Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 35

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 35
35Ljósmæðrablaðið - júní 2013 Ofarlega í huga mér ... H U G L E I Ð I N G A R L J Ó S M Ó Ð U R Á hverju ári heyrum við fréttir af fæðingum í bílum á leið á fæðingarstað. En það sem við heyrum ekki eins mikið af eru konurnar sem „rétt sluppu“ á fæðingar- stað, þær sem festu sig í skafli á leiðinni, klesstu bílinn eða sátu við hlið óttaslegins maka sem keyrði á 150 km/klst. Þrátt fyrir að hafa aðeins starfað í eitt ár á Sauðár- króki þá heyrði ég nokkrar svoleiðis sögur frá konunum sem voru hjá mér í mæðra- vernd. Þessar sögur gerðu það að verkum að ég fór að velta því meira og meira fyrir mér hvert við stefnum þegar kemur að vali kvenna á fæðingarstað. Undanfarið hefur orðið þó nokkur umræða um þessi mál sem er vel. Góð umfjöllun var til að mynda í Landanum á RÚV þann 21. apríl síðastliðinn þar sem aðbúnaður þeirra kvenna sem þurfa um langan veg að fara var ræddur. Ljóst er í mínum huga að betur þarf að búa að þeim konum sem þurfa að flytjast búferlum á meðan beðið er eftir barni. Þær konur sem hafa áhættuþætti sem gera það að verkum að mælt er með hátæknisjúkrahúsi sem fæðingarstað en búa fjarri slíkum stað þurfa óneitanlega mikinn stuðning og greini- legt að betur þarf að standa með þeim. Bæði varðandi húsnæðismál á meðan þær dvelja fjarri heimili sínu auk þess sem eðlilegt væri að fá lengingu á fæðingarorlofi í slíkum tilfellum. Þó má ekki gleyma því að það eru ekki allar konur með slíka áhættuþætti og vel væri hægt að bjóða fleiri konum upp á það að fæða í sinni heimabyggð ef vilji er til. Eins og með flest er einfalt að skrifa niður hvað væri gott að gera en margar hliðar eru á málinu sem þarf að velta upp. Það er von mín að ekki verði frekari samdráttur í ljósmæðraþjónustu á lands- byggðinni og að hún verði aukin frá því sem nú er, en það er þó að miklu leyti undir okkur sjálfum komið. Við þurfum að vera talsmenn þess að slík þjónusta sé nauðsynleg, tala fyrir því að konur hafi val. Það verður seint hægt að bjóða þeim, sem eru með áhættuþætti sem kalla á að fæðing fari fram þar sem sólarhringsþjón- usta er á skurðstofu, upp á fæðingu í sinni heimabyggð ef sú byggð er strjál. Við gætum þó boðið mun fleiri konum upp á heimafæðingu, fæðingu á heilsugæslustöð eða öðrum minni sjúkrastofnunum, ef sátt næðist um það. Auðvitað er það þó alltaf val konunnar, sumar myndu án efa velja að fara lengra og ber það að virða. Ef við tækjum þá ákvörðun sem stétt að við vildum bjóða upp á slíka þjónustu þá er samt ýmislegt sem við þyrftum að huga að í okkar eigin umræðu. Hver er okkar skoðun, hvernig setjum við hana fram og af hverju? Ég tel gott fyrir allar ljósmæður að hugsa aðeins um það. Erum við að sjúkdómsvæða barneignarferlið? Ef við treystum því ekki hverjir gera það þá? Við getum ekki reiknað með því að almenningur geri það ef við erum ekki alveg vissar sjálfar. Undanfarið hafa nýútskrifaðar ljósmæður ekki getað valið úr störfum en samt sem áður hafa minni staðir á landsbyggðinni ekkert endilega fengið ofgnótt umsókna þegar þeir auglýsa eftir afleysingu eða hafa lausa stöðu. Auðvitað eru ekki allir í þeim sporum að hafa getu til að flytjast búferlum með fjölskyldu sína. En gæti verið að það hafi líka áhrif hvernig við tölum okkar á milli? Sjálf hef ég heyrt setningar eins og: „Hvernig dettur henni í hug að fara beint út á land, nýútskrifuð — myndir þú nokkuð gera það? Já það er náttúrulega ekki hægt að fara strax í heimafæðingar það þarf reynslu í það fyrst. Þessi kona ætlaði að fæða heima og svo kemur hún bara í keisara... Best er að byrja á fæðingargangi eftir útskrift til að vita hvernig á að bregð- ast við... Það verða að vera tvær ljósmæður í heimafæðingu.