Fréttablaðið - 29.12.2018, Síða 16

Fréttablaðið - 29.12.2018, Síða 16
ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS Í kvöld verður kunngjört hvern Samtök íþróttafréttamanna völdu sem Íþróttamann ársins 2018. Þetta er í 63. sinn sem Íþróttamaður ársins er valinn. Auk þess verða lið og þjálfari ársins útnefnd. Íþróttamaður ársins 2017, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, er ekki á topp tíu listanum að þessu sinni. Sömu sögu er að segja af Aroni Ein- ari Gunnarssyni sem lenti í 2. sæti í kjörinu í fyrra. Ólafía var sjötta konan og fyrsti kylfingurinn sem var valin Íþróttamaður ársins þegar hún tók við styttunni góðu í fyrra. Tveir af þeim tíu íþróttamönnum sem koma til greina í kvöld hafa hlotið sæmdarheitið Íþróttamaður ársins áður. Guðjón Valur Sigurðs- son var valinn Íþróttamaður ársins 2006 og Gylfi Þór Sigurðsson 2013 og 2016. Guðjón Valur er á meðal tíu efstu í kjörinu í tíunda sinn. Gylfi hefur átta sinnum verið meðal tíu efstu, þar af síðustu sjö ár. Sara Björk Gunnarsdóttir er á meðal tíu efstu í sjöunda sinn. Engin kona hefur verið oftar á listanum en Sara. Guðjón Valur er aldursforsetinn á listanum að þessu sinni. Hann er 39 ára. Frjálsíþróttakonan Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir er yngst á listanum en hún fagnaði 17 ára afmæli sínu á aðfangadag. Guðbjörg Jóna er í fyrsta sinn á meðal tíu efstu líkt og kylfingur- inn Haraldur Franklín Magnús og fimleika- m a ð u r i n n Va l g a r ð Reinhardsson. Sá síðast- nefndi er aðeins annar fimleikamaðurinn sem kemst á listann. Rúnar Alexandersson var fimm sinnum á meðal tíu efstu á sínum tíma. Að þessu sinni eru fjórir fótboltamenn á listanum. Frjálsar íþróttir, handbolti, golf, kraftlyftingar, körfu- bolti og fimleikar eiga einn fulltrúa á list- anum hver íþrótt. Lið og þjálfari árs- ins verða valin í sjö- unda sinn. Karlalandsliðið í fótbolta, sem hefur fjórum sinnum orðið fyrir valinu, kemur ekki til greina að þessu sinni. Karlalið ÍBV í handbolta, kvenna- landsliðið í hópfimleikum og landslið Íslands í golfi sem varð Evrópumeistari í blönduðum liðum eru tilnefnd sem lið ársins. Kvennalands- liðið í hópfimleikum varð fyrst allra til að hljóta þá viðurkenn- ingu árið 2012. Enginn af þeim þremur sem eru til- nefndir sem þjálfari ársins að þessu sinni hafa hlotið sæmdar- heitið áður. Arnar Pétursson, Kristján Andrésson og Þor- steinn Halldórsson koma til greina sem þjálfari ársins. Útsending frá hófi Íþróttamanns ársins hefst á RÚV klukkan 19.40 í kvöld. ingvithor@frettabladid.is Íþróttamaður ársins útnefndur í 63. sinn í kvöld Þessi eru tilnefnd Íþróttamaður ársins Alfreð Finnbogason, fótbolti Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, frjálsar íþróttir Guðjón Valur Sigurðsson, hand- bolti Gylfi Þór Sigurðsson, fótbolti Haraldur Franklín Magnús, golf Jóhann Berg Guðmundsson, fótbolti Júlían J.K. Jóhannsson, kraft- lyftingar Martin Hermannsson, körfubolti Sara Björk Gunnarsdóttir, fótbolti Valgarð Reinhardsson, fimleikar Lið ársins Karlalið ÍBV í handbolta Kvennalandslið Íslands í hópfim- leikum Landslið Íslands í golfi Þjálfari ársins Arnar Pétursson Kristján Andrésson Þorsteinn Halldórsson Björn Daníel aftur til FH FÓTBOLTI Björn Daníel Sverrisson er genginn í raðir FH á ný eftir nokkur ár í atvinnumennsku erlendis. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við FH sem endaði í 5. sæti Pepsi- deildarinnar á síðasta tímabili. Björn Daníel, sem er 28 ára, lék síðast með AGF í Danmörku en fékk sig lausan undan samningi þar. Hann er þriðji leikmaðurinn sem FH fær eftir að tímabilinu lauk. Áður voru varnarmennirnir Guð- mann Þórisson og Brynjar Ásgeir Guðmundsson komnir til Fimleika- félagsins. Allir þessir þrír leikmenn eiga það sameiginlegt að hafa áður leikið með FH. Björn Daníel byrjaði að spila með FH 2008 og lék með liðinu til 2013. Hann varð þrisvar sinnum Íslands- meistari með FH og einu sinni bik- armeistari. Björn Daníel skoraði 32 mörk í 108 leikjum með FH í efstu deild. Hann var valinn besti leik- maður Pepsi-deildarinnar 2013. Eftir það tímabil gekk hann til liðs við Viking í Noregi. – iþs Björn Daníel er kominn aftur á heimaslóðir. