Fréttablaðið - 20.12.2018, Page 26

Fréttablaðið - 20.12.2018, Page 26
ÍR - Grindavík 76-101 ÍR: Gerald Robinson 23/12 fráköst, Justin Martin 18/7 fráköst, Hákon Örn Hjálmars- son 17, Sigurkarl Róbert Jóhannesson 10, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 6/9 fráköst/4 varin skot, Skúli Kristjánsson 2. Grindavík: Lewis Clinch Jr. 27/6 fráköst, Sig- tryggur Arnar Björnsson 19, Tiegbe Bamba 18/14 fráköst, Jordy Kuiper 14, Ólafur Ólafs- son 12/8 fráköst, Kristófer Breki Gylfason 9, Jóhann Árni Ólafsson 2. Stjarnan - Haukar 100-89 Stjarnan: Antti Kanervo 27, Ægir Þór Stein- arsson 19/8 stoðsendingar, Hlynur Elías Bæringsson 18/8 fráköst/5 stoðsendingar, Tómas Þórður Hilmarsson 13/6 fráköst, Collin Pryor 10/8 fráköst, Arnþór Freyr Guð- mundsson 8, Dúi Þór Jónsson 5. Haukar: Daði Lár Jónsson 24/7 fráköst/6 stoðsendingar, Kristinn Marinósson 20, Hjálmar Stefánsson 10/6 fráköst, Haukur Óskarsson 9/5 stoðsendingar, Hilmar Smári Henningsson 9/5 stoðsendingar, Kristinn Jónasson 8/6 fráköst, Arnór Bjarki Ívarsson 5, Matic Macek 4. Efri Tindastóll 18 Njarðvík 18 Keflavík 16 Stjarnan 14 KR 12 Grindavík 10 Neðri ÍR 8 Þór Þ. 8 Haukar 8 Valur 6 Skallagrímur 4 Breiðablik 2 Nýjast Domino’s-deild karla Stjarnan - Valur 73-84 Stjarnan: Danielle Victoria Rodriguez 31/9 fráköst/7 stoðsendingar, Bríet Sif Hinriks- dóttir 18, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 10, Jenný Harðardóttir 8, Ragnheiður Benónís- dóttir 4/9 fráköst, Sólrún Sæmundsdóttir 2. Valur: Helena Sverrisdóttir 24/11 frá- köst/10 stoðsendingar, Heather Butler 17/7 fráköst, Hallveig Jónsdóttir 11/6 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 8, Simona Podes- vova 7/6 fráköst, Dagbjört Samúelsdóttir 6, Ásta Júlía Grímsdóttir 6, Dagbjört Dögg Karlsdóttir 3, Kristín María Matthíasdóttir 2. Snæfell - Haukar 75-58 Snæfell: Kristen McCarthy 38/12 fráköst/6 stolnir, Gunnhildur Gunnarsdóttir 16/8 frá- köst, Katarina Matijevic 13/9 fráköst, Ange- lika Kowalska 6/5 stoðsendingar, Berglind Gunnarsdóttir 2. Haukar: LeLe Hardy 21/17 fráköst/5 stoð- sendingar, Rósa Björk Pétursdóttir 12, Eva Margrét Kristjánsdóttir 10/9 fráköst, Sigrún Björg Ólafsdóttir 9, Stefanía Ósk Ólafs- dóttir 4, Bríet Lilja Sigurðardóttir 2. Keflavík - Breiðablik 100-85 Keflavík: Brittanny Dinkins 29/13 frá- köst/10 stoðsendingar/5 stolnir, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 21/11 fráköst/4 varin skot, Irena Sól Jónsdóttir 13, Bryndís Guðmundsdóttir 12/10 fráköst, Erna Há- konardóttir 10, María Jónsdóttir 8, Embla Kristínardóttir 5, Katla Rún Garðarsdóttir 2. Breiðablik: Kelly Faris 29/15 fráköst, Sanja Orazovic 23/14 fráköst, Bryndís Hanna Hreinsdóttir 14, Þórdís Jóna Kristjánsdóttir 9, Björk Gunnarsdótir 8, Ragnheiður Björk Einarsdóttir 2. Skallagrímur - KR 74-81 Skallagrímur: Shequila Joseph 31/15 frá- köst, Maja Michalska 18/6 fráköst, Bryesha Blair 14/8 fráköst/10 stoðsendingar/5 stolnir, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 8/7 frá- köst, Ines Kerin 3. KR: Orla O’Reilly 26/10 fráköst/5 stoð- sendingar, Kiana Johnson 18/10 fráköst/10 stoðsendingar/7 stolnir, Unnur Tara Jónsdóttir 13/6 fráköst, Vilma Kesanen 8, Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir 8, Perla Jóhannsdóttir 8/5 stoðsendingar. Efri Keflavík 20 Snæfell 20 KR 20 Valur 14 Neðri Stjarnan 14 Skallagrím. 