Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 30

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 30
30 Ljósmæðrablaðið - júní 2013 inn á myndinni. Fræðslumyndin fjallar um ungversku ljósmóðurina Agnes Gereb sem fundin var sek og sett í fangelsi í heimalandi sínu fyrir þær sakir að taka á móti börnum í heimahúsum. Þeir sem stóðu að myndinni vildu með þessu vekja athygli á mannréttinda- brotum. Eftir myndina voru umræður og í pallborði sátu Áslaug Hauksdóttir ljósmóðir, Kristbjörg Magnúsdóttir ljósmóðir og Eyrún Ingadóttir, móðir sem hefur fætt heima. Viðburðurinn var opinn fyrir alla áhugasama og mættu um 40 manns. Fræðsludagur um heimaþjónustu ljósmæðra var haldinn 27. október sl. í samvinnu við Fagdeild heimaþjónustuljósmæðra. Fjallað var um hin ýmsu mál sem viðkoma heima- þjónustu. Kristbjörg Magnúsdóttir og Berglind Hálfdánsdóttir fjölluðu um ýmis praktísk mál varðandi eigin rekstur ljósmæðra sem sinna heimaþjónustu, Hulda Sigurlína Þórðardóttir stjórnaði umræðum um brjóstagjöf í fyrstu vikunni, Eva Björk Guðmundsdóttir hjúk- runarfræðingur og móðir barns með efna- skiptasjúkdóm fjallaði um nýburaskimun út frá sjónarhorni foreldra, Lilja Eiríksdóttir og Leifur Franzson svöruðu spurningum um PKU sýnatöku og Bergrún S. Jónsdóttir fjall- aði um frágang skjala og fleira. Jólafundurinn var haldinn 6. desember sl. Eyrún Ingadóttir sagnfræðingur kynnti bók sína Ljósmóðirin sem fjallar um ljósmóðurina Þórdísi Símonardóttur frá Eyrarbakka. Boðið var upp á jólaglögg, konfekt og smákökur og að sjálfsögðu var farið í jólapakkaleikinn skemmtilega. Undirbúningsfundur um stofnun fagdeildar í mæðravernd var haldinn 6. febrúar sl. Fyrir fundinn var Valgerður Halldórsdóttir félags- ráðgjafi með fræðsluerindið Litli brúarsmiður- inn ‒ fæðing barns í stjúpfjölskyldu. Skýrsla kjaranefndar Ljósmæðrafélags Íslands Síðastliðið ár hefur verið tíðindalítið hjá kjaranefndinni, en almennir kjarasamningar verða ekki lausir fyrr en í byrjun næsta árs. Unnið hefur verið í samvinnu við formann félagsins, sem einnig er í nefndinni, að yfirferð og greiningu á stofnanasamningum ljósmæðra. Lítið hefur þokast í vinnu við nýja stofnana- samninga og starfa ljósmæður í raun samn- ingslausar hvað þá varðar þar sem þeir hafa verið lausir í langan tíma. Þó hefur vinna verið í gangi á einstaka stofnun við endurskoðun þeirra. Lítill vilji virðist vera hjá stjórnvöldum og yfirmönnum stofnana að vinna að gerð nýrra stofnanasamninga. Beðið var útkomu stofnanasamninga hjúkrunarfræðinga á LSH og leitað eftir samningum á sömu nótum hjá ljósmæðrum þar, en lítið hefur enn komið út úr þeim viðræðum. Formaður kjaranefndar sat fundi með formanni félagsins þar sem unnið var við bókun 1 úr miðlægu samningunum í samstarfi við félög innan BHM. Var það gagnleg og þörf vinna. Þá fór formaður einnig á fund með formanni félagsins til að ganga frá verkfalls- listum við fjármálaráðuneytið. Í stjórn Ljósmæðrafélagsins hefur farið fram gerð handbókar