Fréttablaðið - 28.01.2019, Qupperneq 8
Tilnefningarnefnd Regins hf. var skipuð á hluthafafundi
félagsins 13. september 2018. Nefndin starfar í umboði
hluthafa og er hlutverk hennar að vera ráðgefandi við
val á stjórnarmönnum í stjórn félagsins.
Tilnefningarnefnd vekur athygli á því að frestur til að skila
inn framboðum til nefndarinnar er 7. febrúar og skal senda
þau á netfangið tilnefningarnefnd@reginn.is
Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu félagsins
www.reginn.is/fjarfestavefur
Tilnefningarnefnd Regins hf.
Reginn hf. / 512 8900 / reginn@reginn.is / reginn.is
AÐALFUNDUR
14. MARS 2019
BANDARÍKIN Roger Stone, samstarfs-
maður Donalds Trump Bandaríkja-
forseta til margra ára, sagði í gær
að hann myndi svara öllum spurn-
ingum Roberts Mueller, sérstaks
saksóknara, sem rannsakar tengsl
forsetaframboðs Trumps við rúss-
nesk yfirvöld, af hreinskilni. Stone
útilokaði ekki að vera samvinnufús
og aðstoða Mueller við að svipta hul-
unni af hinum meintu samskiptum
við stjórnvöld í Moskvu.
„Ef það var einhver glæpur fram-
inn af fólki sem starfaði fyrir fram-
boðið [...] þá mun ég sannarlega
vitna um það af heilindum,“ sagði
Stone í viðtali á sjónvarpsstöðinni
ABC í gær.
Stone, sem er 66 ára, var hand-
tekinn á föstudaginn fyrir helgi og
er meðal annars gefið að sök að hafa
hindrað framgang réttvísinnar og
reynt að hafa áhrif á framburð vitna
í tengslum við rannsókn Muellers.
Í ákærunni kemur hvergi fram að
Stone sé grunaður um að hafa haft
bein samskipti við rússnesk yfirvöld.
Hins vegar kemur þar fram að Stone
hafi rætt við háttsetta stjórnendur
í teymi Trumps um WikiLeaks og
gögn frá uppljóstrunarsamtökunum
sem voru sögð skaðleg fyrir fram-
boðs Hillarys Clinton, mótfram-
bjóðanda Trumps.
Í viðtalinu sagði Stone að það
hefði aldrei komið til tals milli hans
og Trumps að hann yrði náðaður ef
allt færi á versta veg og sagði þá aldr-
ei hafa rætt um WikiLeaks eða stofn-
anda samtakanna, Julian Assange.
Stone segist vera saklaus af ásök-
unum Muellers og hyggst sanna sak-
leysi sitt fyrir dómstólum. – khn
Útilokar ekki að vinna með saksóknara
Roger Stone á föstudaginn. NORDICPHOTOS/GETTY
VENESÚELA Juan Guaidó, leiðtogi
stjórnarandstöðunnar í Venesúela,
fundaði í desember leynilega með
fulltrúum ríkisstjórna annarra ríkja
í Suður-Ameríku með það að mark-
miði að afla stuðnings sem forseti
landsins. Í rúmlega tvær vikur hefur
það verið vafa undirorpið hver sé
forseti ríkisins.
Undanfarin ár hafa nær eingöngu
harmfregnir borist frá Venesúela en
þar er skortur á flestu og verðbólga
í hæstu hæðum. Aðgerðir sitjandi
forseta hafa oft orðið til þess að
hella olíu á eldinn. Forsetakosn-
ingarnar áttu upphaflega að fara
fram í desember í fyrra en var flýtt
í skyndi. Svo fór að kosið var í lok
maí. Sitjandi forseti, Nicolás Mad-
uro, hlaut afgerandi kosningu eða
ríflega tvo þriðju atkvæða. Helsti
andstæðingur hans fékk aðeins
fimmtung.
Kjörsókn var með allra versta
móti en opinberar tölur herma að
46 prósent atkvæðabærra manna
hafi kosið. Stjórnarandstaða
landsins, svo og eftirlitsaðilar sem
fylgdust með, hafa rengt þær tölur
og telja að aðeins hafi tæpur fjórð-
ungur landsmanna greitt atkvæði.
Afleiðingin er sú að mörg ríki hafa
neitað að viðurkenna úrslitin. Í
þeim hópi eru meðal annars Banda-
ríkin, önnur ríki Suður-Ameríku og
Evrópusambandsríki. Maduro nýtur
hins vegar stuðnings Rússlands, Sýr-
lands, Kína, Kúbu og Tyrklands svo
nokkur ríki séu nefnd til sögunnar.
Forsetinn Maduro sór embættis-
eið forseta þann 10. janúar þessa
árs en hið sama gerði fyrrnefndur
Guaidó. Sá gegnir starfi venesúelska
þingsins en það er að vísu valda-
laust í augum Maduro sem skipaði
sérstakt þing fyrir sínar skoðanir
á síðasta ári. Þingið viðurkennir
að sjálfsögðu ekki vald Maduro og
það var af þeim sökum sem Guaidó
sór sinn eið. Í kjölfarið hóf hann
myndun starfsstjórnar.
