Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Qupperneq 48
48 3. ágúst 2018
7 ára drengur, Yaseen Ege, lést af áverkum sem móðir hans, Sara Ege, veitti honum um langt skeið. Ástæða misþyrminganna var sú að Söru fannst sonur sinn ekki kunna Kóraninn sem skyldi. „Ef hann las ekki
Kóraninn almennilega varð ég mjög reið – þá barði ég hann,“ sagði hún við
yfirheyrslur. Við refsingarnar notaði Sara meðal annars hamar. Sara fékk
lífstíðardóm 7. janúar 2013.
Frábært verð og
falleg hönnun
Kíktu á sturta.is og skoðaðu úrvalið
Sturtuklefar með þaki,
sporna gegn raka
n Papin-systurnar voru hlédrægar og samrýmdar n Dag einn brast eitthvað hjá þeim með banvænum afleiðingum
S
ystur tvær, Christine, fædd
1905, og Lea, fædd 1911,
Papin slitu barnsskónum
í þorpum skammt frá
frönsku borginni Le Mans. Af
bernsku þeirra segir fátt, en þær
áttu eldri systur, Emiliu, sem gerð-
ist nunna og kemur ekki frekar við
sögu hér. Christine og Lea dvöldu
þónokkuð innan veggja hinna
ýmsu stofnana því skilnaður for-
eldra þeirra hafði lagst á sál þeirra.
Þegar þær voru orðnar stálpað-
ar sáu þær sér farborða sem þjón-
ustustúlkur á hinum ýmsu heim-
ilum í Le Mans. Reyndu þær eftir
bestu getu að fá vist þannig að þær
gætu verið saman.
Hæglátar og iðnar
Víkur nú sögunni til ársins 1926. Þá
unnu systurnar hjá René nokkrum
Lancelin, lögmanni í Le Mans sem
sestur var í helgan stein. Bjuggu
systurnar á heimili lögmannsins
og eiginkonu hans. Einnig var þar
til heimilis uppkomin dóttir þeirra
hjóna, Genevieve.
Var eftir því tekið hve systurnar
voru hæglátar og iðnar. Þær héldu
sig mest út af fyrir sig og var engu
líkara en þær hugsuðu mest um
hvor aðra.
Árangurslaus bið
Árin liðu og lífið gekk sinn vana-
gang á heimili Lancelin-fjöl-
skyldunnar. Þann 2. febrúar, 1933,
dró þó til tíðinda. René Lancel-
in beið þá um kvöldið eftir eigin-
konu sinni og dóttur, heima hjá
mági sínum sem hafði boðið þeim
til kvöldverðar.
Leið og beið en ekkert bólaði
á mæðgunum. Áhyggjufullur fór
René heim til að athuga hverju
sætti. Dyrnar voru læstar innan frá
og René gat ekki með nokkru móti
komist inn, hann sá þó bjarmann
frá kertaloga berast út um glugg-
ann á vistarverum systranna á
háaloftinu.
Blóðugur vettvangur
René sá þann eina kost í stöðunni
að leita aðstoðar lögreglunnar og
klifraði einn lögregluþjónn yfir
vegginn að húsabaki og þaðan inn
í húsið. Þar mætti honum ófögur
sjón; mæðgurnar lágu á gólfinu
og var vart hægt að bera kennsl
á þær, svo illa farin voru and-
lit þeirra. Annað auga Genevieve
verið stungið út og lá á gólfinu
skammt frá líkinu. Bæði augu
frúar Lancelin höfðu verið stungin
út, þau fundust innvafin í klút
sem hafði verið bundinn um háls
hennar. Neglur höfðu verið rifn-
ar af með rótum og gólfteppið var
gegnsósa af blóði.
Klæddar í kímonóa
Lögregluþjónar fikruðu sig með var-
úð upp á efri hæðir hússins. Uppi á
hálofti fundu þeir systurnar þar sem
þær sátu, íklæddar kímonóum, á
öðru rúminu og héldu hvor utan
um aðra. Þær játuðu undanbragða-
laust að hafa banað mæðgunum og
síðan arið úr blóði drifnum fötum
sínum, klætt sig í kímonóa, og skol-
að morðvopnin; steikarhníf, hamar
og tinkrús, sem ekki reyndist not-
hæf í kjölfarið.
Að sögn Christine mátti rekja
atburðarásina til þess að vartappi
hafði sprungið þegar hún var
að strauja, og ekki í fyrsta sinn á
skömmum tíma. Til orðaskipta
kom á milli hennar og frúar
Lancelin og lauk þeim á þennan
blóðuga og banvæna veg.
Óbærilegur aðskilnaður
Nú, systurnar voru handteknar,
skildar að og settar á bak við lás og
slá. Að vera ekki í samvistum við
hvor aðra lagðist illa í þær, einkum
og sér í lagi Christine. Hún varð
nánast frávita og svo fór að yfir-
völd sáu aumur á henni og leyfðu
henni að hitta Léu. Christine
kastaði sér um háls systur sinnar
og mátti, að sögn þeirra sem urðu
vitni að því, leiða líkur að því að
samband þeirra hefði verið af kyn-
ferðislegum toga. Um það verður
ekki fullyrt eitt eða neitt hér.
Christine tekur æðiskast
Í júlí, 1933, tók Christine æðiskast
Í varðhaldi Christine og Léa voru skildar að eftir
handtökuna og olli það þeim verulegu hugarangri.
Í kímonóum Systurnar fóru úr blóðugum fatnaði eftir morðin og íklæddust kímonóum.
SAKAMÁL
SAMSTILLTAR SYSTUR