Fréttablaðið - 06.02.2019, Page 26
Gunnar og Rakel saman á góðri stund að sumarlagi.
Húsið er annálað
fyrir að halda góð
böll og getur tekið mikið
af fólki.
Gunnar Ólason
Benedikt Bóas
Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is
Rakel er algjör fagurkeri og ef ég hefði valið allt innbú hefði það ekki orðið nærri því
jafn flott. Ég valdi tvo hluti inn á
heimilið, annars vegar stóru kerta
stjakana og hins vegar sófaborðin.
Annars er þetta hennar,“ segir
Gunnar Ólason, söngvari Skíta
mórals, en heimili hans í Hafnar
firði er nú einnig orðið að lager
fyrir netverslun unnustu hans,
Rakelar Fjeldsted Jóhannesdóttur,
sem finnst undir nafninu budin
decor.is
Þar má finna ýmsar fallegar
vörur fyrir heimilið, allt frá kerta
stjökum að olíuarni, ljósakrónum
og ýmsum skrautmunum. „Þetta
er alfarið hugarfóstur hennar og
systur hennar, Guðrúnar Fjeldsted
Jóhannesdóttur, og fór í gang
fyrir jólin. Þetta hefur gengið
vonum framar enda vandaðar
vörur á góðu verði. Heimasíðan er
aðgengileg og það minnkar alltaf
á lagernum. Lagerinn er reyndar á
tveimur stöðum eins og staðan er í
dag en það gengur hratt á hann svo
það er að ganga vel,“ segir hann.
Vinir og kunningjar hafa notið
þess að koma til þeirra og skoða
vörurnar á heimili þeirra í Hafnar
firði. Sumir hafa meira að segja
gengið út með nokkra hluti. „Þetta
er á vefnum eins og staðan er og
það er vettvangurinn núna en
maður veit aldrei hvað framtíðin
Netverslanir bæta flóruna
á verslunarmarkaðinum
Fram undan er risahelgi í tónlistarlífi Gunnars Ólasonar en hann spilar á þrennum tónleikum.
Heima fyrir reka Gunnar og Rakel, unnusta hans, vefverslunina Búðin Decor sem Rakel og systir
hennar byrjuðu með fyrir jólin og umvefja þau sig fallegum munum úr Búðinni á heimilinu sínu.
Það eru margir flottir speglar til sölu
hjá Rakel, stórir sem smáir.
Fjölmargar myndir eru til í Búðinni
Decor. Þessi kallast In the light.
Gítarinn er á sínum stað sem og
glæsilegur plötuspilari.
Strákarnir í Á móti sól spila með
Skítamóral á laugardaginn.
Skítamórall hefur skemmt landanum í fjöldamörg ár og mun gera það áfram á
laugardaginn með risaballi með Á móti sól í Hlégarði í Mosfellsbæ.
ber í skauti sér. Sjálfur er ég farinn
að versla mjög mikið á netinu og
held að þetta sé framtíðin. Það er
enn þá þörf fyrir verslanir, net
verslanir eru bara frábær viðbót
við flóruna.“ segir hann.
Risahelgi fram undan
Gunnar er ekki að fara í mikla
afslöppun um helgina en hann
mun syngja og spila á þrennum
tónleikum. Hann byrjar hjá Einari
Bárðar, en sá er að fagna 20 ára
útgáfuafmæli sínu á Selfossi á
föstudag og í Bæjarbíói í Hafnar
firði á laugardag. Eftir tónleikana
á laugardag verður brunað upp í
Mosfellsbæ þar sem verður farið
úr sparigallanum og í djammfötin
þar sem Skítamórall og Á móti sól
munu telja í sveitaball af dýrari
gerðinni.
„Maður skiptir um ham á
leiðinni og tekur bindið af, já, eða
setur það bara á hausinn,“ segir
hann og hlær.
„Hersingin í kringum tónleika
Einars verður á Rás 2 á föstudags
morgun þar sem fólki verður
gefinn smá forsmekkur af því sem
koma skal.“ Einar ætlar að fagna
útgáfu plötunnar Myndir með
sögustund og „singalong“ tón
leikum í Hvíta húsinu á Selfossi
föstudagskvöldið 8. febrúar og svo
í Bæjarbíói í Hafnafirði, laugar
dagskvöldið 9. febrúar, ásamt fríðu
föruneyti. Í vor voru einmitt 20 ár
frá því lagið „Farin“ kom út með
hljómsveitinni Skítamóral en það
er hennar allra vinsælasta lag og
sló í gegn nánast á einni nóttu.
Eftir tónleikana á laugardag
keyrir Gunnar upp í Hlégarð þar
sem sveitaball af gamla skólanum
verður haldið. „Við höfum gert
þetta einu sinni áður og það
heppnaðist mjög vel en var ekkert í
líkingu við þetta. Húsið er annálað
fyrir að halda góð böll og getur
tekið margt fólk. Við tvískiptum
þessu trúlega þó það eigi eftir
að ákveða hvorir byrja og hvorir
enda. En það er oftast þannig að
fyrra bandið kemur fram undir
lokin og gerir eitthvert húllumhæ.
Úr verður gott partí. Þetta er einn
vettvangur þar sem fólk getur upp
lifað nostalgíuna og þeir sem hafa
ekki kynnst þessu áður fá að sjá um
hvað málið snýst. Þeir sem þekkja
ekki þessa menningu, sem er svo
nauðsynlegt að þekkja, verða bara
að mæta á staðinn.
Sunnudagurinn mun svo fara í
að eyða tíma með fjölskyldunni.
„Það verður vaknað snemma, það
eru tvær litlar vekjaraklukkur á
heimilinu og ein stór og því engin
miskunn þó að pabbi hafi verið að
spila um kvöldið,“ segir hann.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R
0
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
3
F
-A
5
2
4
2
2
3
F
-A
3
E
8
2
2
3
F
-A
2
A
C
2
2
3
F
-A
1
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
5
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K