Breiðfirðingur - 01.04.1977, Blaðsíða 41
BREIÐFIRÐINGUR
39
stökum, fámennum félögum verður nær ókleif. Með sam-
tökum ætti að náðst víðari vettvangur, meiri úfbreiðsla og
auðveldari tök á fjöldanum.
Söfnun og varSveizla 'þjóðlegra verðmæta og þjóðháita
yrðu einnig að sjálfsögðu miklu auðveldari bæði í skipu-
lagningu og framkvæmd, ef unnt væri að leiða á sameigin-
legan vettvang fjölmargra átthagafélaga, þar sem sífellt
væri vakað yfir öllu slíku, heldur en að leita til margra
minni félaga, sem lítt eða ekki gætu sinnt þessu.
Þetta hefur einmitt nú þegar komið ljós gagnvart þeirri
starfsemi um söfnun þjóðhátta, sem Háskóli íslands hefur
nú þegar byrjað á.
Þar mun auðugt til fanga en erfitt að ná tökum á við-
fangsefninu, þar eð engin stofnun er til, sem þarna er
unnt að leita til, sem síðan gæti vísað til fanga í ýmsum
áttum, héruðum og sveitum.
En það ætti skipulögðu átthagasambandi, með fólk,
einkum eldra fólk úr öllum byggðum landsins innan sinna
vébanda, að verða auðvelt eða auðveldara til úrlausnar en
nokkurri annarri stofnun. Ferðalög ekki sízt innanlands í
heimsókn til átthaganna eru auðvitað tilvalið sameiginlegt
verkefni.
Slíkar ferðir eða heimsóknir hafa jafnan verið vinsæll
þáttur í starifsemi hinna einstöku átthagafélaga. En þeim er
víða orðið þröngt um vik í samkeppni nútímans um ferða-
lög. Því ætti átthagasamhand með skipulögðum árvissum
ferðalögum fyrir mörg félög einmitt að geta bætt úr á sem
beztan hátt.
Ferðalög til annarra landa ættu einnig að vera sjálfsagð-
ur þáttur í starfsemi átthagasambands, ekki sízt í sambandi