Meðal ríkja sem viðurkenna til-
kall Guaidó til forseta má nefna
Bandaríkin, Kanada og nær öll ríki
Suður-Ameríku að Bólivíu, sem
styður Maduro, og hinu hlutlausa
Úrúgvæ undanskildum. Evrópu-
ríki og Japan hafa viðurkennt vald
venesúelska þingsins og hafa hótað
að viðurkenna Guaidó sem for-
seta boði Maduro ekki til kosninga
innan viku.
Innsetning stjórnarandstæðings-
ins í embætti kom hins vegar ekki
til af sjálfu sér. Í síðasta mánuði
ferðaðist hann um ríki Ameríku,
bæði í norðri og suðri, til að afla sér
stuðnings. AP fréttastofan hefur það
eftir heimildarmönnum sínum að
Guaidó hafi smyglað sér yfir landa-
mærin til Kólumbíu, en þangað
yfir hafa tugþúsundir venesúelskra
flóttamanna farið undanfarna
mánuði, og þaðan meðal annars til
Bandaríkjanna og Brasilíu.
„Þetta er í fyrsta sinn í fimm ár
sem stjórnarandstaðan í Venesú-
ela hefur náð samkomulagi um
eitthvað sem skiptir máli,“ segir
kanadískur embættismaður við AP
í skjóli nafnleyndar þar sem hann
hefur ekki heimild til að tjá sig um
efnið opinberlega. Í úttektinni er
þess getið að hefði þessi stuðningur
erlendra ríkja ekki fengist hefði hug-
myndin fallið um sjálfa sig.
Maduro hefur enn sem komið er
ekki látið sér segjast en í viðtali við
CNN Türk í Tyrklandi sagði hann að
fullyrðingar Guaidó og innsetning
hans í embættið væru í hróplegri
andstöðu við stjórnarskrá ríkisins.
joli@frettabladid.is
Guaidó ferðaðist leynilega um
Ameríku til að afla stuðnings
Helsti stjórnarandstæðingur Venesúela smyglaði sér yfir landamærin til Kólumbíu um miðjan desember.
Þaðan lá leiðin um ríki Ameríku til að plotta gegn forsetanum Nicolás Maduro. Undanfarnar tvær vikur
hafa tveir forsetar verið í landinu og viðurkennir hvorugur hinn. Maduro gefur lítið fyrir afarkosti Evrópu.
Juan Guaidó (t.v.) tryggði að hann hefði nægan stuðning sem forseti landsins áður en hann hjólaði í Nicolás Maduro (t.h.) í upphafi mánaðar. NORDIC PHOTOS/AFP
Þetta er í fyrsta sinn
í fimm ár sem
stjórnarandstæðan í Venesú-
ela hefur náð samkomulagi
um eitthvað sem skiptir máli
Ónefndur kanadískur
embættismaður
FILIPPSEYJAR Í það minnsta 20 fórust
og yfir hundrað særðust í tveimur
sprengjuárásum á kaþólska kirkju
á eynni Jolo í suðurhluta Filippseyja
í gær. Fimmtán þeirra sem fórust
voru almennir borgarar en fimm
voru hermenn.
Svo virðist sem tvær sprengjur
hafi sprungið, sú fyrri inni í kirkj-
unni en sú síðari fyrir utan, um það
bil sem fólk streymdi þaðan út og
viðbragðsaðilar voru að mæta á
staðinn. Samtökin Íslamska ríkið
hafa lýst því yfir að þau hafi gert út
árásarmennina.
„Hermenn Filippseyja munu tak-
ast á við þessa áskorun og kremja
þá guðlausu glæpamenn sem skipu-
lögðu voðaverkið,“ segir Salvador
Panelo, talsmaður forsetans Rodrigo
Duterte. – jóe
Minnst tveir
tugir fórust í
sprengjuárás
BRASILÍA Hundruð eru talin af eftir
að stífla brast skammt frá brasilísku
borginni Brumadinho. Staðfest er
að fjörutíu hið minnsta hafi farist í
hamförunum en leit stendur yfir að
um þrjú hundruð til viðbótar.
Stíflan brast á föstudag og flæddi
vatn og aur yfir svæðið fyrir neðan
hana. Meðal þess sem varð á vegi
flóðsins var járnnáma og starfsfólk
hennar. Gera þurfti hlé á leit að
eftirlifendum í gær vegna ótta um
að önnur stífla skammt frá kynni
að bresta og stefna öðrum íbúum og
leitarmönnum í hættu. Um 24 þús-
und manns þurftu að yfirgefa heimili
sín á meðan stíflan var könnuð.
Eigandi námunnar er fyrirtækið
Vale og var það ábyrgt fyrir stíflunni.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem slíkt
slys á sér stað á vakt þess en árið 2015
brast stífla með því að nítján fórust
og tugir töpuðu heimilum sínum.
Þá varð eðjan þess valdandi að
drykkjarvatn um 250 þúsund manns
spilltist. – jóe
Annað sinn
sem stífla Vale
brestur í Brasilíu
300
manns hið minnsta er
saknað eftir að stíflan brast
2 8 . J A N Ú A R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:5
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
2
7
-2
2
D
0
2
2
2
7
-2
1
9
4
2
2
2
7
-2
0
5
8
2
2
2
7
-1
F
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K