Fréttablaðið - 06.02.2019, Page 30

Fréttablaðið - 06.02.2019, Page 30
Þegar Bjørn Kjos, forstjóri Norwegian, greindi frá stórhuga áformum norska lággjaldaflug­félagsins um að hefja flug yfir Atlantshafið árið 2012 fór skjálfti um gervallan flugheiminn. Nú hyggst félagið hins vegar hverfa aftur til upprunans. Hlutabréfaverð í norska flugfélag­ inu, sem Kjos stofnaði árið 1993, hefur fallið um sextíu prósent frá því í apríl í fyrra vegna ótta fjárfesta um að félagið hafi, eftir linnulausan vöxt á síðustu árum, færst of mikið í fang. Fregnir síðustu viku af fyrir­ huguðu neyðarútboði flugfélagsins, til þess að tryggja að það geti staðið við skilmála skuldabréfa sinna, stað­ festu þennan ótta. „Eins og Þjóðverjar segja, þá er Norwegian að reyna að leika of mörg dýr í dýragarðinum á sama tíma,“ segir greinandinn Philipp Goedeking í samtali við Financial Times. Hann bendir á að Norwegian hafi – allt á sama tíma – boðið upp á ódýrar flugferðir á milli áfanga­ staða í Evrópu og yfir Atlantshafið og reynt um leið að festa sig í sessi sem flaggskip Noregs í flugi. „En án stærðarhagkvæmni gengur það ekki upp. Það virkaði aldrei,“ bætir Goede king við. Hlutabréf í Norwegian snarhækk­ uðu um næstum því 400 prósent í verði frá því í byrjun árs 2012 þar til í apríl árið 2016 þegar fjárfestar fóru fyrst að efast um að ör vöxtur flug­ félagsins væri sjálfbær til langframa. Tilkynning flugfélagsins í síðustu viku, um að ráðist yrði í forgangs­ réttarútboð fyrir þrjá milljarða norskra króna, jafnvirði 42 millj­ arða íslenskra króna, en sú upphæð er á við meira en hálft markaðsvirði félagsins, kom því fáum fjárfestum og greinendum í opna skjöldu. „Heilt á litið er þetta alls ekki óvænt hlutafjárútgáfa,“ segir Kenneth Sivertsen, greinandi hjá norska verðbréfafyrirtækinu Pareto. IAG seldi sig út Nokkur flugfélög hafa á síðustu árum sýnt kaupum á norska lág­ gjaldaflugfélaginu áhuga við mikinn fögnuð fjárfesta sem telja margir hverjir að yfirtaka á norska félaginu sé besta leiðin til þess að forða því frá gjaldþroti. International Airlines Group (IAG), móðurfélag British Airways, lýsti sem kunnugt er yfir áhuga á Norwegian í fyrra og keypti 4,6 pró­ senta hlut í norska félaginu með það fyrir augum að ganga til yfirtökuvið­ ræðna við stjórn þess. Norwegian, sem tókst að hrista upp í evrópskum flugmarkaði með því að bjóða upp á afar lág far­ gjöld á löngum flugleiðum, hefur gert stjórnendum IAG lífið leitt um nokkurt skeið og hefði síðar­ nefnda félagið því getað losað sig við erfiðan keppinaut með yfirtöku á Norwegian. En eftir því sem óveðursskýin í rekstri norska félagsins hafa hrann­ ast upp hefur áhuginn á félaginu farið dvínandi. Stjórnendur IAG sögðust í liðinni viku hafa hætt við áformin um yfirtökuviðræður og selt allan hlut sinn í Norwegian með þeim afleiðingum að hlutabréfa­ verðið í norska flugfélaginu hríðféll um tuttugu prósent. Gengi bréfanna hélt áfram að falla daginn eftir, þegar tilkynnt var um forgangs­ réttarútboðið, og nam lækkunin fjórtán prósentum í lok dags. Arðsemi í stað vaxtar Í stuttu máli ganga áform Norweg­ ian, sem stjórnendurnir kynntu í liðinni viku, út á að selja frá sér flug­ vélar, fresta afhendingu nýrra véla og ná að öðru leyti fram sparnaði upp á allt að