Fréttablaðið - 25.10.2018, Side 18
Vikan
Vaxandi launakostnaður fyrir-
tækja, nýr þjálfari kvennalands-
liðsins í fótbolta, deilur um
lögleiðingu kannabisefna
og kærur á hendur með-
höndlara voru meðal
helstu mála sem Frétta-
blaðið greindi frá í
vikunni.
Deilt um lögleiðingu
kannabisefna
Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Við-
reisnar og fyrrverandi þingmaður,
segir að tími sé kominn til þess að
Ísland stígi sama skref og Úrúgvæ,
Kanada og ýmis ríki Bandaríkjanna
og lögleiði kannabisefni. Rangt sé
að setja fólk á sakaskrá fyrir minni
háttar fíkniefnabrot.
„Jafnvel þótt það myndi draga
eitthvað úr heildarneyslu verðum
við að spyrja okkur hvort allir þeir
einstaklingar sem við refsum og
fangelsum og drepum í þessu stríði,
hvort það sé ekki allt of hár fórnar-
kostnaður þegar kemur að því að
tækla eitthvað sem í grunninn er
lýðheilsumál,“ nefndi Pawel í sam-
tali við Fréttablaðið.
Ólafur Þór Gunnarsson, þing-
maður Vinstri grænna, tók í annan
streng og sagði Íslendinga þurfa
að stíga varlega til jarðar í þessum
efnum. Varast þyrfti áróður um að
slík efni væru holl og góð.
Fleiri konur stíga fram
Í það minnsta sautján konur telja
sig hafa orðið fyrir kynferðislegu
broti af hálfu manns sem með-
höndlar fólk með stoðkerfis-
vanda. Maðurinn var kærður fyrr
á árinu fyrir meint kynferðisbrot
gegn nokkrum konum sem voru í
meðferð hjá honum og rannsakar
lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
málið.
Sigrún Jóhannsdóttir, réttar-
gæslumaður kvennanna sem
kærðu manninn, sagði fleiri konur
hafa leitað til sín eftir að Frétta-
blaðið greindi fyrst frá málinu á
fimmtudag. „Ég vona einlæglega
að lögreglan fari að taka þetta mál
fastari tökum,“ nefndi hún. Stein-
bergur Finnbogason, lögmaður
mannsins, vísaði ásökununum á
bug og sagði þær hafa komið skjól-
stæðingi sínum mjög á óvart.
Þá sögðu Osteópatafélag Íslands
og Sjúkranuddarafélag Íslands
félagsmenn sína hafa heyrt sögur
af meðhöndlaranum í gegnum
tíðina. „Við höfum fengið til okkar
fólk sem hefur leitað álits um það
hvort aðferðir sem hann beitir þyki
eðlilegar. Við fordæmum svona
starfsaðferðir,“ sögðu félögin.
Nýr maður í brúnni
Jón Þór Hauksson var fyrr í vikunni
kynntur sem næsti þjálfari íslenska
kvennalandsliðsins í fótbolta. Tekur
hann við starfinu af Frey Alexand-
erssyni sem hætti störfum fyrr í
haust eftir að landsliðinu mistókst
að komast á heimsmeistaramótið
sem fram fer næsta sumar.
„Þetta er frábært lið með frá-
bærum einstaklingum og ég get
ekki beðið eftir því að hefja störf,“
sagði Jón Þór á blaðamannafundi
KSÍ en hann hefur undanfarið sinnt
starfi aðstoðarþjálfara karlaliðs
Stjörnunnar.
Jón Þór sagði næsta markmið
landsliðsins að komast á Evrópu-
mótið árið 2021 en liðið hefur
komist á síðustu þrjú Evrópumót.
„Íslensk knattspyrna er bara komin
á þann stað að við eigum alltaf
að stefna að því að koma okkur í
möguleika á því að komast á þessi
stórmót,“ sagði landsliðsþjálfarinn.
Kanada bættist nýverið í
hóp ríkja sem lögleiða
neyslu, vörslu og ræktun
kannabisefna í afþreyingar-
skyni.
Þungur og vaxandi
launakostnaður
Launakostnaður félaga í Kauphöll-
inni hefur almennt vaxið hraðar
en tekjur og rekstrarhagnaður
félaganna frá árinu 2015. Athugun
Fréttablaðsins leiddi í ljós að
hlutfall launakostnaðar af tekjum
fimmtán félaga sem skráð eru á
aðallista Kauphallarinnar hefði
hækkað á undanförnum fjórum
árum en á sama tíma hefði launa-
kostnaður tólf skráðra félaga vaxið
umfram rekstrarhagnað þeirra.
