Fréttablaðið - 06.02.2019, Síða 14
MARKAÐURINN
ÚTGÁFUFÉLAG 365 miðlar ehf., Kalkofnsvegi 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5000
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is
TIL SÖLU VERSLUNAR-
OG
ÞJÓNUSTUFYRIRTÆKI
NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA 564 2488 OG
skarpur@simnet.is
Verslun ásamt skerpingarverkstæði, sem þjónustað
hefur byggingariðnaðinn í 35 ár er til sölu.
Reksturinn er tvískiptur, Innflutningur, sala á sagarblöðum,
fræsitönnum og öðrum verkfærum fyrir tré- og málmiðnaðinn
annars vegar og hins vegar skerping á sagarblöðum og ýmsum
bitverkfærum fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Fyrirtækið hefur ávallt verið leiðandi á sínu sviði og hefur
yfir að ráða fullkomnum tölvustýrðum skerpingarvélum
fyrir flestar gerðir sagarblaða og verkfæra.
Velta fyrirtækisins var um 40 miljónir á síðasta ári og
felast talsverðir stækkunarmöguleikar í auknum innflutningi.
Allur núverandi rekstur er til sölu ásamt vélum, vörubirgðum
og viðskiptasamböndum. Í dag starfa tveir starfsmenn
hjá fyrirtækinu.
Borgun tapaði rúmlega millj-arði króna í fyrra, samkvæmt heimildum Markaðarins. Til
samanburðar hagnaðist fyrirtækið
um 350 milljónir króna árið 2017
og árið áður nam hagnaður af reglu-
legri starfsemi um 1,6 milljörðum
króna. Það ár hagnaðist Borgun um
6,2 milljarða króna vegna sölu á hlut
í Visa Europe.
Sæmundur Sæmundsson, fram-
kvæmdastjóri Borgunar, vildi ekki
staðfesta fjárhæðina í samtali við
Markaðinn, fyrr en hluthafar hefðu
verið upplýstir um gang mála.
Hann segir að reksturinn gangi
samkvæmt áætlun. Borgun starfi á
ólíkum mörkuðum, það standi að
útgáfu greiðslukorta á Íslandi og sé í
færsluhirðingu á Íslandi, í Bretlandi,
Króatíu, Ungverjalandi, Tékklandi
og Slóvakíu. „Vöxturinn í færslu-
hirðingu er erlendis,“ segir hann.
Markaðshlutdeildin á Íslandi sé 52
prósent.
Sæmundur segir að sex starfs-
mönnum hafi verið sagt upp um
mánaðamótin. Fyrirtækið eigi
í harðri samkeppni og þurfi að
straumlínulaga reksturinn.
Fram kom í Markaðnum í síðasta
mánuði að Íslandsbanki hafi ákveðið
að hefja að nýju söluferli á 63,5 pró-
senta hlut sínum í Borgun. Alþjóð-
lega ráðgjafarfyrirtækið Corestar
Partners annast söluna. Bankinn
fékk Corestar Partners í september
2016 til ráðgjafar við að móta fram-
tíðarstefnu um hlut sinn í Borgun.
Minnihlutaeigendur Borgunar
horfa jafnframt til þess að selja hlut
sinn í fyrirhuguðu söluferli. Eignar-
haldsfélagið Borgun, sem er samlags-
félag í eigu meðal annars Stálskipa og
Einars Sveinssonar fjárfestis, á 32,4
prósenta hlut í Borgun. – hæ, hvj
Borgun tapaði rúmlega milljarði
Sæmundur
Sæmundsson,
framkvæmda-
stjóri Borgunnar.
Allir lífeyrissjóðir í hlut-hafahópi framtakssjóðsins Horns II, að undanskildum
Gildi lífeyrissjóði, samþykktu
að ganga inn í kaup Kólfs á hlut
sjóðsins í Hvatningu, sem fer
með tæplega 40 prósenta hlut í
Bláa lóninu. Auk Gildis ákváðu
tveir hluthafar, sem fara báðir
með óverulegan eignarhlut í
framtakssjóðnum, að hverfa úr
hópi eigenda ferðaþjónustufyrir-
tækisins, samkvæmt heimildum
Markaðarins.
Tilkynnt var um það í nóvember
í fyrra að samkomulag hefði náðst
um kaup Kólfs, sem er í meiri-
hlutaeigu Gríms Sæmundsen,
forstjóra Bláa lónsins, á 49,45 pró-
senta hlut Horns II í Hvatningu.
Var hluthöfum framtakssjóðsins,
sem er í rekstri Landsbréfa, veittur
kaupréttur á sama gengi til loka
janúar á þeim hlutum sem voru
undir í viðskiptunum.
ViðskiptaMogginn greindi
fyrst frá því í liðinni viku að Gildi
lífeyrissjóður, sem heldur á ríf-
lega 18 prósenta hlut í Horni II,
hefði ákveðið að ganga ekki inn í
kaupin en samkvæmt heimildum
blaðsins tengdist ástæðan „veru-
legum annmörkum á skjalagerð
sem tengist fjárfestingunni“, eins
og það var orðað.
Eins og greint hefur verið frá í
Markaðinum í byrjun desember
er Bláa lónið verðmetið á um það
bil 50 milljarða króna í umræddu
samkomulagi Kólfs og Horns II.
Auk Gildis lífeyrissjóðs er Líf-
eyrissjóður verslunarmanna
stærsti hluthafi Horns II með
rúmlega 18 prósenta hlut. Lands-
bankinn fer með 7,7 prósenta
hlut í sjóðnum, Söfnunarsjóður
lífeyrisréttinda 5,9 próesnta hlut
og og VÍS með 5,4 prósenta hlut.
