Fréttablaðið - 20.12.2018, Page 53
Bækur
Ljónið
HHH H
Hildur knútsdóttir
Útgefandi: JPV
Blaðsíður: 410
Stundum eru titlar á bókum mjög
gagnsæir og búa strax í fyrsta kafla til
tengingu við söguna og söguheiminn,
eitthvert reipi, vísbendingu eða veg-
vísi sem hægt er að halda sér í fyrstu
skrefin gegnum bókina. Þannig er því
ekki háttað með Ljónið því titillinn er
nánast jafn leyndardómsfullur þegar
nálgast lok bókar og í upphafi. En bara
nánast …
Sagan hefst í upphafi skólaárs þegar
Kría sest í þriðja bekk í MR, nýflutt frá
Akureyri. Hún er að byrja nýjan kafla
í lífinu eftir erfiðleika en höfuðborgin
tekur á móti henni með bros á vör og
hún eignast vini og verður ástfangin.
Gamalt sakamál skýtur upp kollinum
og dularfullur einstaklingur kemur
inn í líf hennar og skekkir heims-
myndina auk þess sem aðrar víddir
og óræð hætta eru öðru hvoru gefnar
lesandanum í skyn þó Kría sjálf fatti
ekkert lengi framan af, skemmtileg
frásagnaraðferð sem kinkar kolli til
hefðar unglingahryllingsmynda.
Lýsingarnar á lífi Kríu og vinkvenna
hennar eru að mörgu leyti raunsæis-
legar en þó er ýmislegt sem truflar þá
raunsæisskynjun. Kría á til dæmis ein-
elti að baki og hefur alltaf verið ein-
mana og það er eitthvað ólíklegt við
það hvernig hún heillar aðalstelpurn-
ar í árganginum áreynslulaust upp úr
skónum og verður vinkona þeirra eins
og ekkert sé. Einn af eftirsóttari strák-
unum í skólanum verður líka hrifinn
af henni OG er næs gæi sem ber virð-
ingu fyrir henni og þó Kría virðist vera
ágætis stelpa og örugglega mjög sæt
þá eru þessir átakalausu stórsigrar
aðeins of góðir til að virka sannir.
Þær vinkonurnar eiga líka alltaf nóg
af peningum og stunda kaffi- og veit-
ingahús grimmt. Í raunveruleikanum
vinna flestir krakkar með skóla til að
hafa efni á þess háttar lífsstíl en það
er hvergi minnst á að þessar stúlkur
geri það enda eiga
þær nóg með námið,
djammið og leyni-
lögreglustörfin.
Þetta eru samt
bara smáatriða-
hnýtingar því í heild
er Ljónið afskap-
lega vel skrifuð og
heillandi bók. Eink-
um er draugagangi
og yfirnáttúru
gerð vel skil og kalt
vatn aldrei langt frá skinni,
hvað þá hörundi í þeim lýsingum.
Sögusviðið er miðborg Reykjavíkur
enda fara þær stöllur varla upp fyrir
Klapparstíg í allri bókinni og borgin
fær í meðförum Hildar töfrandi blæ,
MR, Tjörnin og Hljómskálagarður-
inn eru rómantískir staðir þar sem
draumar rætast, ævintýrin gerast
og fegurð ríkir. Umhverfismál og
femínisma ber að sjálfsögðu á góma
enda mest knýjandi samfélagsmál
samtímans en í kringum þau ríkir
bjartsýni, verkefnin eru til þess að
leysa en ekki bogna undan skelfilegri
framtíðarsýn. Ráðgátan er spennandi
en aftur er aðeins of tilviljanakennt
hvernig hún verður á vegi vinkvenn-
anna. Það má hins vegar ekki gleyma
því við lesturinn að Ljónið er fyrsta
bókin í þríleik og lesendur eru skildir
eftir með svo margar vísbendingar og
mörgum spurningum ósvarað að það
er erfitt að þurfa að bíða næstu bókar
til næsta hausts. Á tímum Netflix og
hámhorfs er nánast ofurmannlegt að
gera þær kröfur til nokkurrar mann-
eskju þegar spennustigið er svona
hátt. En það er líka gaman að hlakka
til. Brynhildur Björnsdóttir
Niðurstaða: Ljónið er vel skrifuð,
heillandi saga um unglingsstúlkur í
reykvískum samtíma með dular-
fullum og spennandi undirtóni.
Reimleikar og
rómantík í Reykjavík
Hljómsveitin Umbra heldur árlega jólatón-
leika sína í kvöld, 20. desember, klukkan 20
í Háteigskirkju. Yfirskrift þeirra er Sólhvörf
og þar mun ríkja kyrrð og hugljúf stemn-
ing við kertaljós, að sögn kvennanna sem
sveitina skipa. Á efnisskránni verða meðal
annars sjaldheyrð jólalög frá miðöldum,
bæði íslensk og erlend og öll í útsetningum
Umbru. Mörg laganna er að finna á glænýrri
jólaplötu hópsins, Sólhvörf, sem var tekin
upp í Laugarneskirkju í upphafi árs og er
nýkomin út hjá Dimmu. Nafn útgáfufélagsins
er í anda Umbru og plötunnar því „í myrkr-
inu má nefnilega hvílast og endurnærast og á
vetrarsólstöðum má að ósekju líta til þeirrar
birtu og vonar sem er að finna handan þorra
og góu“, benda meðlimir sveitarinnar á.
Sérstakir gestaleikarar á tónleikunum
verða Þórdís Gerður Jónsdóttir á selló og
Matthías Hemstock á slagverk.
Umbra er nýkomin heim frá Kaupmanna-
höfn þar sem hópurinn hélt vel sótta tón-
leika í Frihavnskirken, með eigin efnisskrá.
Hópurinn frumflutti líka nýtt verk eftir tón-
skáldið Finn Karlsson í Koncertkirken þann
21. nóvember, á debut-tónleikum hans á
vegum Konunglega tónlistarháskólans í
Kaupmannahöfn. – gun
Vekja forn þjóðlög eða gleymda lagboða til lífsins
Umbru skipa Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, Alexandra
Kjeld, Lilja Dögg Gunnarsdóttir og Arngerður María Árnadóttir.
„Mikið ofboðslega
er hann skemmtilegur.“
S U N N A D Í S M Á S D Ó T T I R / K I L J A N
„... að fljóta með og njóta
ferðalagsins.“
E G I L L H E L G A S O N / K I L J A N
„... útkoman er brakandi snilld.“
P Á L L Á S G E I R Á G E I R S S O N
E I N A R F A L U R I N G Ó L F S S O N / M O R G U N B L A Ð I Ð
Ný bók eftir verðlaunahöfundinn
Ófeig Sigurðsson sem sló í gegn
með metsölubókinni Öræfum.
Mögnuð saga um leitina að
hamingjunni – fyndin, djúp og
meistaralega skrifuð.
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið til 19 alla daga til jóla | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
m e N N i N g ∙ F r É t t a B L a ð i ð 41F i m m t u D a g u r 2 0 . D e s e m B e r 2 0 1 8
2
0
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
D
E
-0
D
6
4
2
1
D
E
-0
C
2
8
2
1
D
E
-0
A
E
C
2
1
D
E
-0
9
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
1
9
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K