Fréttablaðið - 29.12.2018, Side 68
Ný rannsókn bendir til að léttar
strokur geti dregið úr sársaukafull-
um upplifunum hjá ungbörnum.
Svo virðist sem strokur dragi úr
heilavirkni sem tengist sársauka.
Greint er frá rannsókninni á
heilsuvef BBC-fréttastofunnar.
Vísindamenn við háskólann í
Oxford og Liverpool John Moores
háskólann könnuðu heilavirkni 32
ungbarna meðan tekin var blóð-
prufa úr þeim. Helmingi barnanna
var strokið með mjúkum bursta
fyrir sprautuna og sýndi heili þeirra
40 prósent minni sársaukavirkni.
Einn rannsakendanna, prófessor
Rebeccah Slater, sagði: „Snerting
virðist hafa verkjastillandi áhrif án
aukaverkana.“
Niðurstöður sýndu að ákjósan-
legast væri að strjúka með hrað-
anum 3 cm á sekúndu. „Það virðist
sem foreldrar strjúki börnum
sínum ósjálfrátt á þessum hraða.“
Strokur virkja vissar skynfrumur
í húðinni sem hefur áður verið sýnt
fram á að dragi úr sársauka í full-
orðnum. Ekki var áður vitað hvort
ungbörn sýndu sömu viðbrögð eða
hvort þessi eiginleiki þróaðist með
tímanum.
Prófessor Slater taldi rann-
sóknina, sem birtist í Current
Biology, geta útskýrt árangur ung-
barnanudds og kengúrumeðferðar
þar sem fyrirburum er haldið
upp að berri húð foreldris til að
auka tengslamyndun og draga úr
sársauka. „Ef við getum betur skilið
taugalíffræðilegar undirstöður
meðferða á borð við ungbarna-
nudd getum við gefið foreldrum
betri leiðbeiningar um hvernig
best sé að hugga börnin sín.“ Slater
segir fyrri rannsóknir hafa sýnt að
snerting geti aukið tengslamyndun,
minnkað streitu bæði hjá foreldri
og barni og geti stytt sjúkrahús-
dvöl.
Vísindamennirnir stefna nú að
því að endurtaka rannsóknina með
fyrirburum.
Strokur lina sársauka
Rólegar strokur draga
úr vanlíðan ungbarna.
Í nýlegri grein sem birtist í rit-rýnda læknatímaritinu JAMA Facial Plastic Surgery sögðu
lýtalæknar að sjúklingar leituðu til
þeirra í auknum mæli með sjálfs-
myndir sem hefur verið breytt af
myndasíum Snapchat og Insta-
gram og bæðu um aðgerðir til að
líkjast breyttu myndinni.
Lýtalæknarnir kalla þetta
„Snapchat líkamsskynjunarrösk-
un“ og þeir vilja meina að þessar
myndasíur hafi mjög slæm áhrif á
sjálfsálit fólks. Forritið býður upp
á alls kyns ólíkar síur sem nota
gervigreind til að breyta myndum
á ýmsa ólíka vegu, en sumar síur
láta húðina virðast sléttari, augn-
hárin lengri og beinabygginguna
meira aðlaðandi.
Læknarnir segja að þetta geti
valdið líkamsskynjunarröskun,
geðröskun sem leiðir til áráttu-
kenndar hegðunar eins og óhóf-
legra fegrunaraðgerða, þráhyggju
yfir líkamsgöllum sem eru ekki til
staðar og félagslegrar einangrunar.
Læknarnir segja að þetta sé sér-
stakt áhyggjuefni því að síurnar
skapi algjörlega óraunhæfar hug-
myndir um fegurð og mái út skilin
milli veruleika og ímyndunar í
huga þessara sjúklinga.
Samkvæmt greininni fær meira
en helmingur lýtalækna til sín
sjúklinga sem vilja lýtaaðgerð til
að líta betur út á sjálfsmyndunum
og núorðið er algengara að fólk
sækist eftir fegrunaraðgerðum sem
hafa svipuð áhrif og myndasíur.
Snapchat breytir
lýtaaðgerðum
Myndasíur geta haft slæm áhrif.
Íþróttavöruverslun
Sundaborg 1 Sími 553 0700
NÆG BÍLASTÆÐI VIÐ VERSLUN Fylgdu okkur á
Opnunartími
Virka daga 11-18
Laugardaga 11-16
Öll helstu merkin
á einum stað
24 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U RHEILSA
2
9
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
E
C
-0
9
1
4
2
1
E
C
-0
7
D
8
2
1
E
C
-0
6
9
C
2
1
E
C
-0
5
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
9
6
s
_
2
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K