Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Qupperneq 34
Bort af því besta 03. águst 2018KYNNINGARBLAÐ
EM Sendir er lítil sendibílaþjón-usta sem sérhæfir sig í að veita fjölbreytta og persónulega
þjónustu bæði einstaklingum og litlum
fyrirtækjum. EM Sendir reynist mörg-
um ómetanleg hjálparhella, vinnur verk
sem aðrir taka ekki að sér og kemur oft
til bjargar við aðstæður þegar fólk veit
hreinlega ekki hvert á að snúa sér, til
dæmis varðandi úrgang og sorp sem
ekki er veitt móttaka á hefðbundnum
endurvinnslustöðvum, og við margvís-
legar aðrar aðstæður.
EM Sendir er í eigu þeirra Einars
Margeirs Kristinssonar og tengdaföður
hans, Hafþórs Harðarsonar, en þeir
hafa yfir að ráða tveimur meðalstór-
um sendibílum. Bílarnir henta í minni
búslóðarflutninga hjá pörum eða
einstaklingum en auk þess veita þeir
félagar alls konar þjónustu, aka með
sorp, skutlast með vörur fyrir fyrirtæki
og sinna jafnvel tiltekt, til dæmis í bíl-
skúrum og ruslageymslum.
„Varðandi búslóðaflutninga þá
hentar okkar þjónusta best til dæmis
stúdentum, þeim sem eru að flytja að
heiman frá sér í fyrsta skipti og jafnvel
þeim sem eru að flytja á síðasta heim-
ilið sitt, þ.e. dvalarheimili,“ segir Einar.
Mikil þörf fyrir svona þjónustu
„Fólk er oft hissa á hvað við veitum
mikla þjónustu. Þegar allt er á hvolfi
í bílskúrnum þínum getum við komið,
farið með ruslið og gengið frá því. Það
sama gildir um ruslið í garðinum og svo
framvegis. Oft erum við ruslakarlar fyrir
það sem hin almenna sorphirða tekur
ekki. Við erum oft fengnir í alls konar
sérkennileg verkefni sem fólk situr uppi
með. Gott dæmi er iðnaðarrusl sem
verður eftir þegar fólk hefur farið í
gegnum breytingar á húsnæði og það
veit ekkert hvar það getur losað sig
við slíkan úrgang. Stundum eru þetta
stórir steypuklumpar sem vega hund-
ruð kílóa. Þá mætir maður bara með
mannskap og burðarbönd og leysir
málið.“
Viðskiptavinahópur EM Sendis er
mjög fjölbreyttur og ljóst er að mikil
þörf er fyrir þessa þjónustu: „Þetta er
bara öll flóran en fyrst og fremst er
venjulegt fólk sem þarf á þessari þjón-
ustu að halda, persónulegri þjónustu
varðandi verkefni sem það getur ekki
leyst sjálft. Fólk sem á bara fjölskyldubíl
eða jafnvel engan bíl, þarf að taka til í
geymslunni sinni og hefur oft engin tök
á að losa sig við ruslið. Þarna komum
við inn og leysum vandann. Eða þegar
eldra fólk klippir tréð í garðinum sínum.
Hver á að fara með greinarnar á Sorpu
ef þetta er ekki tekið? Það hentar ekki
öllum að setja þetta í skottið á bílnum
sínum.“
Þjónusta við veitingahús
Eins og áður kom fram vinnur EM
Sendir töluvert fyrir fyrirtæki, sér-
staklega við smærri vörusendingar á
morgnana fyrir til dæmis heildsölur. En
þeir félagar vinna einnig fyrir veitinga-
staði: „Ég hef bakgrunn úr hótel- og
veitingarekstri og sú reynsla meðal
annars gerir okkur kleift að þjónusta
veitingastaði. Við losum þessa aðila
við ruslið sem þeir hafa ekki hug-
mynd um hvert á að fara með. Eða
ef afgangsolían er ekki hirt reglulega
af efnamóttökunni þá vitum við hvert
á að fara með hana. Það sama gildir
um endurvinnslugler og ýmsar aðrar
ruslaferðir þar sem sorphirðan tekur
af einhverjum ástæðum ekki við, en við
vitum hvert á að fara með þetta efni.
Við vitum líka hvort það kostar að farga
hlutum og hvað það kostar.“
Þess má geta að þeir Einar og Haf-
þór aka líka fyrir Nýju Sendibílastöðina
og þess vegna eru bílar þeirra merktir
henni. Nýja Sendibílastöðin virkar eins
og bílaleigustöðin fyrir utan að bíl-
stjórarnir eiga hlut í henni.
Þeir sem vilja nýta sér þjónustu EM
Sendis eða fá frekari upplýsingar geta
sent skilaboð inni á Facebook-síðunni
www.facebook.com/EMSendir/ en
einnig má hringja í síma 696-0420
eða 896-6283.
EM SENDIR:
Persónulega og hjálpsama
sendibílaþjónustan
Dæmi um úrgang sem EM Sendir
losar viðskiptavini sína við