Fréttablaðið - 25.10.2018, Qupperneq 48
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5407.
Ástkær móðir okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
Guðrún Frances
Ágústsdóttir Nielsen
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
þriðjudaginn 23. október 2018.
Jarðarför auglýst síðar.
Katrín Þ. Magnúsdóttir Magnús S. Kristinsson
Guðjón H. Magnússon
Ágústa S. Magnúsdóttir Hafsteinn K. Halldórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Lára Vilhelmsdóttir
ljósmóðir,
Ægisgötu 14, Ólafsfirði,
lést föstudaginn 19. október.
Útför hennar fer fram frá Ólafsfjarðar-
kirkju laugardaginn 27. október kl. 14.00.
Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir
Sigfríður Héðinsdóttir Ingimundur Sverrisson
Lára og Héðinn Ingimundarbörn
Minn heittelskaði lífsförunautur,
dóttir mín og systir okkar,
Jóhanna Björg Pálsdóttir
Mánatúni 1,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju
mánudaginn 29. október kl. 13.00. Þau
sem vilja minnast hennar eru beðin
um að láta Kattholt, Geitfjársetrið á
Háafelli eða MS-félagið njóta þess.
Lana Kolbrún Eddudóttir
Páll Brekkmann Ásgeirsson
Svala Pálsdóttir
Páll Pálsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristjana Helga
Guðmundsdóttir
Núpalind 6, Kópavogi,
lést miðvikudaginn 3. október.
Útför hennar fer fram frá Kópavogs-
kirkju mánudaginn 29. október kl. 15.00.
Kristjana Bjarnadóttir Þorsteinn Sigurðsson
Ólöf Bjarnadóttir Guðlaugur G. Jónsson
Ása Bjarnadóttir Árni Valur Árnason
Elín Hreindal Bjarnadóttir
Birna Bjarnadóttir Gísli Örn Gíslason
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginkona mín, móðir okkar,
dóttir og systir,
Lilja Grétarsdóttir
búvísindakandidat,
Hávarsstöðum, Hvalfjarðarsveit,
lést á sjúkrahúsinu á Akranesi þann
19. október. Útförin fer fram frá
Hallgrímskirkju í Hvalfjarðarsveit
þriðjudaginn 30. október kl. 14.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Julio Gutierrez
Narcisa Gutierrez
Emiliano Gutierrez
Hólmfríður Gísladóttir
Grétar Jónsson
Sigríður Hilda Radomirsdóttir Elskulegur faðir okkar,
Þórólfur Jóhannsson
Austurbyggð 17, Akureyri,
lést 12. október. Útför hans hefur
farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir
til starfsfólks á Beykihlíð fyrir góða
umönnun.
Hannes Heiðar Þórólfsson
Eva María Þórólfsdóttir
Ástkær móðir okkar,
sambýliskona, tengdamamma,
amma, langamma og systir,
Steingerður Jónsdóttir
frá Húsanesi,
síðar Hjallabraut 33, Hafnarfirði, lést
á Hrafnistu 21. október. Útför hennar
fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
þriðjudaginn 30. október kl. 13.
Sveinn Gunnlaugsson
Sigríður Sigtryggsdóttir Pétur Pétursson
Agnes Sigtryggsdóttir Siamack Atiabi
Björg Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær faðir okkar, tengdafaðir,
bróðir, afi og langafi,
Jón Hafsteinn Jónsson
stærðfræðingur,
lést að Droplaugarstöðum 17. október
síðast liðinn. Útförin fer fram frá
Dómkirkjunni mánudaginn
29. október klukkan 13.
Guðmundur Karl Jónsson
Olga Björg Jónsdóttir
Nanna Ingibjörg Jónsdóttir
Jón Ingvar Jónsson
Brigitte M. Jónsson
Ingvar Gýgjar Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þorkell Skúlason
endurskoðandi,
sem lést 13. október sl.,
verður jarðsunginn föstudaginn
26. október nk. kl. 13.00 frá Hjallakirkju, Kópavogi.
Ólafía Katrín Hansdóttir
Valdís Brynja Þorkelsdóttir
Ingiríður H. Þorkelsdóttir
Elsa Sigurveig Þorkelsdóttir Már Guðmundsson
Indriði Þorkelsson Anna María Soffíudóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Lögin á diskinum
Á diskinum eru 10 einleiksverk
sem spanna tímabil frá Bach
til Scriabins, fiðlusónata eftir
Mozart með Sigrúnu Eðvalds-
dóttur, sellósónata eftir Chopin
með Gunnari Kvaran og tvö
kammerverk með Kammersveit
Reykjavíkur. Allt stúdíóupptökur
nema Píanókvintett eftir Cesar
Franck með kammersveitinni
sem er beint af tónleikum.
