgönguleiðir í Ísrael, í nánd við
landamæri ríkjanna. – Seinustu fréttir frá Ísrael herma svo, að
ísralskar og egypzkar hersveitir hafi lent í bardögum skammt
innan egypzku landamæranna, en heimildarmönnum Reuters
ber ekki saman um hversu langt innan landamæranna,“ sagði
svo í Morgunblaðinu.
Í tímanum sagði að framsóknin væri afar hröð og ekki hefði
frést af neinni mótspyrnu. „Ísraelsmenn segjast gera þetta í
hefndarskyni fyrir árásir Egypta. Árás þessi sé nauðsynleg til
að eyðileggja bækistöðvar egypzkra víkingasveita á Sinaí-skag-
anum.“ – þea
Þ etta g e r ð i st : 2 9 . o któ b e r 1 9 5 6
Súesdeilan hefst með innrás
Ísraela í Egyptaland
Franskir hermenn ganga á land í Egyptalandi. Nordicphotos/AFp
Handsprengja á þingi
Hér má sjá David Ben-Gurion, þáverandi forsætisráðherra Ísraels, særðan á Ziv-sjúkrahúsinu í Jerúsalem eftir að hand-
sprengju var varpað inn á ísraelska þingið á þessum degi árið 1957. Fimm aðrir ráðherrar særðust. Nordicphotos/GEtty
H itabeltislægðin sandy myndaðist á karíbahafi þann 22. október 2012 og átti eftir að slá allnokkur met. tveimur dögum síðar varð
sandy að fyrsta stigs fellibyl og gekk á
land á Jamaíka. Þótt miðja bylsins hafi
ekki gengið yfir eyjuna Hispanjólu
fylgdi storminum um 500 mm úrkoma
á eynni og fórust rúmlega 100 á Haítí í
aurskriðum og flóðum í kjölfarið.
stormurinn hélt síðan í átt að kúbu
sem annars stigs fellibylur og olli
gríðarlegu tjóni. Þaðan fór stormurinn
að bahamaeyjum og upp með austur
strönd bandaríkjanna. sandy átti hins
vegar eftir að valda mestu tjóni þegar
stormurinn gekk á land í New Jersey á
þessum degi fyrir sex árum.
Þegar stormurinn kom á land í banda
ríkjunum mældist loftþrýstingur 940
millibör, sem var met fyrir atlantshafs
storm er hafði staðið í rúm 70 ár. sjávar
flóðin í New York náðu rúmum fjórum
metrum og var þannig annað áratuga
gamalt met slegið.
alls heimti sandy líf 253 einstaklinga.
Þar af fórust flestir í bandaríkjunum, eða
131, og næstflestir á Haítí, 104. talið er
að eignatjónið sem stormurinn olli hafi
numið um 66 milljörðum bandaríkja
dala, andvirði um átta billjóna króna, og
varð langmestur hluti tjónsins í banda
ríkjunum.
Þegar stormurinn reið yfir voru banda
ríkjamenn á fullu að undirbúa sig undir
forsetakosningar þar sem barack obama
freistaði þess að ná endurkjöri og atti
kappi við repúblikanann Mitt romney.
Ýmsir höfðu spáð því að romney myndi
hafa betur í þessum slag en allt kom fyrir
ekki. síðan þá hafa spekingar vestan hafs
velt því fyrir sér hvort sandy hafi tryggt
obama sigur, en hlé var gert á kosninga
baráttunni og obama vakti athygli fyrir
vasklega framgöngu í kjölfar stormsins.
skoðanakannanir sýndu að um 80 pró
sent voru hrifin af viðbrögðum forsetans.
Þegar stormurinn gekk á land hafði rom
ney mælst með forskot í könnunum en
það breyttist um leið og storminn lægði.
thorgnyr@frettabladid.is
Fellibylurinn Sandy gekk
á land í Bandaríkjunum
Mannskæðasti Atlantshafsfellibylur ársins 2012 gekk á land á þessum degi í New Jersey í
Bandaríkjunum fyrir sex árum. Kostaði 233 lífið og olli milljarðatjóni. Sumir segja Sandy
hafa tryggt Barack Obama sigur á Mitt Romney í bandarísku forsetakosningunum.
sandy olli gríðarlegu tjóni á eignum þegar stormurinn gekk yfir. Nordicphotos/GEtty
2 9 . o k t ó b e r 2 0 1 8 M Á N U D A G U r18 t í M A M ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
2
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
3
5
-8
7
F
C
2
1
3
5
-8
6
C
0
2
1
3
5
-8
5
8
4
2
1
3
5
-8
4
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K