Fréttablaðið - 29.12.2018, Page 70
Stefán Karl Stefánsson
Við gerum okkur ekki grein
fyrir hversu ógeðslega stór per-
sónuleiki Stefán Karl var á heims-
vísu. Heilu internetsamfélögin
fóru á hliðina við að syrgja
Robbie Rotten. Svo var hann bara
stórkostlegur baráttumaður fyrir
bæði börn og náttúru.
ÁLITSGJAFAR: DÓMNEFND: Gísli Ásgeirsson, þýðandi, Linda Blöndal, dagskrárgerðarkona á Hringbraut, Hólmfríður Berentsdóttir, hjúkrunarfræðingur og laganemi, Markús Þórhallsson, sagn-
fræðingur og dagskrárgerðarmaður á Útvarpi Sögu, Valur Grettisson, ritstjóri Reykjavik Grapevine, Ellý Ármanns, myndlistar- og spákona, Hjörvar Hafliðason, dagskrárgerðarmaður á FM957,
Hrafn Jónsson, kvikmyndagerðarmaður og pistlahöfundur, Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir kynjafræðingur.
Miklu meira á Fréttablaðið.is þar
sem hægt er að lesa allt um allar
hinar hetjurnar og skúrkana sem
settu svip á árið.
Hetjur &
skúrkar
ársins
Skúrkar og hetjur eru ómissandi í allar góðar sögur. Enginn skortur var á marglaga, breyskum og heilsteyptum persónum í þeim hádramatíska kafla
Íslandssögunnar sem er að ljúka.
Fréttablaðið fékk fjölbreyttan hóp
fólks til þess að skilja hafrana frá
sauðunum og draga í tvo dilka. Til-
nefna hetjur og skúrka ársins 2018.
Bára er hetjan mín. Elska þessa konu. Þvílíkt
hugrekki. Áfram Bára.
Uppljóstrarinn á Klaustri, sem fórnaði
leikæfingu og reyndi á upptökuminni aldraðs
farsíma til að skrásetja einlægar ölvunarsam-
ræður þingmanna sem fórnuðu þingfundi
fyrir þessa samverustund. Til að eyða sam-
særisrausi Klausturliða, steig hún fram, þrátt
fyrir að vita hvað það myndi kosta hana. Bára
er hetja.
Einhver sem hrærir svona ótrúlega vel uppi
í stjórnmálamönnum hlýtur að vera að gera
eitthvað rétt.
Bára fékk þó einnig tilnefningar sem skúrkur
ársins, að vísu á nokkuð írónískum for-
sendum:
Útsendari alþjóðlegra samtaka sem vilja
koma höggi á formann Miðflokksins og tókst
eftir umfangsmikinn undirbúning og skipulag
að hljóðrita einkasamtöl formannsins við
flokksfélaga sína og vildarvini á þingi þar sem
þeir sátu hýrðir víns af tári og uggðu ekki að
sér. Með þessu er vegið að friðhelgi, persónu-
vernd og lýðræði í landinu og dregin upp afar
fordómafull mynd af formanninum. Bára er
skúrkur.
1. sæti
2. sæti
3. sæti
2. sæti
3. sæti
1. sæti
Minning um hetju
Bára Halldórsdóttir
öryrki og hljóðritari
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
alþingismaður
Hannes Halldórsson
landsliðsmarkvörður
Landsliðsmarkvörður knatt-
spyrnuliðs Íslands. Þarf ég að segja
meira?
Varði víti frá Messi.
Hetja ársins er fjögurra þingmanna maki
þar sem gaggandi óminnishegrarnir fjórir
úr Miðflokknum rústuðu mannjöfnuði
skúrka ársins. Gunnar Bragi Sveinsson og
Sigmundur Davíð fengu flestar tilnefningar
en Sigmundur hafði betur og fer því fyrir
skúrkagenginu 2018.
Þegar maður hélt að mistökin í lífinu
gætu ekki orðið stærri en að sprengja fyrstu
sprenginguna í Vaðlaheiðargöngunum og
standa upp í miðju sjónvarpsviðtali þá fer
maðurinn á barinn og etur einum af sínum
dyggustu félögum á foraðið með því að byrja
allar sögurnar og biðja hann um að klára þær.
Okkar eigin sveitadurgslegi Bond-skúrkur. Í
hvert skipti sem við höldum að við séum laus
við hann sprettur hann aftur fram, tvíefldur í
nýjum og enn ömurlegri skandal.
Gunnar Bragi var meðal annars sagður
holdgervingur Framsóknarmannsins sem
skítnýtir aðstöðu sína innan flokksins.
maðurinn sem blekkti heimsbyggðina –
sagðist vera femínisti og heimurinn keypti
það, meira að segja Hollywood-stjörnurnar
tístu um hvað hann VAR æðislegur.
Lilja Alfreðsdóttir
mennta- og menningar-
málaráðherra
Sýndi vasklega framgöngu í sjón-
varpsviðtali eftir Klausturfokkið.
Sagði ofbeldismönnum sannleik-
ann – þeir fara ekki með dagskrár-
valdið. Vonandi rætist það.
Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri
Borgarstjóri hefur því miður
klúðrað alltof mörgu þetta árið til
að sleppa við að komast í skúrka-
flokkinn; hæst ber auðvitað yfir-
keyrslur í nokkrum verkefnum, að
hann skuli nánast alltaf hlaupa í
felur þegar svara þarf fyrir erfið mál
og birtast svo eins og sprellikarl
þegar fagnað er góðum árangri.
Málefni Reykjavíkur eru ein
sorgarsaga.
Kristján Loftsson
útgerðarmaður
Er freki ríki kallinn sem þolir að
tapa tugum milljóna á hverju ári í
tilgangslausar veiðar á langreyði,
einkum til að gefa umhverfis-
verndarsinnum og dýravinum langt
nef og sýna landsmönnum að sá
sem á nógan pening fær alltaf sínu
framgengt. Kristjáni er skítsama þó
enginn vilji kaupa kjötið. Kristján er
fulltrúi möntrunnar „ég á þetta, ég
má þetta“. Kristján er skúrkur.
Þórarinn
Þórarinsson
thorarinn@frettabladid.is
2 9 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
E
C
-1
C
D
4
2
1
E
C
-1
B
9
8
2
1
E
C
-1
A
5
C
2
1
E
C
-1
9
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
9
6
s
_
2
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K