Fréttablaðið - 25.10.2018, Page 45
Þorvaldur
Gylfason
Í dag
Lissabon – Hér í Lissabon eru landkönnuðir enn á allra vörum. Það var árið 1492 að
Kristófer Kólumbus hélt hann hefði
siglt skipi sínu til Vestur-Indía sem
við köllum nú Karíbahafseyjar.
En það var ekki alls kostar rétt
því skipið kastaði akkerum við
Bahama-eyjar úti fyrir ströndum
Flórída, ekki heldur langt frá Kúbu,
og gerði þar stuttan stanz. Kólumb-
us hafði ekki hugmynd um að Leifur
Eiríksson, okkar maður á staðnum,
hafði numið land í Ameríku tæpum
500 árum fyrr, nánar tiltekið Vín-
land þar sem nú heitir Nýfundna-
land. Ekki fékk Ameríka að heita
í höfuðið á Kristóferi Kólumbusi,
heldur eftir Amerigo Vespucci,
ítölskum landkönnuði sem var í
siglingum þar vestra nokkru síðar.
Kaninn má þykjast hafa sloppið vel
því álfan hefði getað hlotið heldur
nafnið Vespússía eftir þeirri reglu
sem tíðkast víðast hvar utan Íslands
að kenna lönd og staði við eftirnöfn
manna frekar en fornöfn.
Síðasta vígi þrælahalds
Nokkrum árum eftir síðari fund
Ameríku 1492 sigldi portúgalski
landkönnuðurinn Vasco da Gama
fyrstur manna suður fyrir Góðrar-
vonarhöfða syðst í Afríku og áfram
upp til Indlands. Á leiðinni heim
aftur sigldi hann nálægt Brasilíu en
nam þar þó ekki land. Það gerðu
aðrir landar hans um 1500 og var
Brasilía upp frá því portúgölsk
nýlenda allar götur til 1822 og gekk
á ýmsu. Þrælahald lagðist ekki af
í Brasilíu fyrr en 1888 og féll þá
síðasta vígi þrælahalds á vesturhveli
jarðar. Landeigendur réðu lögum og
lofum. Eftir síðari heimsstyrjöldina
fékk Brasilía loksins að kynnast
lýðræði frá 1946 til 1964 þegar
herforingjar hrifsuðu til sín völdin
og stjórnuðu landinu með harðri
hendi til 1985. Þá komst lýðræði
aftur á og stendur sú skipan enn.
Blendinn árangur
Brasilískir stjórnmálamenn og
flokkar hafa ekki farið vel með
umboð kjósenda. Brasilía hefur
dregizt aftur úr Portúgal í efnahags-
legu tilliti og langt aftur úr Arg-
entínu í næsta nágrenni. Brasilía og
Argentína stóðu jafnfætis 1990 en
nú er að meðaltali fjórðungsmunur
á lífskjörum í löndunum tveim
Argentínu í hag. Brasilíu hefur
samt farið fram að ýmsu öðru leyti.
Brasilískur hvítvoðungur gat vænzt
þess að lifa 11 árum skemur en
argentínskur hvítvoðungur 1960, en
nú er munurinn kominn niður í eitt
ár, 77 ár í Argentínu og 76 í Brasilíu.
Lengri ævir vitna um aukna velsæld.
Stjórnmálin eru kafli út af fyrir
sig. Einn fv. forseti Brasilíu, Lula
da Silva, situr nú í fangelsi vegna
aðildar að spillingu. Annar fv. forseti
var dæmdur frá embætti fyrir sömu
sakir. Hinn þriðji, sá sem nú situr, er
í rannsókn. Fáir virðast hafa hreinan
skjöld. Kjósendur hugsa margir sem
svo: Allt er betra en þetta. Og þá
siglir inn í upplausnarástandið fv.
hermaður og þingmaður frá 1991,
Jair Bolsonaro heitir hann, sveiflar
biblíunni og lofar að hreinsa til.
Hann formælir með grófu orðalagi
blökkumönnum, afkomendum
þrælanna, og öðrum minnihluta-
hópum og mærir herforingjana og
pyndingarnar sem þeir voru þekktir
fyrir 1964-1985. Hann blæs á alla
umhverfisvernd. Hann er kallaður
brasilískur Trump og virðist nú lík-
legur til að ná kjöri í síðari umferð
Frá Brasilíu til Lissabon
forsetakosninganna á sunnudaginn
kemur. Þá getur margt enn farið
úrskeiðis.
Spilling hefur afleiðingar
Hér birtist ein hættan sem stafar
af stjórnmálaspillingu. Þegar Ítalar
losuðu sig við gerspillta stjórnmála-
menn og flokka árin eftir 1990 kusu
þeir Silvio Berlusconi, auðmann
af sama sauðahúsi, til að taka við
taumunum með þeim árangri að
Ítalía hefur í efnahagslegu tilliti dreg-
izt aftur úr öðrum Evrópulöndum.
Kaupmáttur þjóðartekna á mann á
Ítalíu var svipaður 1990 og hann var
í hinum þrem stærstu löndum ESB,
Bretlandi, Frakklandi og Þýzkalandi,
sem hefur öllum vegnað nokkuð vel.
Nú er kaupmáttur þjóðartekna á
mann á Ítalíu engu meiri en fyrir 20
árum líkt og í Grikklandi, fjórðungi
minni en í Þýzkalandi og 10% minni
en í Frakklandi. Í sumar leið gerðu
ítalskir kjósendur aðra tilraun til
landhreinsunar svo af hlauzt ný
ríkisstjórn tveggja gerólíkra upp-
reisnarflokka sem virðast til alls vísir
nema ESB setji þeim stólinn fyrir
dyrnar. Þá getur hitnað í kolunum.
Dæmi Ítalíu og Grikklands vitna um
hættuna sem fylgir því að spilling
festi rætur.
Tíu töpuð ár, og þó ekki
Portúgal hefur dregizt lítillega aftur
úr Spáni í efnahagslegu tilliti frá því
bæði löndin hrundu herforingja-
stjórnum af höndum sér um miðjan
áttunda áratug síðustu aldar og
lýðræði komst á og bæði gengu inn
í ESB 1986. Kaupmáttur þjóðar-
tekna á mann er nú ívið minni í
báðum löndum en hann var 2007.
Portúgal hefur þó dregið á Spán að
öðru leyti. Nýfæddur Portúgali gat
vænzt þess að lifa sex árum skemur
en nýfæddur Spánverji 1960, en nú
er munurinn kominn niður í tvö ár,
83 ár á Spáni líkt og hér heima og
81 ár í Portúgal. Lengri ævir segja
stundum meira en þurrar hagtölur.
GL ÆRT
LOK
R AU ÐUR
BORÐ I
KOLVETNASKERTA
FJÖLSKYLDAN
Þú þekkir hana á rauða borðanum og glæra lokinu
K
O
LV
E
T
N
A
S
K
E
R
T
#iseyskyr
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 21F i M M T u d a g u R 2 5 . o k T ó B e R 2 0 1 8
2
5
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
2
A
-F
0
1
0
2
1
2
A
-E
E
D
4
2
1
2
A
-E
D
9
8
2
1
2
A
-E
C
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K