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR HANDBOLTI Íslenska karlalands- liðið í handbolta spilaði sinn fyrsta æfingaleik í undirbúningi sínum fyrir heimsmeistaramótið sem hefst um miðjan janúar þegar liðið fékk Aron Kristjánsson og lærisveina hans hjá Barein í heimsókn í Laug- ardalshöllina í gærkvöldi. Íslenska liðið sýndi mátt sinn og megin þá sérstaklega í varnarleikn- um í upphafi beggja hálfleikja. Þá einkum og sér í lagi í upphafi síðari hálfleiks. Markahæstu leikmenn íslenska liðsins í þessum leik bera merki þess hversu öflugur varnar- leikurinn var, en Óðinn Þór Rík- harðsson var markahæstur með átta mörk og Stefán Rafn Sigurmannsson kom næstur með sjö mörk. Lunginn úr þessum mörkum kom eftir hraða- upphlaup. „Ég var ánægður með hvernig við byrjuðum leikinn og við vorum öflugir í varnarleiknum framan af fyrri hálfleik. Þá slaknaði aðeins á klónni hjá okkur og við fengum á okkur nokkrar klaufalegar brott- vísanir sem var ekki gott,“ sagði Guðmundur Guðmundsson þjálfari íslenska liðsins í samtali við Frétta- blaðið eftir leikinn. „Við tókum okkur hins vegar saman í andlitinu og mættum sterk- ari til leiks inn í seinni hálfleikinn og þann tíma sem við stóðum vörn- ina almennilega gerðum við það mjög vel. Vegna þess hvernig leik- urinn þróaðist þar sem við fengum fáar uppstilltar sóknir ákváðum við að skipta leikstjórnandastöðunni á milli Gísla Þorgeirs Kristjánssonar og Hauks Þrastarsonar í þessum leik og Janus Daði Smárason mun spila stórt hlutverk í leiknum á sunnu- daginn í staðinn,“ sagði þjálfarinn enn fremur. „Ég var ánægður með innkomu Óðins Þórs Ríkharðssonar og Heimis Óla Heimissonar í þennan leik og þeir skiluðu hlutverki sínu með miklum sóma. Mér fannst helst skorta markvörslu en annars var ég sáttur,“ sagði hann að lokum. hjovraro@frettabladid.is Sýndu sparihliðarnar á köflum Tveir góðir kaflar í upphafi hálfleikjanna voru nóg til þess að Ísland færi með sannfærandi 36-24 sigur af hólmi þegar það mætti Barein í vináttulandsleik í gær. Öflug vörn og góð hraðaupphlaup skópu sigurinn. Óðinn Þór Ríkharðsson var markahæstur í íslenska liðinu í sigrinum á Barein með átta mörk. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Vináttulandsleikur Ísland 36-24 Barein (15-13) Mörk Íslands: Óðinn Þór Ríkharðs- son 8, Stefán Rafn Sigurmannsson 7, Heimir Óli Heimisson 5, Ómar Ingi Magnússon 4, Rúnar Kárason 3, Aron Pálmarsson 2, Aron Rafn Eð- varðsson 1, Gísli Þorgeir Kristjáns- son 1, Ágúst Birgisson 1, Arnar Birkir Hálfdánsson 1, Elvar Örn Jónsson 1, Ólafur Gústafsson 1, Haukur Þrastarson 1. Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 6/1, Björgvin Páll Gústavsson 4. 2 9 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT Sverre stýrði Akureyri í síðasta sinn þegar liðið vann Selfoss á útivelli 16. desember. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Sverre hættur með Akureyri HANDBOLTI Sverre Jakobsson er hætt- ur sem þjálfari Akureyrar í Olís-deild karla. Félagið sendi frá sér yfirlýsingu þess efnis í gærkvöldi. Akureyri hefur verið á fínni sigl- ingu að undanförnu og fengið fimm stig í síðustu fjórum leikjum sínum. Liðið er í 10. sæti deildarinnar með átta stig, einu stigi frá fallsæti. Fyrsti leikur Akureyrar á nýju ári er gegn Haukum 2. febrúar. Í yfirlýsingunni frá Akureyri segir að leit að nýjum þjálfara standi yfir. Akureyringar vonast til að henni verði lokið 2. janúar þegar æfingar hefjast á ný eftir jólafrí. Geir Sveinsson hefur verið orðað- ur við þjálfarastöðuna hjá Akureyri. Hann þjálfaði síðast íslenska karla- landsliðið um tveggja ára skeið. Sverre hefur verið í stóru hlut- verki hjá Akureyri á undanförnum árum, fyrst sem leikmaður og svo sem þjálfari. Undir hans stjórn vann liðið Grill 66 deildina á síðasta tíma- bili. - iþs 2 9 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :2 1 F B 0 9 6 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 E B -E 6 8 4 2 1 E B -E 5 4 8 2 1 E B -E 4 0 C 2 1 E B -E 2 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 9 6 s _ 2 8 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.