Fréttablaðið - 06.02.2019, Síða 16

Fréttablaðið - 06.02.2019, Síða 16
✿ Skipting eignasafns Heimavalla í lok september 2018 33% 5% 9% 5% 6% 42% n Höfuðborgarsvæðið n Austurland n Norðurland n Suðurland n Suðurnes n Vesturland Gert er ráð fyrir því a ð í b ú ð a l e i g u ­félagið Heimavellir verði leyst upp og eignir þess seldar í skömmtum ef hlut­ hafar félagsins samþykkja að taka það af hlutabréfamarkaði. Þetta herma heimildir Markaðarins. Fram kom í máli fulltrúa verð­ bréfafyrirtækisins Arctica Finance á fundi með hluthöfum Heimavalla að það gæti tekið þrjú til fjögur ár að selja allar eignir leigufélagsins, sem eru um 1.900 talsins, til þess að mögulegt yrði að slíta félaginu. Tímafrekast er talið að það yrði að selja íbúðir félagsins á Suðurnesjum en þær voru um 840 talsins í lok september í fyrra. Snorri Jakobsson, greinandi hjá ráðgjafarfyrirtækinu Capacent, segir að ef það kæmi til upplausnar félagsins myndi það draga mjög úr framboði á leiguhúsnæði og stuðla að hærra leiguverði. Andstaða verkalýðsfélaga gagnvart leigu­ félögum líkt og Heimavöllum sé í því ljósi óskiljanleg. Af samtölum Markaðarins við hluthafa og aðra þá sem þekkja vel til innan Heimavalla að dæma er óvíst hvort margir hluthafar sam­ þykki að ganga að tilboði sem fjár­ festingafélagið Sigla og fjárfestinga­ sjóður í rekstri Alfa Framtaks hafa gert í hlutabréf í leigufélaginu á genginu 1,3 krónur á hlut. Til samanburðar jafngilti bók­ fært eigið fé Heimavalla genginu 1,7 í lok þriðja fjórðungs síðasta árs og miðað við nýlegar sölur leigu­ félagsins á fasteignum í sinni eigu samsvarar upplausnarvirði félagsins gengi í kringum 2. Er það ríflega 50 prósentum hærra en gengið í tilboði Siglu og Alfa Framtaks. Hlutabréfaverð í Heimavöllum, sem er stærsta íbúðaleigufélag landsins, hefur hækkað um ríflega 2,5 prósent frá því að greint var frá bréfi sem nokkrir stærstu hluthafar félagsins skrifuðu stjórn þess síðasta föstudag en í bréfinu fara hluthaf­ arnir, sem eru félög í eigu Finns Reyrs Stefánssonar, Steinunnar Jónsdóttur og Tómasar Kristjáns­ sonar, fram á að stjórnin boði til hluthafafundar þar sem kosið verði um afskráningu félagsins úr Kaup­ höll. Vilja frekari upplýsingar Viðmælendur Markaðarins telja nokkuð skorta á að umræddir hlut­ hafar geri markaðinum grein fyrir fyrirætlunum sínum, svo sem um mögulega eignasölu og upplausn félagsins, fari svo að hlutabréf Heimavalla verði tekin úr viðskipt­ um í Kauphöllinni. Einn viðmæl­ andi bendir þannig á að erfitt sé fyrir hluthafa íbúðaleigufélagsins að taka afstöðu til tilboðsins og til­ lögu þeirra um afskráningu fyrr en áform þeirra skýrist frekar. Af þessum sökum liti óvissa auk þess viðskipti með hlutabréf í Heimavöllum þessa dagana. Gengi bréfanna stóð í 1,22 krónum á hlut eftir lokun markaða í gær en það fór lægst í 1,08 krónur á hlut í nóvem­ ber síðastliðnum. Til samanburðar voru bréfin tekin til viðskipta í Kauphöll á útboðsgenginu 1,39 krónur á hlut í seinni hluta maí­ mánaðar í fyrra. Forsvarsmenn félaganna Gana, Snæbóls og Klasa, sem eiga saman­ lagt ríflega 18,9 prósenta hlut í Heimavöllum, skrifuðu stjórn félagsins umrætt bréf en þar segir að það sé mat hluthafanna að skráning félagsins hafi ekki skilað væntum ávinningi fyrir hluthafa og félagið. Einn viðmælandi í hluthafahópi Heimavalla veltir því fyrir sér hvort hluthafarnir hafi fengið fyrirheit