Fréttablaðið - 03.01.2019, Page 38
E ins og síðustu ár verða ofurhetjur og stjörnu-stríð frek til fjörsins á bíóárinu 2019 en kunn-uglegar teiknimynda-söguhetjur munu einnig
gera sig gildandi ásamt hryllilegum
vágestum úr hugarfylgsnum hroll-
vekjumeistarans Stephens King.
Með fullri virðingu fyrir Star Wars
er Marvel-myndin Avengers: End-
game líklega sú mynd sem beðið er
með mestri eftirvæntingu. Myndin
er, eins og titillinn ber með sér,
lokakafli The Avengers-mynda-
bálksins með þá Captain America
og Iron Man í forgrunni.
Áhorfendur skildu við sam-
einuð hetjugengi The Avengers og
Guard ians of the Galaxy í verulega
vondum málum í fyrra í lok Aveng-
ers: Infinity War þegar drjúgur hluti
þeirra, ásamt hálfri heimsbyggðinni,
varð að dufti með einum fingur-
smelli þursins Thanosar.
Biðin eftir framhaldinu hefur
reynt verulega á þanþol tauga
Marvel- aðdáenda en sem betur fer
verður endataflið frumsýnt í lok
apríl og þá kemur í ljós hvort Doct-
or Strange hitti á einu réttu niður-
stöðuna áður en hann gufaði upp og
þá um leið hvaða hetjur eiga aftur-
kvæmt eftir ósigurinn fyrir Thanosi.
Níundi kafli Geimgenglasögu
Biðin eftir níunda kafla stjörnu-
stríðssögu Geimgenglafjölskyld-
unnar verður öllu lengri en venju
samkvæmt verður Star Wars:
Episode IX jólamynd. Myndin
hefur ekki enn fengið undirtitil en
hún markar endalok þríleiksins sem
leikstjórinn J.J. Abrams hóf með
The Force Awakens 2015. Abrams
bindur sjálfur endahnútinn á darr-
aðardans þeirra Rey og Kylo Ren á
mörkum góðs og ills eftir stórgóðan
en mjög umdeildan millikafla, The
Last Jedi, sem Rian Johnson bauð
upp á um jólin 2017.
Meira Marvel
Marvel gefur ekkert
eftir á þessu ári en
auk Endgame býður
m y n d a s ö g u r i s i n n
upp á Captain Marvel
og nýja Spider-Man
mynd, Far from
Home. Köngulóar-
maðurinn verður
su m a r my n d e n
Brie Larson ríður
á ofurhetjuvaðið í
byrjun mars sem
herflugmaðurinn
Carol Danvers
sem breytist í
o f u r h e t j u n a
Captain Marvel.
Myndarinnar er
ekki síst beðið
með eftirvænt-
ingu þar sem
talið er víst að
í henni leynist
tengingar yfir í
Endgame og mögulega
vísbendingar um hvers er að vænta
í þeirri mynd.
Viddi og Bósi snúa aftur
Tölvuteiknimyndirnar sem
kenndar eru við Toy Story
og persónur þeirra eru með
þeim allra ástsælustu í
þeirri deild síðustu ára-
tugi. Toy Story 3 kom út
2010 og almennt var talið
að með þeim frábæra
kafla væri ævin-
týrum Vidda og
Bósa ljósárs lokið. En nú mæta þeir
aftur til leiks ásamt gömlum kunn-
ingjum og einhverjum nýjum og
flest bendir til þess að Pixar hafi enn
eina ferðina tekist að galdra fram
pottþétt og fallegt ævintýri.
Þetta er (ekki alveg) nóg
Prinsessuævintýrið Frozen, um þær
systur Elsu og Önnu, sló eftirminni-
lega í gegn fyrir fimm árum og þær
systur og lagið hennar Elsu, Let it
go (Þetta er nóg) njóta enn umtals-
verðra vinsælda sem verða líklega
endurnýjaðar hressilega síðla árs
með Frozen 2. Allir sem komu
að fyrri myndinni endurtaka
leikinn þannig að ef hand-
ritið er gott ætti ekkert að
geta farið úrskeiðis.
Simbi heillar á ný
Ljónsunginn Simbi
heillaði börn og
fullorðna 1994 í
einni allra bestu
Disney-teiknimynd
síðari tíma, The Lion
King. Disney freistast
nú til þess að læsa
klónum í nýjar
kynslóðir áhorf-
enda með tölvugerðri endurgerð
myndarinnar sem uppkomnir aðdá-
endur fyrstu myndarinnar bíða eftir
í ofvæni.
Meiri trúðslæti
Hrollvekjuhöfundurinn Stephen
King sagði söguna um óværuna,
trúðinn Pennywise, á tveimur tíma-
bilum í hinni hnausþykku bók It.
Annars vegar tókst hópur unglinga
á við skrímslið og hafði betur en þó
ekki endanlega þar sem Pennywise
skaut aftur upp sínum fúla kolli
þegar þau voru fullorðin og loka-
uppgjörið fór fram.
Fyrri hluti sögunnar sló í gegn í
velheppnuðum hrolli fyrir tveimur
árum og nú er komið að því að upp-
komnar hetjur fyrri myndarinnar
horfist á ný í augu við ógnvald æsku
sinnar. Bill Skarsgård heldur áfram
að djöflast í gervi trúðsins en James
McAvoy og Jessica Chastain bregða
sér í hlutverk fullorðinna Bills og
Beverly sem fara fyrir trúðabörn-
unum.
Úr sjónvarpi í bíó
Bíóárið 2019 býður góðu heilli upp
á aðeins meira en ofurhetjur, geisla-
sverð, talandi leikföng og hráefni í
martraðir og sjálfsagt munu margir
fegnir drífa sig til Jórvíkurskíris til
fundar við persónur hinna vinsælu
sjónvarpsþátta Downton Abbey
þegar samnefnd kvikmynd kemur
í bíó í september.
Drjúgur hluti persóna og leik-
enda úr þáttunum láta að sér kveða í
myndinni ásamt einhverjum nýjum
andlitum. Michael Engler leikstýrir
en Hugh Bonneville, Michelle
Dockery, Maggie Smith, Elizabeth
McGovern, Imelda Staunton og
Geraldine James eru í helstu hlut-
verkum. thorarinn@frettabladid.is
Disney-árið mikla 2019
Disney-samsteypan mun varla þurfa að senda frá sér neikvæð-
ar afkomuviðvaranir á þessu ári. Fyrirtækið á flestar þeirra
bíómynda sem beðið er með mestri eftirvæntingu 2019, þar á
meðal Star Wars: Episode IX og Avengers: Endgame.
Spurningum um Rey og Kylo verður
vonandi svarað í desember.
Allt bendir til þess að Pixar muni aftur töfra fram
heillandi ævintýri um Vidda, Bósa og félaga.
Elsa er ekki alveg tilbúin til
þess að sleppa takinu.
Ófétið Pennywise gerir aðra
atlögu í öðrum hluta It.
Eftir langa bið er bíómynd um
Downton Abbey á leiðinni.
Marvel-hetjurnar voru í vondum málum í lok síðustu myndar, Infinity War, og sjálfsagt munu hörmungarnar halda áfram í Endgame og hætt við að einhverjir muni lúta í gras í þeim hildarleik.
3 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R30 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
BÍÓ
0
3
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:4
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
E
E
-9
9
C
4
2
1
E
E
-9
8
8
8
2
1
E
E
-9
7
4
C
2
1
E
E
-9
6
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K