Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Side 27
Brot af því besta 03. águst 2018 KYNNINGARBLAÐ
Kranaleigan ÁB Lyfting er klár-lega fyrsti kostur þegar þörf er á kranaþjónustu við stærri
verkefni enda hefur fyrirtækið meðal
annars yfir að ráða stærsta krana
landsins. „ÁB Lyfting hefur verið
starfandi síðan árið 1999 en ég hef
starfað í þessu fagi í tæplega 40 ár,“
segir framkvæmdastjórinn Ástþór
Björnsson.
„Við erum með sjö glussakrana
sem taka frá 35 tonnum upp í 300
tonn en þessi 300 tonna er stærsti
krani landsins. Hann vegur einn og
sér án nokkurrar hleðslu heil 72
tonn. Þessir kranar eru allir meira og
minna stöðugt í útleigu. Við þurfum
sjálf að sjá alfarið um alla vinnu á
krönunum, þetta eru það sérhæfð
verkefni. Stór hluti af verkefnunum er
annars vegar hífingar og lyftingar við
byggingarvinnu og hins vegar skipa-
vinna, þ.e. uppskipun. En einnig eru
þetta margs konar önnur verkefni þar
sem lyfta þarf mjög þungum hlutum,“
segir Ástþór.
Meðal þekktra verkefna hjá ÁB
Lyftingu eru hífingar á öllum vindmyll-
um sem reistar hafa verið á landinu.
Enn fremur sér fyrirtækið um að lyfta
upp gömlum sögufrægum húsum fyr-
ir Minjavernd. „Við hífðum líka rafala
og túrbínur í Hellisheiðarvirkjun. Auk
þess höfum við skipað upp gröfum
fyrir Eimskip í Helguvík og Húsavík,
svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Ástþór.
Þýska stálið blífur
Allir sjö glussakranarnir í eigu Krana-
leigunnar ÁB Lyfting koma frá einum
og sama framleiðandanum, Grove í
Þýskalandi. Þjóðverjar eru annálaðir
fyrir framleiðslu á framúrskarandi
þungavinnuvélum og ÁB Lyfting vill
bara notast við það besta á mark-
aðnum. Myndir af Grove-krönunum
prýða þessa grein.
Þeir sem vilja fá nánari upplýsingar
eða þurfa á fyrsta flokks kranaþjón-
ustu að halda geta hringt í síma 896-
2301 fyrir frekari upplýsingar. Einnig
má senda fyrirspurn í tölvupósti á
netfangið ablyfting@simnet.is.
KRANALEIGAN ÁB LYFTING:
Stærsti krani landsins og
sex félagar hans