Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2013, Qupperneq 15

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2013, Qupperneq 15
15Ljósmæðrablaðið - júní 2013 fæðingu. Einnig fá þau mynd af barni í móðurkviði. Mælt er með að horfa reglulega á myndina þegar fer að líða á meðgöngu til að sjá fyrir sér barnið í bestu mögulegu stellingu fyrir fæðingu. Í hverjum tíma er horft á minnst eitt mynd- band um fæðingu til að sýna hvernig hægt er að fæða á ljúfan og yndislegan hátt. Mælt er með gerð óskalista til að ljósmóðirin viti hvað er konunni mikil- vægt við fæðinguna. Áhersla er á allt hið heilbrigða og eðli- lega á meðgöngu og í fæðingu, en mjög litlum tíma eytt í að tala um það sem er óeðlilegt og gæti hugsanlega gerst. Farið er yfir helstu ástæður þess að leita þurfi til lækna eða ljósmæðra á meðgöngu og þá kallaðar sérstakar aðstæður. HypnoBirthing námskeið undir- búa verðandi móður og fæðingarfélaga hennar undir fæðingu barnsins. Kennt er vikulega, fimm kvöld í 2½ klst í senn. Námsefnið kemur frá HypnoBirthing Institute og er þýðing þess tilbúin á íslensku. Guðrún Ólöf Jónsdóttir ljós- móðir hafði umsjón með þýðingunni og hélt fyrsta HypnoBirthing námskeiðið hér á landi í maí 2009. Í dag kenna tvær ljósmæður HypnoBirthing á Íslandi, ég, og Sólveig Þórðardóttir sem kennir í Reykjanesbæ. Ég hef kennt rúmlega 100 verðandi mæðrum auk fæðingarfélaga þeirra, á 23 námskeiðum frá maí 2010. Umönnun kvenna í fæðingu sem sótt hafa HypnoBirthing námskeið Verðandi móðir notar öndun og slökun og fylgir því sem líkami hennar segir henni að gera. Lögð er áhersla á að ekki sé verið að trufla konuna í slökun með því að tala við hana, þar sem það örvar heilabörkinn, heldur að frekar sé talað til hennar að hún sé að slaka svo vel á, minna hana frekar á að fara dýpra og dýpra í slökun. Fæðingarfélagi á að geta svarað fyrir þau, ef einhverjar spurn- ingar vakna. Þegar kemur að því að anda barninu í heiminn þá sé ekki verið að hvetja hana í klappstýrustíl, heldur leyfa henni að finna hvernig er rétt fyrir hana að færa barnið í heiminn. Þá leggur HypnoBirthing áherslu á að fyrsti klukkutíminn eftir fæðingu sé tími fjöl- skyldunnar og sem allra minnst truflun sé í umhverfi þeirra. Ótruflað augnsamband og húð við húð snerting milli móður og barns. Lokaorð Ég vona að þessi stutti pistill hafi aukið skilning ykkar á HypnoBirthing og hvernig best er að aðstoða verðandi móður sem kynnt hefur sér hugmynda- fræði HypnoBirthing. Sérstaða HypnoBirthing felst meðal annars í áherslu á hlutverk fæðingarfélagans, sem er að standa vörð um fæðinguna. Í lokin langar að vitna í Áslaugu Hauks- dóttur ljósmóður, hún segir: Að notkun vatns við fæðingar og vatnsfæðingar hafi verið bylting í fæðingarhjálp, þegar það varð að veruleika hér fyrir 17 árum, en nú sé næsta byltingin komin en það er að ná tökum á HypnoBirthing. Með von um að sem flestar ljósmæður megi upplifa að aðstoða við HypnoBirthing fæðingu. Kristbjörg Magnúsdóttir ljósmóðir

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.