tveimur milljörðum norskra króna. Lét Kjos hafa eftir sér í norskum fjölmiðlum að flug­ félagið ætlaði nú að leggja áherslu á arðsemi í stað vaxtar. „Norwegian hefur gengið í gegnum tímabil mikils vaxtar. Við munum nú byggja upp sterkan efna­ hagsreikning sem getur styrkt frek­ ari þróun félagsins,“ nefndi Kjos. Greinendur sem Financial Times ræddi við segja það skýrt traust­ leikamerki að fjárfestirinn John Fredriksen, ríkasti maður Noregs, hafi ákveðið að taka þátt í útboðinu. Til viðbótar við hann hafa stærstu hluthafarnir, forstjórinn Kjos og stjórnarformaðurinn Bjørn Kise, skuldbundið sig til þess að kaupa hlutabréf fyrir samanlagt 343 millj­ ónir norskra króna. Þá hafa aðrir hluthafar Norwegian jafnframt samþykkt að kaupa bréf fyrir um 267 milljónir norskra króna. Ekki eru þó allir sannfærðir um að innspýtingin muni duga Norwegian til þess að lifa af fram á næsta áratug. Daniel Roeska, greinandi hjá Bern­ stein, bendir á að hlutafjáraukn­ ingin hafi verið nær óhjákvæmileg. „Það er engin leið að þeir hefðu lifað fyrsta ársfjórðung af og því var þetta ekki valkostur heldur nauð­ syn. Annars hefðu skuldabréfin lent í greiðslufalli í lok mars. Ég tel ólíklegt, ef félagið á að lifa af til loka árs 2020, að þetta verði síðasta hlutafjárinnspýtingin sem það mun þurfa á að halda,“ segir Roeska. Milljarðatuga rekstrartap Sivertsen hjá Pareto segir að bráða­ birgðauppgjör Norwegian fyrir síðasta ár, sem félagið greindi frá í síðustu viku, hafi verið „betra á kostnaðarhliðinni en við gerðum ráð fyrir“. Tölurnar voru hins vegar ekki fagrar. Rekstrartap flugfélagsins nam ríflega 3,8 milljörðum norskra króna, 54 milljörðum íslenskra króna, á árinu borið saman við hagnað upp á 59 milljónir norska króna árið 2017 og 3,1 milljarð norskra króna árið 2016. Í ljósi versnandi fjárhagsstöðu norska félagsins er sameining við annað og stærra flugfélag því, að margra mati, enn besti kosturinn í stöðunni fyrir hluthafa Norwegian. Goedeking bendir til að mynda á að IAG geti snúið aftur síðar meir og fengið félagið á lægra verði en áður hefur boðist. Annar mögulegur kaupandi er þýska flugfélagið Luft­ hansa sem myndi gjarnan vilja, að sögn viðmælenda Financial Times, eignast verðmæt afgreiðslustæði norska flugfélagsins á Gatwick­flug­ velli í nágrenni Lundúna, aðalflug­ velli IAG. Norwegian færðist of mikið í fang Greinendur telja að stjórnendur lággjaldaflugfélagsins Norwegian hafi lagt of ríka áherslu á vöxt. Félagið hafi færst of mikið í fang. Ekki eru allir sannfærðir um að milljarða króna innspýting inn í félagið muni duga til. Rekstrartapið nam 4 milljörðum norskra króna 2018. Norwegian hyggst ráðast í forgangsréttarútboð fyrir allt að þrjá milljarða norskra króna, 42 milljarða íslenskra króna, til að geta staðið við skilmála skuldabréfa félagsins og skjóta styrkari stoðum undir fjárhag sinn. NORDICPHOTOS/GETTY Kristinn Ingi Jónsson kristinningi@frettabladid.is Við munum nú byggja upp sterkan efnahagsreikning sem getur styrkt frekari þróun félags- ins. Bjørn Kjos, forstjóri Norwegian Bandaríski fjárfestingarbankinn Goldman Sachs hefur ákveðið að fresta því að greiða fyrrverandi bankastjóranum Lloyd Blankfein og tveimur öðrum fyrrverandi stjórn­ endum bankans bónusa vegna rannsóknar