“ Listinn er endalaus, alls konar fullyrðingar hafa verið settar fram sem sá óvissu og ótta, bæði okkar á meðal og meðal almennings. Á hvaða hugmynda- fræði byggjum við? Það er þó margt til í fyrrnefndum setn- ingum og margar hliðar á þeim en ég velti því fyrir mér hvort að eitthvað sé mögu- lega að ef ljósmóðir á aðeins að treysta sér í sum störf eftir útskrift — kannski er þá eitthvað sem vantar í námið eða félags- mótunina! Kenningin um að byrja á því að öðlast reynslu í að bregðast við öllu sem getur farið úrskeiðis hefur sín rök. En getur ekki líka verið að með því að vera mikið í erfiðum fæðingum til að byrja með fái ljósmóðir þau skilaboð að náttúrunni sé erfitt að treysta. Best sé að fæðing fari fram innan veggja hátæknisjúkrahúss með alla mögulega sérfræðinga í kallfæri? Amma (Ása Marinósdóttir) sagði mér eitt sinn frá því þegar hún fór suður á Landspítala á námskeið eftir að hafa verið umdæmisljósmóðir í nokkuð mörg ár og allt gengið vel. Þegar hún var þar stödd hugsaði hún með sér að hún yrði að hætta þessum sveitafæðingum, þetta væri allt saman stórhættulegt, það gæti svo margt farið úrskeiðis. Þegar hún kom svo heim aftur fann hún að það væri allt í lagi og ákvað að leggja þessar hugsanir til hliðar og halda áfram að sinna konum heima, þetta virtist alltaf bjargast. Þessi saga finnst mér svolítið lýsandi fyrir stöðuna í dag og það hvernig hugsunin um fæðingaþjónustu er mótuð. En spurn- ingin er hvað viljum við og hvað erum við tilbúnar til þess að gera í stöðunni? Eitt er víst að ekkert kemur af sjálfu sér. Við ljós- mæður eigum að mínu mati mörg sóknar- tækifæri en maður verður víst að taka þátt til þess að eiga möguleika á að vinna! Það er enginn annar að fara að tala máli okkar já eða því að treysta lífeðlisfræði barn- eignarferlisins ef við hugsum stærra. Við gætum víkkað út okkar starfssvið, teygt okkur lengra í ungbarnavernd, tekið meiri þátt í krabbameinsskoðunum, getnaðarvarn- arráðleggingum og fleiru. Með því móti væri hægt að auka þörf fyrir ljósmæður í smærri byggðarlögum sem gæti auðveldað það að þétta net ljósmæðra um land allt. Það gæti mögulega opnað möguleikann á því að hafa ljósmóður á bakvakt allan sólar- hringinn í um eða innan við 100 km fjar- lægð frá öllum konum. Nágrannaljósmæður gætu þá mögulega aðstoðað hver aðra til að minnka vaktabyrði og styðja hverja aðra við að bjóða upp á aukna þjónustu í hinum dreifðari byggðum. Það er krefjandi að vera einn á litlum stað og við verðum umfram allt að bera virðingu fyrir ákvarðanatöku hverrar og einnar og muna að það er allt annað að vera einn á Vopnafirði að taka ákvörðun, t.d. um að flytja konu í fæðingu, eða vera í vest- urbæ Reykjavíkur. Það mat sem hver og ein okkar gerir er ávallt háð stað og stund miðað við hvað virðist réttast hverju sinni. Ásrún Ösp Jónsdóttir ljósmóðir

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.