Er það í samræmi við tölur Hag-
stofu Íslands sem sýna að laun hafi
almennt hækkað að meðaltali um
26,8 prósent frá júlí 2015 til júlí
2018.
Ari Edwald, forstjóri Mjólkursam-
sölunnar, sagði í samtali við blaðið
að til lengdar gæti ekkert atvinnulíf
staðið undir viðlíka launahækk-
unum. Þá tók Seðlabankinn fram í
nýju riti að „óljóst“ væri hve mikið
svigrúm fyrirtæki hefðu til þess að
mæta launahækkunum.
Launakostnaður á
Íslandi hækkaði um meira
en 50 prósent umfram
launakostnað fyrirtækja í
samkeppnislöndunum frá
júlí 2015 til júlí 2018.
Íris Lind Verudóttir
Ég gerði svo
glimrandi góð
kaup í Rúm-
fatalagernum á
Smáratorgi þegar
allt jóladótið
þeirra var á spott-
prís í september,
jóladót sem er í raun ekkert jólalegt
svo að ég get í raun notað það allt
árið um kring.
Erna Erlendsdóttir
Ég skellti mér í
Betra bak og
keypti mér nýtt
rúm eftir mikla
leit að rétta
rúminu, en þeir
selja allra besta
rúmið að mínu mati
sem heitir Serta Royalty, ávísun á
góðan svefn. Þar sem ég er mikið
að breyta og bæta þessa dagana
fjárfesti ég einnig í nýjum AEG-
heimilistækjum frá Ormsson.
Soffía Kristín Jónsdóttir
Bestu kaup ársins
hingað til eru
klárlega húsið
mitt í Mývatns-
sveit sem ég og
kærastinn minn
keyptum í júlí og
erum búin að vera
að gera upp. Góð fjár-
festing á fallegasta stað landsins.
Dóra Hrund Gunnarsdóttir
Ég keypti mér skó í
Skóbúð Húsavík-
ur. Þar er besta
verðið á landinu
og langbesta
þjónustan.
Tekur þú þátt í hrekkjavökuhátíðinni?
Fólkið á götunni
Hvar gerðir þú síðast góð kaup?
Karítas Óðinsdóttir
Ég verð plötusnúð-
ur á Prikinu og
byrja á miðnætti!
Kannski verð ég
í búningi, kemur
í ljós.
Bobby Breiðholt,
Ég dýrka Spooky
Season og reyni
að horfa á eins
mikið af hryll-
ingsmyndum og
ég get. Ég mæli
sérstaklega með
Hereditary. Annars
verð ég ekkert nema kátur pabbi
í ár. Dóttir mín Lísa er að eiga sína
fyrstu hrekkjavöku og við erum
búin að kaupa á hana geimfara-
búning. Þannig að hún heldur uppi
fjörinu í ár.
Auður Ómarsdóttir
Nei.
Geoffrey Þór
Huntington-Williams
Ég hef ekki lagt það
í vana minn að
halda Hrekkja-
vökuna hátíðlega.
Hef samt gaman
af henni, sérstak-
lega skreytingum
öldurhúsanna og
öðrum spúkí víbrum. Enginn
búningur fyrir mig, en ég ætla að
vera extra samkvæmur sjálfum mér
á þessum álagstímum.
Annars verð
ég ekkert
nema kátur
pabbi í ár.
Dóttir mín
Lísa er að
eiga sína
fyrstu
hrekkjavöku
og við erum
búin að
kaupa á
hana geim-
farabúning.
Bobby Breiðholt
Ég gerði svo
glimrandi
góð kaup í
Rúmfatalag-
ernum á
Smáratorgi
þegar allt
jóladótið
þeirra var á
spottprís í
september.
Íris Lind
Verudóttir
Jón Þór Hauksson tekur
við af Frey Alexanderssyni
sem nýr þjálfari kvenna-
landsliðsins í fótbolta..
TiLveRAn
2 5 . o k t ó b e r 2 0 1 8 F I M M t U D A G U r18 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð
2
5
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
2
A
-D
C
5
0
2
1
2
A
-D
B
1
4
2
1
2
A
-D
9
D
8
2
1
2
A
-D
8
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K