Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2013, Side 9

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2013, Side 9
9Ljósmæðrablaðið - júní 2013 barn komu heim af fæðingadeild. Í flestum tilfellum var um heimaþjónustu ljósmæðra að ræða og í einu tilviki hafði samningur verið gerður við sjálfstætt starfandi ljósmóður. Mæður kunnu vel að meta hjálp sem þær fengu við brjóstagjöf í þessum heimsóknum. Margar þeirra töldu að þá hafi þær fyrst í ró og næði fengið góða aðstoð og hagnýta fræðslu um brjóstagjöf. Þá skapaðist tækifæri til að mynda traust samband við einn aðila og samtímis samræmdar upplýsingar. Samskiptin við brjóstagjafaráðgjafana voru flóknari en fimm mæður leituðu til þeirra. Tvær af þeim voru ósáttar með fræðsluna en þeim fannst viðmót ráðgjaf- anna einkennast af einstrengingslegri áherslu á brjóstagjöfina og skorti á virðingu. Þrjár mæðranna töldu sig þó hafa fengið ágætar ráðleggingar frá þeim. Langflestar mæðranna leituðu upplýs- inga og ráða um brjóstagjöf utan hinnar hefðbundnu fræðslu heilbrigðiskerfisins. Ein móðir taldi það mikla framför að „núna getur maður bara gúglað allt.“ Á netinu væri að finna spjallrásir mæðra og upplýsingaveitur fyrir foreldra, nokkurs konar jafningjafræðslu. Mæðurnar töldu slíka fræðslu hafa reynst þeim vel og báru traust til upplýsinga frá mæðrum sem sjálfar höfðu reynslu af brjóstagjöf. Ein mæðranna sagðist viða að sér upplýs- ingum úr öllum áttum. Hún taldi mæður þurfa að prófa þau ráð sem þær teldu henta sér hverju sinni og sagði eitt ráð ekki endilega réttara en annað. Áherslur og upplýsingar breyttust svo fljótt og því ekki alltaf auðvelt að fylgjast með því nýjasta. Viðmót og viðhorf Mæðrum, og þá sérstaklega þeim sem illa gekk með brjóstagjöfina, var tíðrætt um samskiptin við fagfólk sem veittu þeim fræðslu um hana. Þær upplifðu ýmist stuðning, fálæti eða of mikinn þrýsting á að gefa brjóst. Sex mæður sögðu viðhorf heilbrigðisstarfsmanna til brjóstagjafar almennt jákvætt en tóku þó fram að of löng brjóstagjöf væri oftast ekki vel séð. Ein móðir sagðist hafa verið litin hornauga vegna stuttrar brjósta- gjafar og önnur taldi starfsfólk verða vandræðalegt þegar styttri brjóstagjöf var rædd. Þrjár mæðranna nefndu að þær hefðu orðið varar við bæði jákvæð og neikvæð viðhorf og fimm þeirra töldu fagfólk leggja misjafnlega mikla áherslu á mikilvægi brjóstagjafar. brjóstagjöf nánast eingöngu í dreifingu bæklings um brjóstagjöf. Betra var að sjá handtök við brjóstagjöf á fræðslumynd- bandi heldur en teikningum í bæklingi. Mæðurnar sem höfðu horft á fræðslu- efni um brjóstagjöf af myndbandi töldu það til dæmis hafa nýst þeim mjög vel og mun betur en bæklingurinn. Staðsetn- ing og tímasetning fyrirlestra á vegum Miðstöðvar mæðraverndar voru gagnrýnd og brjóstagjafanámskeið voru fullbókuð. Mæðurnar voru sammála um að taka þyrfti fræðslu um brjóstagjöf á meðgöngu til endurskoðunar svo grunnþekking á brjóstagjöf, til dæmis á stellingum og líffræðilegri virkni brjósta, væri til staðar áður en barnið fæddist. Fræðsla um hugs- anlega erfiðleika þótti mikilvæg og talin geta minnkað streitu og komið í veg fyrir áfall kvenna sem næðu ekki tökum á brjóstagjöf fljótt eftir fæðingu. Mikil- vægt væri að upplýsa um að sumar konur „gætu ekki gefið brjóst“ og að sum „börn mundu sjúga bara eitthvað vitlaust.“ Ein móðir taldi það ámælisvert að „það var enginn búinn að vara mig við hverslags helvíti þetta gat verið.