yfirvalda á fjármála­ hneykslinu í kringum fjárfestingar­ sjóðinn 1MDB. Í tilkynningu frá stjórn fjárfest­ ingarbankans kom fram að ákvarð­ anir er varða bónusgreiðslurnar yrðu ekki teknar „fyrr en frekari upplýsingar eru tiltækar“ um rann­ sókn málsins. Embætti ríkissaksóknara í Mal­ asíu ákærði í desember Goldman Sachs og tvo bankamenn fyrir auðg­ unarbrot í tengslum við fjárfest­ ingarsjóðinn sem var sem kunnugt er í eigu malasíska ríkisins. Banda­ ríski fjárfestingarbankinn þáði 600 milljónir dala í þóknanir fyrir að hafa séð um 6,5 milljarða dala sölu á skuldabréfum 1MDB en megnið af andvirði skuldabréfasölunnar rann meðal annars til malasískra embættis­ og stjórnmálamanna í gegnum flókinn vef mútugreiðslna og peningaþvættis. Tim Leissner, fyrrverandi með­ eigandi Goldman Sachs, hefur játað sök sína í málinu en bankinn hefur hins vegar þráfaldlega neitað sök. Þá hefur bankinn verið krafinn um greiðslu sekta upp á þrjá milljarða dala fyrir að hafa komið að stór­ felldum fjárdrætti sem er talinn nema allt að 2,7 milljörðum dala. Auk Blankfeins mun Goldman Sachs fresta bónusgreiðslum til Mike Evans, sem sat meðal annars í stjórn bankans, og Michaels Sher wood, fyrrverandi yfirmanns alþjóðamála hjá bankanum. Í tilfellum Blankfeins og Evans nema greiðslurnar um sjö milljónum dala. – kij Blankfein fær ekki bónusinn strax Lloyd Blankfein, fyrrverandi bankastjóri Goldman Sachs. NORDICPHOTOS/GETTY Bill Gross, sem var eitt sinn þekktur sem kóngur skuldabréfanna, hefur ákveðið að láta af störfum hjá eigna­ stýringarfyrirtækinu Janus Hender­ son og einbeita sér þess í stað að því að stýra eigin eignum og góðgerða­ stofnun. Fimm ár eru síðan Gross stýrði stærsta skuldabréfasjóði heims hjá Pimco, eignastýringarfyrirtæki sem hann stofnaði árið 1971, en eignir sjóðsins námu tæplega 300 millj­ örðum dala þegar mest var. Gross hætti hins vegar í skyndi hjá Pimco árið 2014, vegna ósættis við sam­ starfsfélaga og gekk þá til liðs við Janus Henderson. Eignir í stýringu hjá sjóði Gross hafa dregist verulega saman undan­ farin ár og fóru nýverið undir einn milljarð dala. Ávöxtun sjóðsins var neikvæð um 3,9 prósent í fyrra borið saman við 1,2 prósenta neikvæða ávöxtun hjá sambærilegum sjóðum. „Ég hef þekkt Bill í 23 ár. Bill er einn af bestu fjárfestum allra tíma og það hefur verið mér mikill heiður að starfa við hlið hans,“ sagði Dick Weil, forstjóri Janus Henderson. Auðkýfingurinn George Soros var á meðal þeirra sem lögðu traust á Gross þegar hann skipti um vinnu­ stað fyrir fimm árum. Þegar síga tók á ógæfuhliðina í rekstri sjóðsins árið 2015 dró Soros hálfan milljarð dala úr sjóði Gross. – kij Bill Gross hættur störfum Bill Gross, betur þekktur sem kóngur skuldabréfanna. NORDICPHOTOS/GETTY Embætti ríkissaksóknara í Malasíu ákærði í desember síðastliðnum Goldman Sachs og tvo bankamenn í tengsl- um við malasíska fjárfest- ingarsjóðinn 1MDB. 6 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R10 MARKAÐURINN 0 6 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :3 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 3 F -C C A 4 2 2 3 F -C B 6 8 2 2 3 F -C A 2 C 2 2 3 F -C 8 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 5 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.