Fréttablaðið - 25.10.2018, Page 55

Fréttablaðið - 25.10.2018, Page 55
AS 30 LAC Iðnaðarryksuga Dugleg iðnaðarryksuga með öugum mótor, mikill sogkraftur og gott loftæði. Vnr. MW 4933459411 TILBOÐ 79.900 kr. Áður 97.900 kr. HL-LED Höfuðljós Upp að 300lm með TRUVIEW™ háskerpu ljósi Afar létt – 3 birtustillingar. Vnr. MW 4933459441 TILBOÐ 6.490 kr. Áður 7.490 kr. Borvél og SDS+vél. Borvél m/höggi 44Nm og SDS+ borvél m/höggi sem er 1.1J. 2 stk. 6,0Ah rafhl. og hleðslut. Vnr. MW 4933459813 TILBOÐ 69.900 kr. Áður 81.900 kr. M12 FPP2B-602X M18 BOS125 Hjámiðja 125mm Öugur Milwaukee mótor skilar 14000 til 24000 strokum á mínútu. REDLINK™ yrálagsvörn. Vnr. MW 4933464228 Verð 29.900 kr. Án rafhlöðu M18 BDD-152C Borvél + 2 rafhlöður og hleðslutæki POWERSTATE™ mótor – meiri kraftur. REDLINK PLUS™ ræður við mikið álag. REDLITHIUM-ION™ rafhlöður – aukinn kraftur og lengri líftími. LED ljós og sveigjanlegt rafhlöðuker sem virkar með öllum Milwaukee M18™ rafhlöðum. Kemur með 2×1,5Ah rafhlöðum, hleðslutæki og tösku. Vnr. MW 4933451415 TILBOÐ 32.900 kr. Áður 39.900 kr. NÝTT – á októbertilboði Alvöru verkfæri V E R K FÆ R A S A L A N S Í Ð U M Ú L A 9 , R E Y K J AV Í K D A L S H R A U N I 1 3 , H A F N A R F I R Ð I D A L S B R A U T 1 , A K U R E Y R I S : 5 6 0 8 8 8 8 vfs.is Kler (Clergy) (polish w/eng sub) ......... 17:30 Lof mér að falla (eng sub) .................. 17:30 Mæri // Border (eng sub) ..................... 17:50 Mandy (english-no subtitles) ............. 20:00 Mæri // Border (ice sub) ................... 20:00 Danska nýbylgjan - Opnunarhátíð* *Hinn seki//Den skyldige (eng sub) . 20:00 Mandy (english-no subtitles) ............. 22:00 Sorry to Bother You ........................ 22:10 Útey 22. júlí ............................................. 22:20 HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 31F i m m T U D A g U R 2 5 . o k T ó B e R 2 0 1 8 Hvað? Hvenær? Hvar? Fimmtudagur hvar@frettabladid.is 25. október 2018 Tónlist Hvað? Frönsk kaffihúsalög Hvenær? 21.00 Hvar? Petersen svítan, Ingólfsstræti Söngkonan Unnur Sara Eldjárn og píanóleikarinn Birgir Þórisson spila frönsk kaffihúsalög frá kl. 21-23. Þau flytja þekkt lög frá lista- mönnum á borð við Edith Piaf og lög af plötunni „Unnur Sara syngur Gainsbourg“ sem kom út í ágúst. Hvað? Hauststilla Hvenær? 20.00 Hvar? Deiglan, Akureyri Mikil gróska er nú í norðlensku tónlistarlífi og hafa margir efni- legir listamenn gert vart við sig á undanförum misserum. Markmið hátíðarinnar er að gefa tónlistar- fólki tækifæri á að koma fram og spila eigið efni. Lögð er áhersla á hlýja og þægilega stemningu, lif- andi hljóðfæraleik og síðast en ekki síst frumsamda tónlist. Hvað? Bismút X Murder Magazine presents TKB Hvenær? 19.00 Hvar? Bismút, Hverfisgötu Pop-up og partí þar sem TKB spilar. Hvað? Freyjujazz – Brynhildur Odds­ dóttir Hvenær? 17.15 Hvar? Listasafn Íslands Fimmtudaginn 25. október kemur fram söngkonan og gítarleikarinn Brynhildur Oddsdóttir. Brynhildur hlaut Gullnöglina í ár, gítarverð- laun sem veitt eru í tengslum við gítarhátíð Björns Thoroddsen, fyrir áræði, kjark og þor í tónlistar- sköpun sinni. Á Freyjujazzi mun hún leika djass úr ýmsum áttum ásamt Söru Mjöll Magnúsdóttur píanista og Birgi Bragasyni kontra- bassaleikara. Viðburðir Hvað? Klám og hnignun: Forseti Ís­ lands tekur til máls Hvenær? 