Fréttablaðið - 25.01.2019, Page 36

Fréttablaðið - 25.01.2019, Page 36
Það var allt hvítt hjá Balmain, hárið, húðin, augabrúnir og varir. Rauður og appelsínugulur voru áberandi hjá mörgum tískuhús- um eins og sést hér hjá Armani Privé. Þetta er förðun sem auðvelt er að herma eftir. Förðunin á sýningu Iris Van Herpen var náttúruleg, en blá rönd í hárinu setti punktinn yfir i-ið. Hver einasta fyrirsæta bar svona hatt á sýningu Christian Dior, en hattameistarinn Stephen Jones er hönnuður þeirra. Augun voru svo dökkmáluð með augnblýanti. Á sýningu Alexis Mabille var einungis rauður augnskuggi notaður en al- vöru blóm voru fest í hárið. Valentino notaði fjaðrir á augun. Farðu inn á Glamour.is og fáðu daglegar fréttir úr heimi hönnunar, lífsstíls og tísku. l Facebook l Instagram l Twitter Hátískuvikunni lauk fyrr í vikunni í París þar sem tískuhús eins og Valentino, Christ­ ian Dior, Balmain og Chanel sýndu línur sínar fyrir vorið. Meira er meira hjá Chanel. Hárið var blásið beint upp í loft, augu voru dökk og áberandi og varirnar málaðar rauðar. Ímyndunaraflið nýtur sín í hátískunni Þegar kemur að hátískunni þá fær ímyndunaraflið, listin og handverkið að njóta sín og minna er verið að hugsa um almennt notagildi fatnaðarins. Hátískuvikan kláraðist fyrr í vikunni í París, þar sem tískuhús eins og Valentino, Christian Dior, Balmain og Chanel sýndu línur sínar fyrir vorið og er líklegt að við munum sjá fatnaðinn á rauða dreglinum í vor. En það er ekki einungis mikið lagt í fötin, heldur fengu förðunarmeistararnir líka að njóta sín. Glamour hefur tekið saman nokkrar skemmtilegar myndir frá hátískuvikunni. Hjá Givenchy var glimmerið ekki sparað heldur sett yfir hálft andlitið. 2 5 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ 2 5 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :2 5 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 2 3 -0 C 1 0 2 2 2 3 -0 A D 4 2 2 2 3 -0 9 9 8 2 2 2 3 -0 8 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 2 4 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.