Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Side 24
Bort af því besta 03. águst 2018KYNNINGARBLAÐ Mi Iceland er viðurkenndur dreifingaraðili á Íslandi fyrir kínverska snjalltækjafram- leiðandann Xiaomi eða Mi, sem hefur skapað sér sterkan sess í tækniheiminum með áreiðanlegum tækjum á góðu verði. Fyrsti síminn frá Mi kom á markaðinn árið 2011 og aðeins þremur árum síðar var fram- leiðandinn orðinn sá þriðji stærsti í heiminum. Snjallsímarnir frá Mi eru í nokkrum verðflokkum og hægt er að fá mjög góðan snjallsíma fyr- ir aðeins 25.000 krónur. Með slíkum síma er hægt að gera allt sem mað- ur notar hefðbundinn snjallsíma í, rafhlaðan er endingargóð og myndavélin er sérlega góð, sem er mjög eftirsóttur kostur í snjallsímum í dag. Einn vinsælasti eiginleiki þessara síma er sá að þeir bjóða allir upp á tvö símakort og þar af leiðandi sameina þeir vinnu- og persónulega símann í einn síma. Nýjasti síminn frá Mi Iceland er Redmi Note 5 Pro. Sá sími styð- ur hraðhleðslu, er með tvöfalda myndavél að aftan sem skilar einstaklega skýrum myndum og hefur endingargóða rafhlöðu, sem skiptir mestu máli þegar upp er staðið. Nýjasta flaggskipið hjá Mi Iceland er Mi Mix 2S. Sá sími er úr vinsælu Mix-línunni sem á sínum tíma var brautryðj- andi í hönnun farsíma úti um allan heim þar sem skjárinn þekur nánast allan flöt símans. Síminn inniheldur svo alla nýjustu þróun á snjallsímum og má þar nefna einn hraðasta örgjörvann, 64GB inn- byggt minni og 6GB vinnsluminni, hrað- og þráðlausa hleðslu og nýja og endurbætta tvöfalda myndavél. Önnur smærri en nytsamleg vara, sérstaklega á ferðalögum í sumar, er 10.000mAh hleðslubankinn. Með þessari græju er hægt að hlaða flest snjalltæki á borð við farsíma og spjaldtölvur hvar sem er með stóru rafhlöðunni sem er innbyggð . Alveg ómissandi græja fyrir ferðalögin í sumar! Mi Iceland er vefverslun sem sendir hvert á land sem er og er enginn sendingarkostnaður. Nánari upplýsingar eru á heimasíðunni mii.is ÞREFÖLD GÆÐI MIÐAÐ VIÐ SAMBÆRILEG TÆKI Í SAMA VERÐFLOKKI Nýir símar í sérflokki Mi Mix 2S Redmi Note 5 PRO Hleðslubanki Lindarfiskur er lítið fjölskyldufyrir-tæki staðsett í Meðallandinu rétt austan við Vík. „Móðir mín er frá þessari jörð og er staðurinn alger- lega einangraður. Aðalverðmætin á jörðinni er allt þetta tæra lindarvatn sem streymir hér beint úr eldhrauninu og því er staðurinn fullkominn fyrir bleikjueldi,” segir Drífa Bjarnadóttir, einn eigandi Lindarfisks. „Við fjöl- skyldan eigum og rekum Lindarfisk saman. Það eru ég og maðurinn minn, Árni Jóhannsson, systir mín, Sigrún Bjarnadóttir, og foreldrar okkar, þau Helga Ólafsdóttir og Bjarni Jón Finns- son,” segir Drífa. Alger sjálfbærni Fyrstu bleikjuhrognin voru tekin hjá fyrirtækinu árið 2011 og síðan þá hefur Lindarfiski svo sannarlega vaxið fiskur um hrygg. „Við stefnum að algerri sjálfbærni og gerum því allt sjálf. Nýlega fengum við okkur svín sem éta nánast allan afskurðinn af bleikjunum og afgangurinn er svo notaður í áburð. Fiskinn vinnum við alfarið á svæðinu. Það hefur gengið hægt en örugglega að koma fyrir- tækinu á þann stað sem það er í dag og munum við von bráðar selja vörur okkar í stórmarkaði. Við höfum meðal annars hannað neytendaumbúðir sem eru svartar og nær ógegnsæjar til þess að stuðla að ferskari og betri vöru. Að auki höfum við hugsað okkur að fara í útflutning á eldisbleikju, enda erum við með ótrúlega ferska vöru í höndunum,” segir Drífa. Tærasta vatnið, ferskasti fiskurinn „Við leggjum mjög mikið upp úr fersk- leika, það er eitthvað sem við get- um bara alls ekki slegið af hérna hjá Lindarfiski. Hrognin fáum við frá kyn- bótastöðinni á Hólum í Hjaltadal sem framleiðir fyrsta flokks hrogn. Þau ölum við svo hér í Meðallandinu í kerjum og svokölluðum lengdarstraumsrennum. Hér rennur ferskt og tært vatn beint úr lindaruppsprettum og fiskurinn er eins ferskur og getur orðið,” segir Drífa. Hafðu samband „Við erum aðallega að selja bleikju til veitingastaða sem undantekninga- laust lofa bleikjuna okkar í hástert,” segir Drífa. Enn sem komið er selur Lindarfiskur ekki vörur í stórmörkuðum en til þess að versla beint við Lindar- fisk er hægt að hringja í Drífu í síma 663-4528 eða senda henni netpóst á drifa@lindarfiskur.com. Nánari upplýsingar má nálgast á Lindarfiskur.com eða Facebook: Lindar- fiskur. Einnig heldur Lindarfiskur úti síðu á Instagram : lindarfiskur, sem er stór- skemmtilegt að fylgjast með. LINDARFISKUR Ferskasti fiskurinn á landinu „Meðallendið er uppeldisstaður mömmu,“ segir Drífa. Ferskur fiskur úr tærri lind. Það elska allir bleikjuna frá Lindarfiski.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.