Fréttablaðið - 06.02.2019, Blaðsíða 6
LAND ROVER HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK, SÍMI: 525 6500
Range Rover Sport HSE PHEV
Verð frá: 13.690.000 kr.
Range Rover Sport HSE P400e tengitvinnbíll
setur ný viðmið. Einstök hönnun, framúrskarandi
aksturseiginleikar og 404 hestöfl gera þennan
sportlega lúxusjeppa að hagkvæmum
og umhverfisvænum kosti.
Verið velkomin í reynsluakstur!
RAFMAGNIÐ ER KOMIÐ
Í RANGE ROVER
www.landrover.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
2
1
7
3
R
a
n
g
e
R
o
v
e
r
S
p
o
rt
P
H
E
V
5
x
1
0
f
e
b
TRÚFÉLÖG Borgarráð samþykkti í
síðustu viku að framlengja fram-
kvæmdafrest rússnesku rétttrún-
aðarkirkjunnar á Íslandi um fjögur
ár vegna kirkjubyggingar á lóðunum
Bræðraborgarstíg 2 og Bakkastíg 8.
Söfnuður Moskvu-patríarkatsins
fékk lóðirnar úthlutaðar af Reykja-
víkurborg í október 2008 en enn
hefur ekkert gerst á reitnum þar
sem fyrirhugað er að hin glæsilega
kirkja rísi. Í skjölum málsins segir að
framkvæmdafresturinn nú skiptist
í tveggja ára frest til að hefja fram-
kvæmdir annars vegar og tveggja ára
frest til að ljúka við kirkjuna eftir að
framkvæmdir hefjast hins vegar.
Í bókun meirihlutans, Samfylk-
ingar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri
grænna, eru send skýr skilaboð um
að kirkjan sé hér á síðasta séns. „Þótt
skylda sveitarfélaga nái einvörðungu
til að láta kirkjum þjóðkirkjunnar í
té endurgjaldslausar lóðir þá mark-
aði Reykjavíkurborg sér þá stefnu á
árinu 1999, með vísan til almennra
jafnræðissjónarmiða, að ekki ætti
að gera upp á milli trúfélaga þegar
kemur að réttindum þeirra til lóða
eða undanþágu frá gjaldtöku af
lóðum eða tilbeiðsluhúsum trú-
félaga. Hér er verið að gefa frest til
að hefja framkvæmdir vegna þess
að trúfélagið vill minnka mannvirkið
og með því er verið að verða við ósk
borgarinnar. […] En hér skal undir-
strikað að þetta er frestur til að hefja
framkvæmdir innan tveggja ára og
þetta er lokafrestur.“ – smj
Rétttrúnaðarkirkjan rússneska fær lokaséns hjá borginni
Tillaga að rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni. MYND/ARKITEO
KJARAMÁL „Við þurfum að fara að
komast að einhverri niðurstöðu
fljótlega varðandi launaliðinn. Hvar
sársaukamörk SA liggja og hvernig
það parast við það sem stjórnvöld
eru tilbúin að koma með að borð-
inu,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson,
formaður VR.
Áttundi fundur deiluaðila fer
fram hjá ríkissáttasemjara í dag en
ekki er búist við miklum tíðindum
af honum. Ragnar Þór segir að heil-
mikil vinna sé í gangi þótt ekki sé
alltaf verið að boða til formlegra
funda. „Þetta hefur gengið mjög hægt
en við verðum að gefa forsetum ASÍ
og þessu áhlaupi sem stjórnvöld,
verkalýðshreyfingin og SA ætla að
taka næstu tíu til fjórtán daga til að
sjá hvort það séu snertifletir á mögu-
leikum til að ná langtímasamkomu-
lagi.“
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, segir viðræður bæði flóknar
og tafsamar. „Viðræður eru í gangi
alla daga frá morgni til kvölds. Þegar
viðræður eru ekki í gangi þá er verið
að undirbúa viðræður næsta dags.“
Viðræður SA og Starfsgreinasam-
bandsins (SGS) héldu áfram í gær.
Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri
SGS, segir að engin stórtíðindi hafi
orðið. „Þetta mjakast eitthvað áfram
en við viljum fara að sjá meiri gang
í viðræðunum.“Samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins er vaxandi
óþreyju farið að gæta hjá sumum
aðildarfélögum SGS. Næstu skref
verða metin á formannafundi á
morgun. – sar
Mikil vinna í
gangi utan funda
Áttundi fundurinn fer fram í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
SAMFÉLAGSMÁL Konur sem stigið
hafa fram og sagt frá meintu ofbeldi
sem þær hafa mátt þola af hendi fyrr-
verandi utanríkisráðherra, Jóns Bald-
vins Hannibalssonar, segjast finna
fyrir miklum styrk og krafti og að
þær séu ekki lengur hræddar. Tutt-
ugu og þrjár sögur voru birtar á
mánudagsmorgun eftir að Jón Bald-
vin hafði haldið uppi vörnum í þætt-
inum Silfrinu á RÚV daginn áður.
Guðrún Harðardóttir, systurdóttir
Bryndísar Schram, segist finna fyrir
miklum krafti og vera þakklát fyrir
að hafa skilað skömminni. Um leið
segir hún varnartilburði Jóns Bald-
vins fyrirsjáanlega. „Ég upplifi létti
og að ég hafi skilað skömminni. Það
skiptir svo miklu máli að segja frá og
burðast ekki ein með sögu sína. Og
að geta gert það í krafti fjöldans gefur
manni mikið. Ég er enn þá alveg
óhrædd og finn alveg að þó Jón Bald-
vin sé að malda eitthvað í móinn þá
hefur það engin áhrif á mig og innan
hópsins er andinn jákvæður,“ segir
Guðrún. „Ég þekki alveg Jón Baldvin
og Bryndísi og þessi vörn kemur mér
ekkert á óvart. Ég hef heyrt þetta allt
saman áður. Ég vissi að hann myndi
aldrei verða auðmjúkur og viður-
kenna sinn hlut.“
Frá því fjórar konur sögðu sögu
sína í Stundinni um miðjan síðasta
mánuð hafa fleiri konur viljað koma
fram með sögur sínar. Hundruð
kvenna skipa nú hóp á Facebook
sem helgaður er meintri áreitni Jóns
Baldvins í garð kvenna, frá því að
vera mjög nýlegar sögur allt til þess
tíma er hann var kennari á Ísafirði
fyrir um hálfri öld.
Guðrún segir langsótt að tala um
samsæriskenningar um að stöðva
þurfi bókaútgáfu eða fyrirlestraröð,
líkt og Jón Baldvin hefur gert. „Við
erum tuttugu og þrjár, það má ekki
gleyma því. Og í umræðu um opin-
bera smánun þá skal hafa það hug-
fast að Jón Baldvin hefur nú ítrekað
smánað dóttur sína opinberlega,“
bætir Guðrún við.
Margrét Schram, mágkona Jóns
Baldvins, hefur sagt sína sögu af
Jóni á námsárum hans í Edinborg.
Hún segir illa farið með dóttur Jóns
og segir það fyrir neðan allar hell-
ur hvernig talað sé um hana. „Ég er
virkilega reið yfir árásum á Aldísi og
dóttur hennar. Þessar staðhæfingar
um að hún sé haldin órum vegna
geðveiki og að faðir dóttur hennar
sé eiturlyfjasali. Að það fái að við-
gangast að þessu sé haldið fram er
fyrir neðan allar hellur og það á
sjálfum fréttamiðli ríkisins, RÚV“
segir Margrét.
„Málið er komið úr okkar höndum
og kannski er þetta bara toppurinn á
ísjakanum. Það er svakalegt að hann
hafi komist upp með þetta í öll þessi
ár. Það velkist heldur enginn í vafa
um það að Bryndís er með honum
í þessu,“ segir Margrét og bætir við:
„Ég stend með Aldísi, dóttur hennar
og þessum konum sem ég hef kynnst.
Hann rústaði lífum þeirra.“
sveinn@frettabladid.is
kristjanabjorg@frettabladid.is
Segir varnir Jóns fyrirsjáanlegar
„Hann rústaði lífum þeirra,“ segir Margrét Schram, mágkona Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi
sendiherra og utanríkisráðherra. Þær Guðrún Harðardóttir eru ánægðar með að hafa loks skilað skömminni.
Jón Baldvin Hannbalsson, fyrrverandi utanrikisráðherra og sendiherra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ég stend með Aldísi,
dóttur hennar og
þessum konum sem ég hef
kynnst. Hann rústaði lífum
þeirra
Margrét Schram
Það skiptir svo
miklu máli að segja
frá og burðast ekki ein með
sögu sínu
Guðrún
Harðardóttir
6 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
3
F
-C
2
C
4
2
2
3
F
-C
1
8
8
2
2
3
F
-C
0
4
C
2
2
3
F
-B
F
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
5
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K