Fréttablaðið - 29.12.2018, Blaðsíða 36
Fjölbreyttir
tímar, námskeið,
dans, jóga og
margt skemmti-
legt er í boði hjá
Reebok Fitness.
MYNDIR/SMÁRI
ÞRASTARSON
Við gerum okkur
vel grein fyrir því
að fjölbreytnin skiptir
miklu máli þegar kemur
að líkamsrækt og að allir
finni eitthvað við sitt
hæfi.
Á rúmu ári hefur líkams-ræktarkeðjan Reebok Fitness opnað tvær nýjar stöðvar og
þar með hafa viðskiptavinir hennar
aðgang að átta stöðvum og þremur
sundlaugum fyrir aðeins 6.540 kr. á
mánuði án bindingar, segir Katrín
Eyvindsdóttir, verkefnastjóri hjá
Reebok Fitness.
„Við bjóðum upp á fjölbreytta
hóptímatöflu og úrval af námskeið-
um. Við gerum okkur vel grein fyrir
því að fjölbreytnin skiptir miklu
máli þegar kemur að líkamsrækt
og að allir finni eitthvað við sitt
hæfi. Til að mynda erum við með
frábæra tíma í heitum sal á borð
við Hot Body, Hot Yoga og fleiri
frábæra tíma þar sem öllum er
frjálst að mæta. Fyrir þá sem vilja
meiri hraða er tilvalið að skella
sér í hjólatíma, zumba tíma eða í
lyftingatíma eins og Body Pump
sem er mjög vinsælt.“
Fjölbreytt námskeið
Námskeiðin hefjast á nýju ári
7. janúar og verður eins og áður
boðið upp á mjög fjölbreytt
námskeið. „Þau eru bæði ætluð
byrjendum og þeim sem vilja meiri
áskorun. Ein af nýjungunum er
ExtraFit aðhaldsnámskeið fyrir
karla og konur þar sem þátttak-
endur geta mætt þrisvar sinnum í
viku og valið á milli fimm stöðva
og mismunandi tímasetninga, allt
eftir því sem hentar hverju sinni.
Auk þessa erum við með krakkaFit,
unglingaFit, mömmuCrossFit, yoga
60 ára, karla yoga, trampolín fjör,
Pilates, golf fitness og hot power
toning. Þar að auki verða fjölmörg
önnur námskeið í boði eins og
Fitness Box, Breyttur lífsstíll með
Magga og yoga/gong námskeið. Að
lokum má nefna að við hófum sam-
starf við Dans Brynju Péturs sem
verður með spennandi námskeið
á nýju ári í þremur stöðva okkar til
að byrja með.“
Vel tækjum búnar
Tækjasalir Reebok Fitness eru mjög
vel tækjum búnir, segir Katrín, og
bendir á að þjálfarar bjóði upp á
tækjakennslu sem mælt sé með.
„Jafnframt bendum við viðskipta-
vinum á að skrá sig á námskeið
undir leiðsögn þjálfara sem getur
verið gott þegar maður er að koma
sér af stað. Fjölbreytnin skiptir
miklu máli og mörgum þykir gott
að brjóta upp vikuna með góðum
tíma undir leiðsögn þjálfara. Við
gerum auðvitað okkar besta til að
taka vel á móti öllum og vitum að
það getur verið áskorun að koma
sér af stað í fyrsta sinn í ræktinni
eða eftir nokkra hvíld.“
Einvala lið þjálfara
Hún hvetur alla til að koma og
prufa Reebok Fitness enda hreinar
og flottar stöðvar, vel útbúnar
tækjum og með einvala lið þjálfara
og starfsfólks að hennar sögn. „Við
erum einnig afar stolt af tímunum
í innrauðu sölunum okkar í Lamb-
haga og Faxafeni. Þeir tímar hafa
verið vel sóttir og fólk kann vel
að meta þá nýjung. Í nokkrum
stöðvum Reebok Fitness er einnig
boðið upp á gufubað, heitan og
kaldan pott auk barnagæslu. Svo
nú er málið að drífa sig af stað.
Hreyfing er ekki bara góð fyrir
líkamlega heilsu heldur andlega
líka. Rannsóknir sýna að líkaminn
losar vellíðunar- og verkjastillandi
endorfín þegar við hreyfum okkur.
Því er um að gera að vippa sér úr
sparifötunum og í æfingagallann.“
Nánari upplýsingar á www.reebok-
fitness.is.
Hollur lífsstíll á
frábæru verði
Viðskiptavinir Reebok Fitness hafa aðgang að átta glæsi-
legum stöðvum og þremur sundlaugum fyrir aðeins
6.540 krónur á mánuði. Mjög fjölbreytt námskeið og
skemmtilegir tímar eru í boði við allra hæfi og stöðvarnar
eru vel tækjum búnar með einvala liði þjálfara.
Hóptímarnir einkennast af miklu fjöri, svita og gleði.
Það er vel tekið á því í fallegri aðstöðu Reebok Fitness.
Katrín Eyvinds-
dóttir, verkefna-
stjóri hjá Reebok
Fitness, fyrir
miðju í neðri
röð. Með henni
á myndinni eru
yfirþjálfarar
CrossFit Kötlu
og tveir hóp-
tímakennarar.
MYND/SIGTRYGGUR
ARI
8 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U RHEILSA
2
9
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
E
C
-4
E
3
4
2
1
E
C
-4
C
F
8
2
1
E
C
-4
B
B
C
2
1
E
C
-4
A
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
9
6
s
_
2
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K