Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Side 45
FÓLK - VIÐTAL 453. ágúst 2018
Verslunarmannahelgin
n Þekktir einstaklingar rifja upp eftirminnilegustu verslunarmannahelgina n Minningar og fastar hefðir
Atli Steinn Guðmundsson
(Þjóðhátíð í Eyjum 1993):
„Það er töluverð áskorun að velja eftirminnilegustu verslunar-
mannahelgina en eftir mikil heilabrot vel ég Þjóðhátíð í Eyjum 1993,
hvort tveggja af því að það var fyrsta þjóðhátíðin mín og af því að nú
eru 25 ár síðan. Þetta var mikið ævintýri, við vinirnir sigldum með
gamla Herjólfi og það sem stendur upp úr er gestrisni Eyjamanna, ég
hef varla heimsótt dásamlegra fólk en á þeim sex þjóðhátíðum sem
ég sótti á öldinni sem leið og nota tækifærið hér og þakka Eyjamönn-
um af heilum hug fyrir kjötsúpu, reyktan lunda og frábærar móttök-
ur. Á Þjóðhátíð 1993 var Todmobile aðalnúmerið og gekk sveitin þess
fullkomlega dulin að hún fóstraði borgarfulltrúa komandi aldar
undir belti sér. Þjóðhátíðargestir nutu sólar alla hátíðina fyrir utan
dynjandi haglél og hellidembu í um hálftíma á laugardeginum.
Ógleymanleg skemmtun.“
Írís Björk Tanya Jónsdóttir
(Atlavík 1985/6):
„Eftirminnilegasta útihátíðin mín er
sú eina sem ég hef farið á hingað til
en það var á síðustu öld. Mig langar
að segja 1985 en það gæti verið að
það hafi verið 1986 en því miður
eða sem betur fer voru engir
farsímar né samfélagsmiðlar til þá og
því ekki bunki af myndum til að
staðfesta ártalið eða uppljóstra momentum
sem maður vildi kannski ekki sjá í dag, ég mun
kannski bölva samfélagsmiðlum í ellinni en það er hvort eð svo
óralangt í það. Mamma og pabbi gáfu mér leyfi til þess að fara
með ábyrgri eldri systur minni á þessa útihátíð sem haldin var í
Atlavík. Þarna voru Stuðmenn aðalhljómsveitin sem steig á svið
þessa helgi en mér þótti mjög spennandi að fá að vera svona
ung úti alla nóttina og horfa á goðið mitt hana Röggu Gísla. Á
þessum árum var allt svo miklu einfaldara og hættuminna en í
dag. Jú, jú, það var mikið djamm og fólk að drekka áfengi en það
var enginn með læti og ég varð aldrei hrædd. Held mig við þessa
fullkomnu minningu sem ég á með systur minni og vinum þar
sem dansað var varlega inn í nóttina og er ekki á leið á útihátíð
þetta árið allavega.“
Kolbeinn Óttarsson Proppé (Ólafsvaka 1993):
„Ég hef aldrei verið mikill verslunarmannahelgarmaður, of
mikil eftirvænting um að nú verði allt frábært. Ég tók út
mínar útihátíðir fyrir tvítugt, enda var miklu skemmtilegra að
vera í bænum. Bestu helgarnar hafa verið í Þjórsárdal, þegar
við höfum verið þar mörg. Eftirminnilegasta verslunar-
mannahelgin var þó líklega sú sem í raun stóð í eina og hálfa
viku. Við fórum félagarnir á Ólafsvöku í Færeyjum, vorum þar
í viku með tilheyrandi skemmtun. Keyrðum svo frá Seyðisfirði
til Siglufjarðar, flugum í bæinn, fórum í Þjórsárdal í eina nótt og svo á Eldborg.
Mikil ferðalög, mikil gleði, en ótrúlega gaman því félagsskapurinn var góður.“
Þjóðhátíð í Eyjum
Hvar: Herjólfsdalur í Heimaey
Vinsælasta útihátíð helgarinnar enda eina
hátíðin sem hefur þann sið að á hverju ári
er samið sérstakt þemalag í tilefni hennar.
Fastir liðir eins og brenna á Fjósakletti,
flugeldasýning og brekkusöngur eru alltaf
áreiðanlegir og er stemning bæði heimafólks
og utanaðkomandi í mikilli sérstöðu.
Neistaflug
Hvar: Neskaupstaður
Fjölskylduhátíðin Neistaflug hefur verið
haldin árlega síðan 1993 í Neskaupstað. Það
er tónlistarklúbburinn Brjánn sem sér um
herlegheitin ár hvert og fylgir sífellt pökkuð
dagskrá ár hvert sem ætti ekki að svíkja
neinn sem sækir hátíðina.
Unglingalandsmót UMFÍ
Hvar: Þorlákshöfn
Unglingalandsmót UMFÍ hafa verið haldin frá
árinu 1992 og var hið fyrsta haldið á Dalvík.
Mótin hafa vaxið ár hvert en þétt dagskrá er
alla mótsdagana og skemmtun á kvöldin þar
sem aragrúi af þekktu tónlistarfólki kemur
fram. Boðið er upp á 22 keppnisgreinar fyrir
11–18 ára börn og ungmenni og er ekki skilyrði
að vera í ungmenna- eða íþróttafélagi.
Síldarævintýri á Siglufirði
Hvar: Siglufjörður
Hátíðin er fyrir löngu búin að festa sig í sessi
sem stórkostleg fjölskylduhátíð þar sem
jafnt ungir sem aldnir og allir þar á milli
skemmta sér og öðrum í frábæru umhverfi.
Meðal þess sem Siglufjörður býður upp á
eru frábærar gönguleiðir, stuttar og langar,
t.d. Hvanneyrarskál, Skógræktin, Hóls-
dalur, Siglunes, Héðinsfjörður o.fl. Góður 9
holu golfvöllur er einnig á svæðinu ásamt
sundlaug og líkamsræktarstöð að ógleymdu
einu stórfenglegasta safni Evrópu, Síldar-
minjasafninu.
MANITOU MLT 625-75 H
Nett
fjölnotatæki
Pétur O. Nikulásson ehf. • Melabraut 23, Hafnarfjörður • Símar: 552 2650 / 552 0110 • pon@pon.is
6.800.000 kr. + VSK
Íslensku sumarleikarnir
Hvar: Akureyri
Und an fari sum ar leik anna er fjöl skyldu-
hátíðin Ein með öllu en helsta breyt ing in á
hátíðinni er sú að auk in áhersla hefur verið
lögð á viðburði tengda hreyfi ngu. Margt
annað er í boði fyrir alla aldurshópa. Þar má
nefna íþróttaviðburði, tívolí, hoppukastala
og að sjálfsögðu tónleika. Ein með öllu fyrir
norðan er ávísun á góðar stundir.