Fréttablaðið - 25.10.2018, Síða 30
Jakkar geta virkað
vel sem millilag,
eins og rússneska
fyrirsætan Irina
Liss sýnir hér á
götum New York-
borgar.
MYNDIR/NORDIC
PHOTOS/GETTY
Fyrirsætan Johannes Huebl sýnir hér
hvernig það er snyrtilegast að vera í
stysta laginu innst og auka síddina
með hverju lagi.
Það er eðlilegt að vilja dúða sig þegar vetrarkuldinn byrjar að stinga, en það lítur ekki
alltaf mjög glæsilega út að fara í
hnausþykka úlpu eða hrúga bara á
sig flíkum. Til að líta vel út þarf að
temja sér listina við lagskiptingu.
Hér eru nokkur góð ráð til að hafa
í huga þegar maður klæðir sig fyrir
veturinn.
Að lita lögin
Hlutlausir litir virka vel í lagskipt-
ingu og það er bæði hægt að leika
sér með ólíka tóna eða halda sig
við einn lit.
Ef maður heldur sig við einn
lit er mikilvægt að velja efni með
ólíka áferð. Það bætir við dýpt og
fjölbreytileika og annars er hætta á
að fá of flatt og einsleitt útlit.
Ef maður ætlar að halda sig við
einlitt útlit er ekki gott að velja
mjög skæra liti, því þá er hætta á að
líta út eins og sögupersóna í barna-
efni. Það er betra að nota frekar
Listin við að lagskipta
Þegar vetrarvindar byrja að blása teygjum við okkur í hlýju fötin. En margir kjósa að klæða sig frekar í
nokkur lög en að draga fram þykk kuldaföt. Hér eru nokkur góð ráð til að negla laglega lagskiptingu.
hlutlausa liti, sérstaklega ef maður
vill vera látlaus í klæðaburði.
Það þurfa ekki öll fötin að vera
í litum sem passa fullkomlega
saman, en það ætti bara ein flík
að vera „hávær“ og skera sig úr
frá öllum hinum. Ef þú heldur þig
almennt við hlutlausa liti er hægt
að nota trefil eða húfu sem mest
áberandi flíkina til að setja tóninn.
Það er líka alveg óhætt að nota
mynstur, jafnvel þó maður vilji
halda sig við einfaldan og látlausan
klæðaburð. Hógvært mynstur
sem passar við litasamsetningu
klæðnaðarins getur átt mjög vel
við, sérstaklega sem millilag.
Margar leiðir til að lagskipta
Jakkar þurfa ekki endilega að vera
ysta lagið. Léttir jakkar og leður-
jakkar geta virkað vel sem millilag.
Lykillinn er að velja bara nógu létta
flík og para hana við stóra kápu.
Það er líka gott vera í ólíkum
lögum af prjónuðum fötum. Þau
líta vel út og vernda mann vel
gegn kuldanum. Þá er samt gott
að blanda saman léttari og þyngri
prjónuðum flíkum, eða ólíkum
síddum og litum, til að aðskilja
lögin.
Treflar í yfirstærð eru góð leið til
að fá lagskipt útlit þó að maður sé
ekki í mörgum lögum. Því stærri,
því betra. Það er hægt að láta þá
hanga yfir öxlina eða hálsinn eða
láta þá flæða niður í kringum
líkamann. Slíkir treflar geta líka
bætt aukinni dýpt í lagskipt útlit.
Síddir skipta máli
Karlar ættu að reyna að láta klæða-
fald hvers nýs lags vera síðari en
lagsins á undan. Þannig ætti fyrsta
lagið, til dæmis stuttermabolur, að
vera styst, en svo ætti peysan sem
kemur þar yfir að vera með síðari
klæðafald en bolurinn og næsta
lag þar á eftir ætti að vera ennþá
síðara. Auðvitað eru til undantekn-
ingar við þessa reglu, en almennt
lítur það ekki snyrtilega út ef innri
lög ná niður fyrir ytri lög.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Hér sýnir fyrirsætan Anastasia Ivanova hvernig hægt er að setja aukna dýpt í
einlitan klæðaburð með því að velja efni með ólíka áferð.
Treflar í yfirstærð eru góð leið til að fá lagskipt útlit. Þeir geta hangið yfir
öxlina eða hálsinn eða flætt niður í kringum líkamann.
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
20% afsláttur
af öllum vörum
fimmtudag, föstudag, laugardag
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
FLOTT VETRARFÖT,
FYRIR FLOTTAR KONUR
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R
2
5
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
2
A
-E
B
2
0
2
1
2
A
-E
9
E
4
2
1
2
A
-E
8
A
8
2
1
2
A
-E
7
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K