félagsins og kom formaður nefndarinnar að gerð hennar sem almennur stjórnarmaður, en í handbókinni er kafli um störf kjaranefndar sem er vísir að leiðbein- ingum um þá vinnu og ábyrgð sem henni eru falin af hálfu félagsmanna. Er það vel. Skýrsla ritnefndar Ljósmæðrafélags Íslands Í ritnefndinni voru árið 2012 Hrafnhildur Ólafsdóttir ritstjóri, Helga Gottfreðsdóttir, Ingibjörg Eiríksdóttir, Ingibjörg Th. Hreiðars- dóttir, Berglind Hálfdánsdóttir, Stefanía Guðmundsdóttir og Ásrún Ösp Jónsdóttir. Stefanía hefur ákveðið að hætta í ritnefndinni og þökkum við henni fyrir samvinnuna. Árið 2012 voru gefin út tvö tölublöð af Ljós- mæðrablaðinu eins og undanfarin ár, gekk vel að fá efni í blaðið. Tvær ritrýndar greinar birtust og margar fræðslugreinar. Margar ljósmæður eru búnar að vera í framhaldsnámi og hafa þær verið duglegar að skrifa í blaðið. Vill ritnefndin nota þetta tækifæri til að minna þær ljósmæður sem hlotið hafa styrk frá Ljósmæðrafélaginu að skrifa í blaðið. Ritnefnd hittist einu sinni fyrir útgáfu hvors blaðs en mikil samskipti fóru fram í gegnum netið með tölvupósti. Það gekk sæmilega að safna auglýsingum í blaðið. Kostnaður við útgáfu blaðsins er þó nokkuð meiri en innkoma, prentkostnaður hefur aukist mikið eftir hrun. Þegar öllu er á botninn hvolft verðum við þó að hugsa um hvaða þýðingu Ljósmæðrablaðið hefur fyrir starfsemi félagsins og líf félagsmanna, það vegur mjög þungt. Því skiptir kannski ekki öllu þó blaðið standi ekki undir sér, það er bara þýðingarmikill hluti af starfsemi Ljós- mæðrafélagsins. Að sjálfsögðu verður þó reynt að halda kostnaði niðri með útboði og áfram reynt að fá inn fleiri auglýsingar. Á síðasta ári tók ritnefndin að sér í fyrsta sinn að sjá um útgáfu Fylgjunnar, dagbókar félagsins. Ritnefndin tók við góðu búi frá Elín- borgu Jónsdóttur og voru ekki gerðar miklar breytingar á Fylgjunni. Nokkur umræða skap- aðist um hvort Ljósmæðrafélagið eigi að gefa út Fylgjuna í þessu formi. Tæknin er orðin mikil, margir eru með snjallsíma og geta því nálgast allar upplýsingar beint af netinu úr þeim og einnig eru margir farnir að setja inn vaktaplanið beint í símann sinn. Eftir að hafa kannað óformlega hug ljósmæðra til Fylgj- unnar þá er raunin sú að stór hluti ljósmæðra notar Fylgjuna mikið og eru ekki tilbúnar að missa af því að fá hana, er það hluti af jólunum hjá mörgum ljósmæðrum að fá Fylgjuna í hús. Skýrsla sjóðanefndar Ljósmæðrafélags Íslands Sjóðanefnd fundaði þrisvar á árinu 2012. Tveir fundir af þremur voru vinnufundir vegna vinnu við nýjan sjóð á vegum Ljósmæðrafé- lagsins, Minningarsjóðs Jóhönnu Hrafnfjörð. Jóhanna Hrafnfjörð ljósmóðir arfleiddi Ljós- mæðrafélag Íslands að íbúð sinni að Ásvallar- götu 25 í Reykjavík. Andvirði sölu hennar vildi Jóhanna að færi í sjóð í hennar nafni. Megin vinnan hefur verið í kringum skipulagsskrá og Hrefna Einarsdóttir og Áslaug Valsdóttir buðu sig fram til formannsembættis hjá LMFÍ

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.