frá fasteignafélögum eða öðrum leigufélögum, svo sem Almenna leigufélaginu, um að kaupa hluta af eignasafni Heimavalla í kjölfar afskráningarinnar. Þess má geta að Sigla, sem er í eigu Gana og Snæbóls, er fjórði stærsti hluthafi Regins og þá er Tómas jafnframt stjórnarfor­ maður fasteignafélagsins. Snorri segir tillöguna um afskrán­ ingu ekki hafa komið á óvart. „Eins og við höfum ítrekað bent á er upp­ lausn félagsins í raun eina vitið. Það felast töluverð hagnaðartækifæri í þessu fyrir hluthafa sem geta fengið eignirnar á útsöluverði,“ nefnir hann. „Staðan er hins vegar að mörgu leyti ótrúlega sorgleg,“ bætir Snorri við og bendir á að upplausn félags­ ins muni að öðru óbreyttu draga mjög úr framboði á leiguhúsnæði og stuðla þannig að hærra leiguverði. „Leigufélög hafa átt gríðarlega erfitt uppdráttar á Íslandi og ég skil ekki þessa miklu andstöðu verkalýðs­ félaga gagnvart þeim. Slík andstaða skilar sér í engu öðru en samdrætti á framboðnu leiguhúsnæði og hærra leiguverði. Hvaða hagsmuni eru verkalýðsleiðtogar að verja með því?“ Snorri nefnir einnig að lífeyris­ sjóðirnir, stærstu fjárfestarnir á íslenskum hlutabréfamarkaði, hafi ekki sýnt Heimavöllum mikinn áhuga. Félagið hafi mögulega ekki hentað þeirra eignasafni vel enda hafi sjóðirnir fremur viljað lána beint til sjóðfélaga á undanförnum árum. Markaðurinn hafi að öðru leyti ekki verið tilbúinn fyrir leigu­ félögin. Afskráning rædd í fyrra Óhætt er að segja að skráning Heimavalla á hlutabréfamarkað hafi valdið vonbrigðum. Hlutabréfin lækkuðu strax í verði á fyrsta við­ skiptadegi og náðu sér aldrei á strik eftir það. Verðlækkunin undan­ farna mánuði hefur gert það að verkum að bókfært virði eigin fjár leigufélagsins hefur haldist umtals­ vert hærra en markaðsvirði þess. Nemur munurinn tæplega fimm milljörðum króna miðað við bók­ fært virði eigin fjár Heimavalla í lok septembermánaðar, sem var rúmir 18,7 milljarðar króna, og núverandi markaðsvirði félagsins, sem er um 13,7 milljarðar króna. Lækkunarhrinan hefur reynt á þolinmæði hluthafa Heimavalla sem keyptu margir hverjir sig fyrst inn í félagið árið 2017 þegar mark­ aðsvirði þess nam meira en 16 millj­ örðum króna. Eins og greint hefur verið frá í Markaðinum kom það til tals í hópi stærstu hluthafa Heimavalla strax í kjölfar skráningar leigufélagsins síðasta sumar hvort réttast væri – í ljósi áðurnefndrar stöðu – að leysa félagið upp og selja eignir. Var sá möguleiki meðal annars ræddur á hluthafafundi Heimavalla snemm­ sumars. Greinendur bentu einnig á þennan möguleika en í verðmati sem ráðgjafarfyrirtækið Capacent sendi frá sér um mitt sumar var tekið fram að „virði eigna félagsins endurspeglast ekki í markaðsverði, ef marka má meðalfermetraverð á starfssvæðum félagsins. Því væri ekki óeðlilegt að eig­ endur félagsins myndu spyrja sig hvort það sé ekki hagstæðast að leysa félagið upp og selja eignir.