Ljósmæðrablaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 32
32 Ljósmæðrablaðið - júní 2013
Stjórn:
Formaður: Áslaug Valsdóttir,
s. 861 6855
formadur@ljosmodir.is
Varaform.: Anna Eðvaldsdóttir
annaedva@landspitali.is
Ritari: Ásta Hlín Ólafsdóttir
asta.hlin@simnet.is
Vararitari: Steina Þórey Ragnarsdóttir
steina@hss.is
Gjaldkeri: Inga Sigríður Árnadóttir
geggja@hotmail.com
Varagjaldk.: Hafdís Ólafsdóttir
hafdisol@gmail.com
Meðstj. Björg Sigurðardóttir
bjorg@hss.is
Ritnefnd:
Hrafnhildur Ólafsdóttir ritstjóri,
s. 846 1576 hrafno@internet.is
Helga Gottfreðsdóttir helgagot@hi.is
Ingibjörg Th. Hreiðarsdóttir
ingibjorghre@simnet.is
Ingibjörg Eiríksdóttir
ingibjorgei@simnet.is
Berglind Hálfdánsdóttir
bugsy@internet.is
Ásrún Ösp Jónsdóttir
aoj5@hi.is
Edda Sveinsdóttir
eddasveins@simnet.is
Kjaranefnd:
Björg Sigurðardóttir, formaður,
s. 894 4649, bjorg@hss.is
Guðrún Fema Ágústsdóttir
femaa@hotmail.com
Guðrún Kormáksdóttir
gudrunk@hsu.is
Harpa Ósk Valgeirsdóttir
Formaður LMFÍ
Fræðslu- og endurmenntun-
arnefnd:
Hanna Rut Jónasdóttir, formaður,
s. 698 3637 hannadagga@hotmail.com
Bergrún Svava Jónsdóttir
bergrunjons@hotmail.com
Elín Arna Gunnarsdóttir
Guðrún I. Gunnlaugsdóttir
gualjosa@gmail.com
Hallfríður Kristín Jónsdóttir
frida@gmail.com
Sjóðanefnd:
Formaður LMFÍ
Gjaldkeri LMFÍ
Gréta Rún Árnadóttir
gretarunarna@gmail.com
Greta Matthíasdóttir
greta@makker.is
Margrét Guðmundsdóttir
magmar@internet.is
Kjörnefnd:
Birna Ólafsdóttir, formaður,
s. 863 8806
Guðrún Huld Kristinsdóttir
Hilda Friðfinnsdóttir
Siðanefnd:
Anna Rut Sverrisdóttir
annarutljosa@gmail.com
Birna Gerður Jónsdóttir
birnagj@landspitali.is
Guðrún Halldórsdóttir
NJF:
Hildur Kristjánsdóttir
S: 557 1591 hildurkr@simnet.is
Fulltrúi úr stjórn
Skoðunarmenn:
Ingunn Vattnes Jónsdóttir
Margrét Guðmundsdóttir
Aðaltrúnaðarmaður:
Guðrún Sigríður Ólafsdóttir
Stjórn og nefndir Ljósmæðrafélags Íslands 2013-2014
Breytt vinnulag við K-vítamín gjöf á LSH
Fyrir um einu og hálfu ári ákváðu ljósmæður
á Landspítala að fara út í breytingar á K-vítamín
gjöf, þ.e. hvenær gefið er K-vítamín. Fram að
þessu hafði hver ljósmóðir sinn háttinn á með
þetta, þó svo flestar ljósmæður gæfu K-vítamín
sprautuna eftir að búið var að vigta og mæla
barnið. Ákveðið var að gefa K-vítamín alltaf
sem fyrst eftir að barnið fæðist, yfirleitt þannig
að sú ljósmóðir sem aðstoðar við fæðinguna
gefur það á fyrstu mínútunum. Rökin fyrir
breytingunni voru fyrst og fremst að rétt eftir
fæðinguna er barnið enn undir áhrifum endor-
fínanna sem það fær við fæðinguna og ætti því
ekki að upplifa eins mikinn sársauka við það
að fá sprautu. Sprautan getur einnig gegnt því
hlutverki að veita örvun því á fyrstu mínútunum
þarf stundum að örva börn til þess að anda eða
gráta.
Okkur fannst mikilvægt að samræma verk-
lag við gjöf K-vítamíns á stofnuninni til að
minnka líkur á að K-vítamín væri gefið of
oft eða að það gleymdist. Sú ljósmóðir sem
gefur sprautuna kvittar fyrir lyfjagjöfinni á
barnablaði. Rétt er að það komi fram að ekki
er mælt með því að Konakion-stungulyf sé
dregið upp í sprautu fyrirfram og geymt í
lengri tíma þar sem virka efnið Phytomena-
dione brotnar niður í ljósi. Út frá örverufræði-
legu sjónarmiði er heldur ekki mælt með því
að geyma lyf uppdregin í sprautu. Við höfum
því haft þann háttinn á að draga lyfið upp
eins nálægt lyfjagjöf og hægt er, miðað við
aðstæður hverju sinni en þó er í lagi að geyma
það uppdregið í allt að klukkustund.
Þetta verklag krefst auðvitað þess að búið sé
að láta foreldrana vita fyrir fram að þetta verði
gert, svo þau viti bæði um ástæður þess að
K-vítamín sé gefið, tímasetninguna á gjöfinni og
möguleika þeirra á að taka upplýsta ákvörðun um
það hvort þau þiggi K-vítamín gjöf fyrir sitt barn.
Best er auðvitað að búið sé að kynna þetta fyrir
foreldrum áður en í fæðinguna er komið þar sem
umræðan og ákvarðanatakan er foreldrunum
auðveldari hafi þau heyrt um K-vítamín gjöf
áður en til fæðingarinnar kemur. Í því sambandi
bendum við á bæklinginn um K-vítamín, úr
bæklingaröð Ljósmæðrafélagsins, sem finnst á
vefsíðunni ljosmodir.is og ætti því að vera öllum
aðgengilegur. Veitir hann góðar upplýsingar fyrir
foreldra og aðra sem áhuga hafa.
Gréta Rún Árnadóttir og Anna Sigríður
Vernharðsdóttir ljósmæður á fæðingadeild
Landspítala