Fréttablaðið - 06.02.2019, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —3 1 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 6 . F E B R Ú A R 2 0 1 9
Í hverju verður þú meistari?
Taktu þátt í Meistaramánuði Íslandsbanka í febrúar. Skráðu þig í sparnað
og náðu þínum fjárhagslegu markmiðum. islandsbanki.is/meistari
Meistaramánuður Íslandsbanka
STJÓRNMÁL Enn hefur ekki verið
leyst úr formannskrísu umhverfis-
og samgöngunefndar en tvívegis
hefur orðið fundarfall í nefndinni
síðan upp úr sauð á fundi nefndar-
innar fyrir rúmri viku. Uppnámið
varð vegna endurkomu Bergþórs
Ólasonar, þingmanns Miðflokksins,
á formannsstól í nefndinni eftir fjar-
veru frá því fyrir jól í kjölfar Klaust-
urshneykslisins.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að málið sé í algerum hnút og ekkert
samkomulag í sjónmáli milli þing-
flokksformanna flokkanna sem hafa
haft málið til umfjöllunar síðan upp
úr sauð. Allir eru sagðir sammála
um að Bergþóri sé ekki sætt á for-
mannsstóli en þingflokksformenn
stjórnar meirihlutans hafa lagt
áherslu á að stjórnarandstöðuflokk-
arnir þurfi að leysa málið sín á milli
enda umrædd nefnd ein af þremur
sem flokkar stjórnarandstöðunnar
skipti með sér formennsku í, á
grundvelli samkomulags milli
stjórnar og stjórnarandstöðu. Þing-
flokksformenn stjórnarandstöðu-
flokkanna, að Miðflokki frátöldum,
hafi hins vegar bent á að þeir þurfi
meirihluta til að knýja fram breyt-
ingar í nefndinni og stjórnarflokk-
arnir þurfi því að styðja lausn á
málinu.
Miðflokknum stendur til boða að
setja annan mann í nefndina í stað
Bergþórs en að öðrum kosti verði
að kjósa annan formann úr röðum
fulltrúa í umhverfis- og samgöngu-
nefnd.
Eigi samkomulag flokkanna um
formann úr minnihluta að halda,
koma þrír þingmenn þar til greina;
Karl Gauti Hjaltason sem er utan
þingflokka, Helga Vala Helgadóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar, en
hún gegnir formennsku í annarri
þingnefnd, og Hanna Katrín Frið-
riksson, þingmaður Viðreisnar.
Nú ræðir meirihlutinn hins vegar
um að tefla Jóni Gunnarssyni þing-
manni Sjálfstæðisflokksins, fram
sem formannsefni gegn þeim fulltrúa
sem minnihlutinn mun bjóða fram.
Að óbreyttu stefnir því í að boðað
verði til fundar í nefndinni í fyrra-
málið og tillögur, bæði meirihluta
og minnihluta, um nýjan formann
bornar upp til atkvæða.
Ekki liggur hins vegar beint við
að atkvæði falli eftir línum stjórnar
og stjórnarandstöðu. Rósa Björk
Brynjólfsdóttir studdi til dæmis til-
lögu minnihlutans í nefndinni um
að Bergþór Ólason viki sæti á hinum
stormasama fundi í síðustu viku.
Þá er einnig ólíklegt að Bergþór
sjálfur styðji tillögu minnihlutans
um nýjan formann og ekki gefið að
Karl Gauti Hjaltason, sem er utan
þingflokka, fylgi stjórnarandstöðu-
flokkunum að máli, enda sterklega
orðaður við Miðflokkinn. Píratar
eiga ekki fulltrúa með atkvæðisrétt
í nefndinni og ekki Flokkur fólksins
heldur eftir að Karl Gauti var rekinn
úr flokknum. – aá
Stefnir í val milli Jóns og Hönnu
Formannskrísan í umhverfis- og samgöngunefnd er enn óleyst. Meirihlutinn íhugar nú að gera Jón
Gunnarsson að formanni. Minnihlutinn líklegur til að tefla Hönnu Katrínu Friðriksson fram til formanns.
Líklega verður kosið
milli Jóns Gunnarssonar og
Hönnu Katrínar Friðriksson
þegar nefndin kemur saman
á morgun
Þrátt fyrir hvassviðri og fyrirhugaðar lokanir á þjóðvegi 1 á Suðurlandi var nokkur fjöldi ferðamanna við Seljalandsfoss þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði í gær. Þegar Frétta-
blaðið.is ræddi við Magnús Kristjánsson, björgunarsveitarmann á Hvolsvelli, í gærkvöld sagði hann að þá væri farið að slá yfir fimmtíu metra á sekúndu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
D Ó M S M Á L S kú l i
Gunnar Sigfússon
hefur kært Svein
Andra Sveinsson til
héraðssaksóknara
fyrir rangar sakar-
giftir, segir í kæru
sem Fréttablað-
ið hefur undir
höndum. – aá /
sjá síðu 4
Skúli kærir
Svein Andra
VIÐSKIPTi Fjárfestingasjóður í stýr-
ingu vogunarsjóðsins Teleios Capi-
tal hefur fest kaup á hlut í Marel fyrir
um tvo milljarða króna. Þannig átti
sjóðurinn Teleios Global Opportuni-
ties 5,22 milljónir hluta í Marel, jafn-
gildir um 0,77 prósenta eignarhlut,
samkvæmt lista yfir alla hluthafa
félagsins í gær. – hae / sjá Markaðinn
Kaupa í Marel
fyrir 2 milljarða
0
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
3
F
-9
6
5
4
2
2
3
F
-9
5
1
8
2
2
3
F
-9
3
D
C
2
2
3
F
-9
2
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
5
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K