“ Nokkrir hluthafar lýstu á þessum tíma vilja til þess að skoða þann kost gaumgæfilega en aðrir vildu bíða og sjá hvernig reksturinn og hlutabréfaverðið þróaðist. Bundu þeir í því sambandi sérstaklega vonir við að hagstæð endurfjár­ mögnun félagsins yrði til þess fallin að auka tiltrú fjárfesta á félaginu. Þá heyrðust einnig þær raddir í hluthafahópnum að ólíklega tækist að hámarka virði eignasafnsins með því að setja allar fasteignir félagsins, hátt í tvö þúsund talsins, á markað. Það myndi leiða til of mikillar fram­ boðsaukningar á markaði sem hefði þegar sýnt ýmis merki kólnunar. Eignasala Heimavalla gæti tekið fjögur ár Búist er við því að Heimavöllum verði slitið ef tillaga um afskráningu félagsins úr kauphöll verður samþykkt. Tafsamt gæti orðið að selja fasteignir félagsins, sér í lagi á Suðurnesjum. Greinandi Capacent segir andstöðu verkalýðsfélaga gagnvart leigufélögum óskiljanlega. Heimavellir voru í maí í fyrra fyrsta íbúðaleigufélagið til þess að fara á hlutabréfamarkað. Stórir hluthafar vilja nú af- skrá félagið en þeir telja skráninguna ekki hafa skilað væntum ávinningi fyrir hluthafa og félagið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Kristinn Ingi Jónsson kristinningi@frettabladid.is Íslensku fasteignafélögin eru tölu­vert ódýrari en þau á hinum Norðurlöndunum þegar litið er til verðkennitalna. Horft til rekstrar­ hagnaðar að teknu tilliti til heildar­ virðis, það er hlutafjár og skulda, eru íslensku félögin rúmlega 20 prósent ódýrari. Eiginfjárhlutfall íslensku fasteignafélaganna er um 32 prósent samanborið við um 50 prósent hjá norrænu fasteignafélögunum. Þetta kemur fram í greiningu Capacent. Að mati Capacent eru fasteigna­ félögin vanmetin á markaði. Mark­ aðsgengi Reita er 72,8 en Capacent metur það á 96 krónur á hlut, gengi Eikar er 8,55 á markaði en verðmats­ gengið er 11,3 og markaðsgengi Reg­ ins er 21,5 en verðmatið hljóðar upp á 25,3. Af fasteignafélögunum þremur í Kauphöll á sviði atvinnuhúsnæðis er Eik með hæsta leiguarðsemi. Meðal­ leiguarðsemi Eikar frá árinu 2014 hefur verið 6,4 prósent, Reita 5,8 prósent og Regins um 5,7 prósent. Leiguarðsemi félaganna hefur lækkað á undanförnum árum, einkum vegna hærri fasteignagjalda, að því er fram kemur í greiningunni. Leigutekjur Reita greiða hraðast upp virði fjárfestingareigna eða á 12,2 árum, það tekur 12,6 ár hjá Eik og 14,6 ár hjá Regin. Út frá þessu má draga þá ályktun að hæst leiga sé greidd að meðaltali af eignum Reita miðað við undirliggjandi verðmæti eignanna. „Hér verður þó að hafa í huga að 10 prósent tekna Eikar eru af hótel­ rekstri og teljast ekki til leigutekna. Einhverjum þykir ef til vil skrýtið að Reitir hafi hagstæðasta leigumarg­ faldarann þegar leiguarðsemi félags­ ins er mun lægri en Eikar. Ástæða þess virðist liggja í hærri rekstrar­ kostnaði Reita. Hér vegur þungt að fasteignagjöld Reita af fasteignamati eru hæst meðal fasteignafélaganna og hærri en hjá Eik,“ segir í greiningunni. Samkvæmt útreikningum Capa­ cent er virði yfirfæranlegs skattalegs taps hjá Reitum 5,3 milljarðar króna, 1,4 milljarðar hjá Eik og 0,5 milljarðar hjá Regin. – hvj Fasteignafélögin eru ódýrari en á hinum Norðurlöndunum Reitir greiða hæstu fasteignagjöldin í Kauphöllinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Leigufélög hafa átt gríðarlega erfitt uppdráttar á Íslandi og ég skil ekki þessa miklu and- stöðu verkalýðsfélaga gagnvart þeim. Snorri Jakobsson, greinandi hjá Capacent 20% ódýrari eru íslensku fast- eignafélögin en þau norrænu 6 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN 0 6 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :3 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 3 F -B 8 E 4 2 2 3 F -B 7 A 8 2 2 3 F -B 6 6 C 2 2 3 F -B 5 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 5 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.