14 Haukar 6 Breiðablik 2 Dominos-deild kvenna Fara sigurreifar í jólafrí Valur sótti sigur í Garðabæinn í Domino’s-deild kvenna í gær og vann 73-84 sigur á Stjörnunni. Valskonur hafa unnið þrjá deildarleiki í röð og fjóra af síðustu fimm leikjum sínum. Með sigrinum í gær fór Valur upp fyrir Stjörnuna og í 4. sæti deildarinnar sem er nú komin í jólafrí. FRéttaBlaðið/ERNiR Handbolti Guðmundur Þórður Guðmundsson skar niður þann 28 leikmanna hóp, sem hann hefur skráð sem mögulega leikmenn fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramót- inu í handbolta karla sem fram fer í janúar, í 20 leikmanna æfingahóp. Guðmundur segir að taka þurfi stöðuna á þremur leikmönnum liðsins hvað meiðsli varðar og erf- iðast hafi verið að velja þá tvo leik- menn sem skipa munu stöðu vinstri hornamanns að þessu sinni. „Mesti hausverkurinn var klárlega að velja þá tvo leikmenn sem við ætluðum að hafa í vinstra horninu. Það var einkar erfitt að ákveða það að skilja Bjarka Má Elísson eftir og það var erfitt að tilkynna honum þá ákvörðun. Mér fannst hins vegar betra að taka þessa ákvörðun strax í stað þess að láta þá mæta til æfinga og bítast um stöðuna. Það sama á við um hægra hornið og markmanns- stöðuna,“ segir hann um valið. „Svo erum við að ganga í gegnum kynslóðaskipti og það er mikil uppstokkun í liðinu. Það tók nokk- urn tíma að finna út hvernig best væri að hafa hópinn. Gísli Þorgeir Kristjánsson, Haukur Þrastarson og Rúnar Kárason hafa verið að glíma við meiðsli undanfarið og við munum nota æfingarnar á komandi dögum og leikina milli jóla og nýárs til þess að meta stöðuna á þeim. Ég hef verið í töluverðum samskiptum við Alfreð Gíslason [þjálfara Kiel] um Gísla Þorgeir og hann hefur tjáð mér að málin séu í góðum far- vegi hjá Gísla,“ segir Guðmundur um stöðuna á hópnum. „Við höfum stuttan tíma til þess að undirbúa liðið og það bætir svo sannarlega ekki úr skák hversu seint deildirnar í Noregi og Svíþjóð klár- ast. Það er til að mynda bikarúrslita- leikur í Noregi 29. desember sem mér finnst fráleitt og mjög undar- legt að alþjóða handboltasam- bandið láti það viðgangast. Ég hef minni áhyggjur af sóknarleiknum og mun einblína meira á að fara yfir varnarleikinn í undirbúningnum. Við þurfum til að mynda að æfa það hvernig við verjumst sjö á móti sex sem er afbrigði sem Króatía og Makedónía hafa mikið beitt,“ segir hann. hjorvaro@frettabladid.is Nokkur spurningarmerki í þessum hóp vegna meiðsla Guðmundur Þórður og Gunnar Magnússon kynna hópinn. FRéttaBlaðið/EyÞóR Æfingahópurinn er þannig skipaður: Markmenn: Aron Rafn Eðvarsson Björgvin Páll Gústafsson Vinstra horn: Guðjón Valur Sigurðsson Stefán Rafn Sigurmannsson Vinstri skyttur: Aron Pálmarsson Daníel Þór Ingason Ólafur Guðmundsson Ólafur Gústafsson Miðjumenn: Elvar Örn Jónsson Gísli Þorgeir Kristjánsson Haukur Þrastarson Janus Daði Smárason Hægri skyttur: Ómar Ingi Magnússon Rúnar Kárason Arnar Birkir Hálfdánarson Hægra horn: Arnór Þór Gunnarsson Sigvaldi Guðjónsson línumenn: Arnar Freyr Arnarsson Ágúst Birgisson Ýmir Örn Gíslason Rúmar þrjár vikur eru í að Ísland hefji leik á heimsmeistaramótinu í handbolta karla. Liðið mætir þá Króatíu í fyrsta leik sínum á mótinu. Mynd er að komast á hverjir muni skipa hópinn. Mesti hausverkur- inn var að velja þá leikmenn sem við ætlum að hafa í vinstra horninu. Guðmundur Þórður Guðmundsson 2 0 . d e s e m b e r 2 0 1 8 F i m m t U d a G U r26 s p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð sport 2 0 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :4 2 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 D E -2 B 0 4 2 1 D E -2 9 C 8 2 1 D E -2 8 8 C 2 1 D E -2 7 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 1 9 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.