Með diskunum fylgir 48 síðna
bæklingur með minninga-
brotum Selmu auk viðtals og
greinar eftir Elísabetu Indru
Ragnarsdóttur.Þarna er yfirlit yfir minn feril. Öll tónlistin er sígild og upptökurnar vandaðar,“ segir Selma Guðmundsdóttir um safndisk með píanóleik
hennar. Hann hefur yfirskriftina
Quo vadis/Hvert liggur leið þín? Ein
upptakan er frá tónleikum í Íslensku
óperunni með Kammersveit Reykja
víkur en hinar eru gerðar í Ríkis
útvarpinu.
„Útvarpið var með gott stúdíó og
fína tækni og fylgdist vel með tón
listarlífinu. Fyrsta upptakan með
mér var Carnival eftir Schumann. Þá
var ég 21 árs, nýbúin með lokatón
leika úr tónlistarskólanum. Magnús
Blöndal Jóhannsson tónskáld var
upptökustjóri. Svo hefur Bjarni
Rúnar Bjarnason, tónmeistari RÚV
til margra ára, séð um lokahljóð
vinnslu við útgáfuna,“ lýsir Selma.
„Þetta er svo mikið efni að diskurinn
varð fjórfaldur. Þar er meðal annars
stór konsert eftir Khatsjatúrjan sem
ég spilaði með Sinfóníuhljómsveit
inni 1988. Hann tekur næstum 40
mínútur.“
Selma segir tilviljun að af útgáf
unni varð. „Þegar geisladiskur með
Árna Kristjánssyni, gamla píanó
kennaranum mínum, kom út, hitti
ég Bjarna Rúnar sem sagði margar
upptökur til hjá útvarpinu með
minni spilamennsku. Ég ætlaði ekki
að þora að hlusta á þær en svo fannst
mér þær mun betri en ég bjóst við
og af því að það voru 40 ár frá því ég
hafði debúterað langaði mig að gefa
þær út.“
Titil diskanna rekur Selma til
sumar dvalar í Róm þar sem hún
kveðst hafa farið að líta í huganum
til baka yfir líf sitt og feril.
„Það var ekkert auðveldasta leiðin
sem ung kona gat valið sér að ákveða
að verða píanóleikari. Ég fann að
sumum fannst það ekkert sniðugt,
einkum af því að ég var orðin tveggja
barna móðir um tvítugt og komin
með fjölskyldu. En löngunin til náms
var sterk og margir hvöttu mig. Meðal
annars stóðu foreldrar mínir alltaf
við bakið á mér og hjálpuðu mér
mikið, enda er diskasafnið tileinkað
þeim og börnunum mínum fjórum.
Selma ber lof á kennarana sína.
„Árni Kristjánsson var ekki aðeins
besti kennari sem ég gat haft heldur
var hann líka mikill áhrifavaldur í lífi
mínu. Svo kom einn virtasti kennari
Evrópu, Hans Leygraf, til landsins,
og var með meistaranámskeið, hann
bauð mér að verða nemandi sinn og
að hjálpa mér að útvega styrki. Því
boði var ekki hægt að hafna, enda
lögðust margir á eitt. Þá var ég orðin
23 ára.
Það er Polarfonia Classics sem
gefur diskinn út og hann er til sölu
í 12 tónum. Útgáfuhóf er á afmælis
daginn minn, 26. október, í Listasafni
Einars Jónssonar á Skólavörðuholti.“
gun@frettabladid.is
Með fingurna á nótnaborðinu í 40 ár
Selma tileinkar diskinn foreldrum og börnum. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
Quo vadis/Hvert
liggur leið þín? er nýr
safndiskur með klass-
ískri tónlist sem Selma
Guðmundsdóttir
píanisti hefur spilað á
40 ára ferli sínum. Út-
gáfuhóf er á morgun.
Það var ekkert
auðveldasta leiðin
sem ung kona gat valið sér
að ákveða að verða píanó-
leikari. Ég fann að sumum
fannst það ekkert sniðugt ...
2 5 . o k t ó b e r 2 0 1 8 F I M M t U D A G U r24 t í M A M ó t ∙ F r É t t A b L A ð I ð
tímamót
2
5
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
2
A
-D
7
6
0
2
1
2
A
-D
6
2
4
2
1
2
A
-D
4
E
8
2
1
2
A
-D
3
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K