Þeir hluthafar í framtakssjóðnum
sem ákváðu að halda í eignarhlut
sinn munu gera það í gegnum nýtt
félag sem verður stofnað um hlut
þeirra og Kólfs í Hvatningu. – hae, kij
Allir sjóðirnir nema Gildi
nýttu sér kaupréttinn
Fjárfestingasjóður í stýringu evrópska vogunarsjóðsins Teleios Capital, sem er með höfuðstöðvar í Sviss, hefur fest kaup á hlut í Marel
fyrir um tvo milljarða íslenskra
króna. Þannig átti sjóðurinn Teleios
Global Opportunites rúmlega 5,22
milljónir hluta í Marel, sem jafn-
gildir um 0,77 prósenta eignarhlut,
samkvæmt lista yfir alla hluthafa
félagsins í gær og Markaðurinn
hefur séð.
Sjóðurinn kom fyrst inn í hlut-
hafahóp Marels í byrjun síðustu
viku þegar hann keypti samanlagt
fjórar milljónir hluta á genginu 402
eftir lokun markaða á þriðjudag, en
það var verðbréfafyrirtækið Fossar
markaðir sem hafði umsjón með
viðskiptunum.
Vogunarsjóðurinn, sem var stofn-
aður árið 2013, var með eignir upp
á samtals um einn milljarð Banda-
ríkjadala, jafnvirði um 120 milljarða
króna, í stýringu síðastliðið haust en
sjóðurinn fjárfestir einkum í skráð-
um evrópskum félögum.
Núverandi eignarhlutur Teleios
Capital skilar sjóðnum ekki á opin-
beran lista yfir tuttugu stærstu
hluthafa Marels. Einu erlendu fjár-
festarnir á þeim lista eru banda-
ríska fyrirtækið MSD Partners, sjötti
stærsti hluthafi félagsins með 3,6
prósenta eignarhlut, og fjárfestinga-
sjóðurinn Smallcap World Fund,
sem er í stýringu American Funds,
níundi stærsti hluthafi Marels með
tveggja prósenta hlut.
Gengi bréfa Marels hefur hækkað
um meira en tíu prósent það sem af
er þessu ári og stóð í 407,5 krónum
á hlut við lokun markaða í gær.
Markaðsvirði félagsins, sem er hið
langstærsta í Kauphöllinni, er því
núna um 278 milljarðar króna.
Í frétt Financial Times, sem
birtist í september í fyrra, kemur
fram að Teleios Capital fjárfesti í
félögum með markaðsvirði upp á
þrjá milljarða dala eða minna. Þá
horfi sjóðurinn einkum til fyrir-
tækja í Norður- og Norðvestur-Evr-
ópu sem fái litla umfjöllun á meðal
greinenda og séu því almennt lítt
þekkt hjá alþjóðlegum fjárfestum.
Árleg ávöxtun Teleios hefur að
meðaltali numið 17,6 prósentum
frá 2014. Í fyrra bárust yfirtökutil-
boð í fjögur fyrirtæki – SodaStream,
Fenner, Hogg Robinson og Cambian
Group – sem sjóðurinn hafði fjárfest
í, að því er fram kom í umfjöllun
Financial Times.
Skömmu áður en evrópski vog-
unarsjóðurinn festi kaup á samtals
rúmlega tveggja milljarða króna
hlut í Marel hafði félagið Vogun,
sem er í eigu Hvals, fjárfest í Marel
fyrir um milljarð króna. Keypti
félagið 2,55 milljónir hluta, eða sem
nemur tæplega 0,4 prósenta eignar-
hlut, í Marel um miðjan síðasta
mánuð.
Stærsti hluthafi Marels er Eyrir
Invest með tæplega 28 prósenta
hlut. Þá eiga íslenskir lífeyrissjóðir
samanlagt um 38 prósenta hlut.
Stjórnendur Marels vinna nú að
því að skrá félagið tvíhliða í erlenda
kauphöll en til skoðunar er skráning
í Amsterdam, Kaupmannahöfn eða
London. Líklegt er að niðurstaðan
verði kynnt á aðalfundi í mars.
Marel mun birta uppgjör sitt
fyrir árið 2018 eftir lokun markaða
á morgun, miðvikudag, en hagfræði-
deild Landsbankans gerir ráð fyrir
því að tekjur félagsins aukist um 42
milljónir evra og verði samtals 1.170
milljónir evra. Þá áætlar deildin að
EBITDA muni nema samtals 218,2
milljónum evra borið saman við
tæplega 192 milljónir evra á árinu
2017. hordur@frettabladid.is
Vogunarsjóður kaupir
í Marel fyrir 2 milljarða
Evrópski sjóðurinn Teleios Capital hefur eignast 0,77 prósenta hlut í Marel. Kom
fyrst inn í hluthafahóp félagsins í byrjun síðustu viku. Fjárfestir einkum í skráðum
fyrirtækjum í Norður-Evrópu með markaðsvirði undir þremur milljörðum dala.
Árni Oddur Þórðarson er forstjóri Marels en stjórnendur vinna nú að því að skrá félagið tvíhliða í erlenda kauphöll.
278
milljarðar króna er núver-
andi markaðsvirði Marels.
Grímur
Sæmundsen,
forstjóri Bláa
lónsins
6 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN
0
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
3
F
-A
5
2
4
2
2
3
F
-A
3
E
8
2
2
3
F
-A
2
A
C
2
2
3
F
-A
1
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
5
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K