Fréttablaðið - 25.10.2018, Síða 2

Fréttablaðið - 25.10.2018, Síða 2
Veður Norðan og norðvestan 8-13 og él eða dálítil snjókoma norðan til, en yfirleitt bjartviðri syðra. Hiti nálægt frostmarki. sjá síðu 26 Jafnréttisbaráttan stendur enn Kvennafrí var á Arnarhóli í gær. „Okkur hefur í alvörunni tekist að eyða heilli plánetu á styttri tíma en okkur hefur tekist að viðurkenna konur sem menn,“ las Karitas Mörtudóttir Bjarkadóttir háskólanemi úr ljóði sínu. Fréttablaðið/Sigtryggur Dómsmál Jón Trausti Lúthersson fer fram á 10,5 milljónir í skaðabætur frá ríkinu vegna ólögmæts gæslu- varðhalds en hann sat í einangrun í 21 dag vegna rannsóknar á dauða Arnars Jónssonar Aspar í fyrra. Sveinn Gestur Tryggvason var einn ákærður og dæmdur fyrir að hafa verið valdur að dauða Arnars, með hættulegri líkamsárás, en sex manns voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins. Auk Jóns Trausta hafa bræðurnir Marcin Wieslaw og Rafal Marek Nabakowski einnig krafist bóta en þeir sættu einangrun í viku vegna málsins. Ríkislögmaður hefur þegar hafnað bótakröfu Jóns Trausta með þeim rökum að hann hafi sjálfur valdið eða stuðlað að gæsluvarðhaldinu, þar sem hann hafi ekki sýnt sam- vinnu við rannsókn málsins, gefið litlar eða óljósar skýringar á atburða- rás og hafnað því að veita lögreglu leyfi til að skoða símann sinn. „Það er fráleitt að halda því fram að hann hafi sjálfur stuðlað að ein- angrunarvist sem hann sætti í 21 dag. Framburður hans var afdráttar- laus allan tímann og í samræmi við frásagnir vitna,“ segir Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Jóns Trausta. Bótaréttur Jóns er í stefnu byggður á því að ekki hafi verið færðar sönnur á meinta háttsemi hans og sakir á hendur honum hafi verið felldar niður. Hans eina aðkoma að andláti Arnars hafi falist í því að afvopna hann og yfirbuga. Frásögn hans hafi verið óbreytt frá fyrstu yfirheyrslu og allt þar til hann hafi gefið skýrslu í aðalmeðferð sakamálsins gegn Sveini Gesti. – aá Jón Trausti vill 10,5 milljónir í bætur frá ríkinu Jón trausti lúthersson Kynntu þér afsláttarþrep Orkunnar á orkan.is. NÝTT! Nú eru allar 55 stöðvar Orkunnar þínar stöðvar. Fleiri myndir frá Arnarhóli er að finna á +Plússíðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Fréttablaðs- appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PlúS sAmFÉlAG Fjölskylda José Ignacio Soto Roldán íhugar að kanna rétt- argrundvöll sinn vegna máls hans. Sárast finnst þeim að enn hafi enginn frá Flytjanda haft samband við þau, beðist afsökunar á mistök- unum og vottað þeim samúð sína vegna málsins. José var 33 ára Spánverji, ættaður frá smábæ skammt frá Granada í Andalúsíuhéraði Spánar, en fjöl- skylda hans er ekki efnuð. Vinur hans hafði komið hingað til lands fyrir þremur árum og lofaði landið. Það varð því úr að José fluttist hing- að til Akureyrar fyrir um þremur vikum. Að morgni fimmtudagsins fyrir viku vöknuðu vinir José til að fara til vinnu. Það var þá sem þeir tóku eftir því að hann var lífvana. Lög- regla var kölluð til og vinunum tjáð að flytja þyrfti líkið til Reykjavíkur til að framkvæma á því krufningu. Sá flutningur myndi fara fram á mánudag. Að sögn vina og aðstandenda kom það því nokkuð flatt upp á þá þegar líkið var flutt suður strax á föstudagskvöld. Þegar líkið kom til Reykjavíkur voru þau mistök gerð að í stað þess að kistunni væri komið fyrir í kældri geymslu var hún geymd yfir nótt í geymslu þar sem hitastigið stýrist af veðrinu utandyra. Fréttablaðið spurðist fyrir hjá lög- reglunni og útfararstofunni á Akur- eyri hvers vegna lík José var flutt svo fljótt en upphaflega var stefnt að því að líkið yrði krufið á þriðjudag. Lög- reglan benti á útfararstofuna sem vildi engu svara um ástæður hins snögga flutnings. Fjölskylda José hefur óskað eftir því að vinir hans hér á landi fái að sjá líkið áður en útförin og lík- brennsla fer fram. Þau svör hafa aftur á móti fengist frá sendiráði Spánar í Ósló að slíkt sé ekki æskilegt. Fyrirhugað er að vinir José muni taka við duftkeri hans og flytja það með sér í hand- farangri til Spánar þar sem hann verður lagður til hinstu hvílu. Að sögn fjölskyldu og vina eru dagarnir fram að því í lausu lofti og þau viti í raun lítið sem ekkert um stöðu mála. Fjallað var um málið í fréttamiðli Spánverja á Íslandi í gær. Viðbrögð við þeirri umfjöllun og upplifun fjölskyldunnar af málinu öllu hefur vakið talsverða athygli. Þeir sem deila fréttinni velta því meðal ann- ars fyrir sér hvort öðruvísi hefði verið búið um hnútana hefði verið um Íslending að ræða. joli@frettabladid.is Finnst sárt að hafa ekki fengið afsökunarbeiðni Mistök voru gerð við flutning á líki 33 ára Spánverja sem lést hér á landi í liðinni viku. Fjölskyldu hins látna á Spáni sárnar að enginn hafi beðið þau afsökunar og vottað samúð sína. Samskiptaleysi sendiráðsins vekur þeim einnig gremju. lík José roldán var yfir nótt í ókældri geymslu. Fréttablaðið/PJEtur José Roldán var 33 ára, ættaður frá smábæ skammt frá Granada í Andalúsíuhér- aði á Spáni. Vinur hans kom hingað til Íslands fyrir þremur árum og lofaði landið. Það varð því úr að José fluttist hingað til Akur- eyrar fyrir þremur vikum. FÉlAGsmál Gylfi Arnbjörnsson, frá- farandi forseti ASÍ, kvaddi félags- menn í setningarræðu á þingi sam- bandsins í gær. Gylfi sagði ASÍ og samfélagið standa frammi fyrir miklum áskor- unum nú þegar undirbúningur kjarasamninga stæði sem hæst og toppi hagsveiflunnar hefði verið náð. Þá gagnrýndi hann stjórnvöld fyrir að hafa á undanförnum árum hirt lungann af þeim ávinningi sem kjarasamningar hefðu tryggt þeim tækjulægstu. – sar Forseti kvaddi gylfi arnbjörnsson flytur setningar- ræðuna. Fréttablaðið/aNtON briNK 2 5 . o k t ó b e r 2 0 1 8 F I m m t u D A G u r2 F r É t t I r ∙ F r É t t A b l A ð I ð 2 5 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :3 7 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 2 A -D 2 7 0 2 1 2 A -D 1 3 4 2 1 2 A -C F F 8 2 1 2 A -C E B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 2 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.