“ Brjóstagjöfin hefði áhrif á aðra fjölskyldumeðlimi og gæti leitt til svefnleysis og félagslegrar einangrunar. Móðir sagði meðal annars frá því hvernig brjóstagjöfin varð styttri með annað barn hennar vegna anna. Fyrsta brjóstagjöfin fór oftast fram á fæðingadeild og þar voru mæður oft í reynd fyrst fræddar um brjóstagjöf. Ein mæðranna sagðist reyndar einungis hafa fengið fræðslu með fyrsta barn og önnur móðir aðeins þegar hún fæddi þar seinni börn. Enn önnur sagði starfsfólk hafa „troðið barninu á brjóstið“ en ekki kennt sér neitt. Þrjár mæður sögðust ekki hafa fengið fræðslu um brjóstagjöf áður en þær fóru heim af fæðingadeild. Þær höfðu búist við fræðslu og voru ósáttar við að hafa farið á mis við hana. Enginn hafði rætt við þær í rólegheitum og kennt þeim góð vinnubrögð við brjóstagjöf. Ein þeirra taldi sig hafa „bara [verið] hent heim“ án þess að vita nokkuð og önnur gaf barni sínu ekki brjóst fyrr en heim var komið. Mæður sem fengu fræðslu töldu að ráðgjöf um brjóstagjöf hverju sinni hafi farið eftir starfsfólki sem var á vakt þá stundina. Skoðanir um ágæti fræðslunnar voru þó skiptar. Þriggja barna móðir taldi til dæmis grunninn að brjóstagjöf sinni með öll börnin hafa verið sú fræðsla sem hún fékk á fæðingadeild. Lögð var áhersla á að hún yrði á deildinni þar til brjóstagjöfin og mjólkurframleiðslan væri komin vel af stað og var henni hjálpað með ýmsum ráðum við það. „Ef ég hefði ekki fengið þennan grunn þarna í byrjun þá hefði ég örugglega gefist upp sjálf,“ sagði hún. Foreldrum nýfæddra barna var boðið upp á heimavitjanir eftir að móðir og annars spurðar hvaðan þær hefðu fengið upplýsingar um brjóstagjöf á meðgöngu og eftir barnsburð og hvernig upplýs- ingarnar höfðu nýst þeim. Einnig voru þær spurðar um æskilegt umfang fræðslu og hvatningar til brjóstagjafar. Stuðst var við greiningu gagna að hætti Crang og Cook (2007: 133) en hún er undir áhrifum grundaðrar kenn- ingar. Crang og Cook leggja áherslu á að gott skipulag og sköpunargleði haldist í hendur í greiningarferlinu. Afrit viðtal- anna voru endurtekið lesin yfir og kóðuð og samsvarandi texti merktur. Kóðunum var síðan raðað upp eftir innri tengslum og héldust sumir óbreyttir, aðrir voru sameinaðir og enn öðrum var sleppt. Meginþemu voru vettvangur fræðslunnar sem og innihald hennar og form, áreið- anleiki þekkingar, viðhorf og viðmót fræðsluaðila, stuðningur og vellíðan móður. Mæður gáfu upplýst samþykki fyrir þátttöku. Rannsóknin fékk leyfi Vísinda- siðanefndar (10-075) og var skráð hjá Persónuvernd. NIÐURSTÖÐUR Áður en mæðurnar höfðu sjálfar öðlast reynslu af brjóstagjöf töldu langflestar þeirra að hún væri náttúrulegt fyrir- bæri, þannig að vitneskja um hvernig hún skyldi framkvæmd væri meðfædd. Sú mikla vinna sem fólst í brjóstagjöf- inni kom þeim á óvart og einnig að hún væri á engan hátt sjálfgefin. Flestallar mæðurnar áttu við einhverja örðugleika að stríða við upphaf brjóstagjafar en þær sem töldu brjóstagjöfina þó hafa verið jákvæða reynslu nefndu meðal annars ánægju yfir að hafa komist yfir erfiðleik- ana (Elín Ösp Gísladóttir, 2012: 67‒69). Gagnrýni á fræðslu um brjóstagjöf var engu að síður áberandi meðal mæðranna en þó sérstaklega þeirra sem höfðu átt við hvað mesta erfiðleika að stríða við brjóstagjöfina. Langflestar mæðurnar, óháð því hversu vel þeim gekk með brjóstagjöfina, töldu mikilvægt að fá fræðsluna strax á meðgöngu. Vettvangur, framsetning og innihald fræðslunnar Mæðurnar fengu fræðslu um brjósta- gjöf á mismunandi þjónustustigum, það er fyrir fæðingu við mæðraskoðanir og á námskeiðum, eftir fæðinguna á mismun- andi fæðingadeildum og eftir heimkomu við heimavitjanir og hjá heilsugæslunni. Þá leituðu sumar mæðranna til sérstakra brjóstagjafaráðgjafa. Samskipti mæðranna við heilbrigðis- starfsfólk vegna væntanlegrar fæðingar átti sér stað við reglulegar heimsóknir í mæðravernd, en þar fer fram fræðsla um meðgöngu og fæðingu auk eftirlits með meðgöngunni. Þar fólst fræðsla um

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.