Ljósmæðrablaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 23
23Ljósmæðrablaðið - júní 2013
Bæklingar um missi á meðgöngu
Anna Lísa Björnsdóttir
framkvæmdastjóri safnbókarinnar
Bjarney Hrafnberg
ljósmóðir Fæðingadeild Landspítala
Þórunn Pálsdóttir
ljósmóðir á meðgöngu- og
sængurkvennadeild Landspítala
,,Fyrr á árum var missir á meðgöngu ekki
mikið til umræðu. Að missa fóstur, jafnvel langt
gengið barn á meðgöngu, var yfirleitt talið
einkamál móðurinnar, eitthvað sem hún gekk í
gegnum og tókst á við í hljóði.‘‘
Með þessum orðum hefst bæklingur sem
ætlaður er aðstandendum þeirra sem misst hafa
á meðgöngu. Það er margt til í þessum orðum
þó að á undanförnum árum eða áratugum hafi
verið aukin og opnari umræða um sorg tengda
missi á meðgöngu og þessi sorg verið viður-
kennd sem raunveruleg sorg.
Upphafið á vinnu bæklinganna má rekja til
haustsins 2011 þegar Anna Lísa Björnsdóttir
talaði við stjórn LÍF styrktarfélags um að gera
bæklinga fyrir foreldra sem misstu á meðgöngu,
en henni hafði fundist það vanta eftir sinn missi
fyrr á árinu. LÍF tók vel í tillöguna og bað Önnu
Lísu að taka þátt í gerð bæklinganna, ásamt
starfsfólki Landspítalans. Á fjölmennum fundi
var ákveðið að í ritstjórn væru ljósmæðurnar
Bjarney Hrafnberg Hilmarsdóttir og Þórunn
Pálsdóttir, sjúkrahúspresturinn Ingileif Malm-
berg, ásamt Önnu Lísu Björnsdóttur, sem væri
fulltrúi LÍF.
Í mars 2012 var hafist handa og bað
ritstjórnin hina ýmsu sérfræðinga um að
skrifa sérstaka kafla, hver á sínu sviði. Leitað
var til sálfræðings, félagsfræðings og lækna.
Einnig kallaði ritstjórn eftir reynslusögum frá
foreldrum. Ritstjórnin fór yfir gamla bæklinga
sem, þrátt fyrir að hafa staðið vel fyrir sínu,
þurfti að endurnýja. Ritstjórnin kynnti sér
ennfremur erlenda bæklinga og greinar og
reyndi að koma því besta af öllum þessum fróð-
leik í bæklingana.
Að lokum urðu bæklingarnir þrír allir með
sömu yfirskrift en ætlaðir mismunandi hópum.
Einn fyrir foreldra sem missa á öðrum hluta
meðgöngunnar eða frá 12.‒22. viku, annar
fyrir foreldra sem missa eftir 22. viku og þriðji
er ætlaður aðstandendum þeirra sem missa.
Ástæða þessarar skiptingar eftir meðgöngu-
vikum eru mismunandi réttindi þessara hópa,
ólík eftirfylgni og mismunandi vinnulag á
kvennadeildum Landspítalans.
Þegar leið á þessa vinnu varð ljóst að það
vantar og á eftir að vinna sambærilegan bækling
fyrir þá foreldra sem missa á fyrsta hluta
meðgöngu og vonandi verður hafist handa við
gerð hans sem fyrst.
Ætlunin var að hittast nokkrum sinnum,
koma orðum á blað og síðan gefa út bækling.
Okkur fannst að það ætti ekki að taka svo
langan tíma. Raunin varð önnur og tók vinnan
við bæklingana frá mars 2012 fram í desember
sama ár en það var síðan í janúar 2013 sem þeir
voru á endanum gefnir út. Þetta varð því löng en
fróðleg og áhugaverð meðganga.
Tilgangur bæklinganna er, eins og áður segir,
sá að koma til móts við þarfir þeirra foreldra
sem missa á meðgöngu eða í fæðingu. Mark-
miðið var að bæklingarnir yrðu vegvísir og
fróðleikur fyrir þessa foreldra. Bæklingarnir eru
unnir í samstarfi við starfsfólk Kvennadeildar
LSH og bera þess merki að vera aðlagaðir
starfseminni þar, en það er samt von höfunda
að hægt verði að nota bæklingana hvar sem
er á landinu. Í bæklingunum sem ætlaðir eru
foreldrum er farið yfir ferli missis, reynt að
koma á framfæri upplýsingum sem leiða fólk
áfram skref fyrir skref og svara þeim spurn-
ingum sem hugsanlega koma upp. Byrjað er á
tilfinningum tengdum sorg, fjallað um mögu-
legar ástæður missis, farið yfir hvað gert er við
komu á spítala, mögulegar tilfinningar og líðan í
sjálfum missinum og eftir á. Í bæklingunum eru
líka sögur foreldra sem misst hafa á meðgöngu.
Í byrjun var bæklingurinn sem ætlaður
er aðstandendum aðeins einn kafli í hinum
bæklingunum tveimur en endaði sem sér
rit. Hann er ekki tengdur meðgöngulengd.
Tilgangur bæklingsins er að auðvelda aðstand-
endum að skilja upplifun og tilfinningar þeirra
sem missa þannig að þeir eigi hugsanlega
auðveldar með að veita foreldrum betri stuðning
í þeim erfiðu sporum sem missir á meðgöngu er.
Vinnan við bæklingana var mjög krefjandi, en
skemmtileg og gott var að finna stuðninginn og
samheldnina í þeim ólíku hópum sem lögðust á
eitt um að gera bæklingana sem best úr garði.
Eitt af því sem okkur fannst skipta mjög miklu
máli var að velja orðalag sem auðvelt væri að
skilja og hafa einfaldar skýringar. Von okkar er
að það hafi tekist. Í hópnum komu oft fram ólík
sjónarmið og sýn á aðstæður sem vonandi hafa
skilað sér.
Að lokum langar okkur að koma á fram-
færi þakklæti til allra þeirra sem komu að gerð
bæklinganna. Allir gáfu vinnu sína, þeirra á
meðal Eggert Pétursson listmálari, Kristín María
Sigþórsdóttir grafískur hönnuður, Helgi Gríms-
son prófarkarlesari og prentsmiðjan Leturprent
sem gaf alla vinnu og efni. Við færum þeim
okkar bestu þakkir.
Á eftirfarandi slóð er hægt að nálgast pdf-
útgáfu af bæklingunum: www.gefdulif.is/verk-
efni/baeklingur-um-andvana-faedingar