17.00 Hvar? Bókabúð Forlagsins, Fiskislóð Stund klámsins: Klám á Íslandi á tímum kynlífsbyltingarinnar eftir sagnfræðinginn Kristínu Svövu Tómasdóttur er fyrsta fræðilega verkið um sögu kláms á Íslandi og Hnignun, hvaða hnignun? Goð- sögnin um niðurlægingartímabilið í sögu Íslands eftir sagnfræðinginn Axel Kristinsson fjallar á gagn- rýninn hátt um hugmyndina um eymdarskeið í sögu Íslands. Þær verða báðar til sölu á góðu tilboði í útgáfuhófinu í kvöld. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er sérstakur heiðursgestur og flytur ávarp við þetta tilefni. Hvað? Auður Íslands – Tíminn og hafið Hvenær? 20.00 Hvar? Hannesarholt, Grundarstíg Auður Íslands er nýr dagskrár- liður í Hannesarholti sem lítur til lands, þjóðar og tungu út frá sjónarhornum náttúruvísinda, félagsvísinda og lista. Andri Snær Magnason ríður á vaðið með þremur kvöldum á haustönninni undir þessum hatti. Kvöld Andra Snæs eru nokkurs konar þríleikur sem gengur undir heildarheitinu „Tíminn og vatnið“. Þann 25. októ- ber er annar hluti þríleiks Andra Snæs Magnasonar um tímann og vatnið. Að þessu sinni er fjallað um Tímann og hafið. Pálmasjóður styrkir fyrirlestraröðina og eru færðar þakkir fyrir. Hvað? Götubitinn 2018 Hvenær? 17.00 Hvar? Íslenski sjávarklasinn, Granda­ garði Hlemmur mathöll og Grandi mat- höll efna til opinnar umræðu um götubitann og íslenska matar- menningu hinn 25. október við Grandabryggju (fiskmarkaðinn) og hefst hann kl. 17.00. Hvað? Lífsstílskaffi með Ingrid Kuhl­ man um jákvæða sálfræði Hvenær? 17.30 Hvar? Borgarbókasafnið Sólheimum Boðið verður upp á Lífsstílskaffi í Borgarbókasafninu Sólheimum fimmtudaginn 25. október kl. 17.30. Þar mun Ingrid Kuhlman leiða gesti í allan sannleik um hvernig hægt sé að auka vellíðan með aðferðum jákvæðrar sálfræði. Hún mun m.a. skoða hvað rann- sóknir á velferð einstaklinga hafa leitt í ljós og fjalla um hamingju- aukandi leiðir. Auk þess fer hún í mikilvægi þess að þekkja og efla styrkleika sína, en með því er hægt að auka líkurnar á að blómstra og lifa sínu besta lífi. Hvað? Fílalag Live á Kex Hostel Hvenær? 20.00 Hvar? Kex hostel, Skúlagötu Fílalagsmenn hafa svarað kalli Fílahjarðarinnar og fært sig um set frá gamla vatnsbóli okkar á Húrra yfir í stærri húsakynni Gamla Nýló salsins á Kexi Hosteli. Þetta er s.s. nýuppgerður salur á jarðhæðinni við aðalinnganginn á Kexi frá Skúlagötu. Þarna eru öll helstu microbrewerí trademörkin klár; gamalt apótekaraborð sem er búið að breyta í bar, óræð uppstoppuð dýr pending, brotnar gamlar stíl- íseraðar flísar á gólfum og skrítin hljóðvist. Hvað? Meðgönguljóð nr. 32 & 33 Hvenær? 20.00 Hvar? Mengi, Óðinsgötu Verið velkomin í síðasta útgáfuhóf seríu Meðgönguljóða, sem hefur frá árinu 2012 fagnað nýjabruminu í íslenskri ljóðlist með ritstjórn og útgáfu á styttri verkum. Sýningar Hvað? Þjóð meðal þjóða Hvenær? 19.00 Hvar? Gerðarsafn, Kópavogi Opnun sýningarinnar Einungis allir í Gerðarsafni. Hvað? Martyna Daniel // I've been looking for a punch bag all day Hvenær? 18.00 Hvar? Listastofan, Hringbraut „I’ve been looking for a punch bag all day“ er sýning eftir listakonuna Martynu Daniel – stofnanda og meðstjórnanda Listastofunnar. Hún býður ykkur á opnunina þann 25. október frá 18.00. Hnefaleika- búnaður verður í boði til að fá útrás í umhverfi fullu af litum og glimmeri. Tvær nýjar bækur Sagnfræðifélagsins verða kynntar í kvöld og tekur Guðni Th. til máls. FréTTablaðið/Eyþór 2 5 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :3 7 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 2 B -0 8 C 0 2 1 2 B -0 7 8 4 2 1 2 B -0 6 4 8 2 1 2 B -0 5 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 6 4 s _ 2 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.