Fréttablaðið - 06.02.2019, Page 31
Samkeppnisumhverfi
fjármálakerfisins
12. febrúar á Grand Hótel Reykjavík
Dagsetning/tími: Þriðjudaginn 12. febrúar kl. 08.30-10.00. Morgunverður hefst kl. 08.00.
Staðsetning: Gullteigur, Grand Hótel Reykjavík
Skráningu lýkur: 8. febrúar
Í desember síðastliðnum kom út Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið þar sem
ljósi var varpað á ýmsa þætti er varða stöðu og þróun fjármálakerfisins. Á fundinum verður
samkeppnisumhverfi fjármálakerfisins til umræðu, m.a. í ljósi mikilla tæknibreytinga, nýs
regluverks og fyrirhugaðra breytinga á eignarhaldi banka í eigu ríkisins.
Morgunverðarfundir í tilefni 20 ára afmælis Fjármálaeftirlitsins
Fjármálaeftirlitið efnir á næstunni til morgunverðafunda með fyrirlestrum og umræðum um áhugaverð
málefni tengd fjármálakerfinu. Tilefnið er að Fjármálaeftirlitið hefur starfað í tuttugu ár.
FRAMSÖGUMENN:
Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins
Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði og meðlimur í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands
Kristrún Tinna Gunnarsdóttir, hagfræðingur hjá Oliver Wyman og einn höfunda
Hvítbókar um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið
Pallborðsumræður verða að loknum ávörpum þar sem Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, bætist í hópinn. Fundarstjóri er Fanney Birna Jónsdóttir.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku eigi síðar en 8. febrúar næstkomandi til fme@fme.is
Markmið tilnefningarnefnda er að stuðla að því að stjórn búi í heild yfir nægi-
legri þekkingu og reynslu sem nýtist
fyrirtækinu til framdráttar. Skiptar
skoðanir virðast vera meðal hlut-
hafa um ágæti tilnefningarnefnda
og hafa helst verið viðraðar áhyggjur
af því að ákvörðunarréttur hluthafa,
hvað varðar val á stjórnarmönnum,
sé með þessu fyrirkomulagi skertur.
Þó að leiðbeiningar um stjórnar-
hætti kveði skýrt á um að tilnefn-
ingarnefnd gegni einungis ráðgef-
andi hlutverki gagnvart aðalfundi
og að umboðið til að kjósa stjórn
liggi eftir sem áður hjá hluthöfum,
hefur það sjónarmið heyrst að erfitt
eða nánast ómögulegt sé fyrir hlut-
hafa að kjósa andstætt tilnefningum
nefndarinnar. Þessar áhyggjur eru
skiljanlegar og mikilvægt að strax í
upphafi verði tilhögunin þannig að
gagnsemi tilnefningarnefnda verði
sem mest, án þess að það verði á
kostnað jafnræðis hluthafa eða
hluthafalýðræðis.
Meðal ávinnings tilnefningar-
nefndar er að koma á fót skýru og
gagnsæju ferli fyrir tilnefningu í
stjórn félags. Hefðbundið vinnu-
lag við tilnefningu stjórnar hefur
gjarnan verið tilviljunarkennt.
Sem dæmi má nefna að hluthafar,
sem eiga nægilegt atkvæðamagn
til að „koma manni að í stjórn“ fara
ekki að huga að kandídötum þegar
þeir fá spurnir af því að sá sem
þeir studdu síðast sækist ekki eftir
endur kjöri. Þá eru fjölmörg dæmi
um að á elleftu stundu uppgötvist
að ekki náist að uppfylla lögbundin
kynjahlutföll stjórnarinnar. Einnig
er lenska að hluthafar finni hver í
sínu lagi frambærilega kandídata,
en þegar á hólminn er komið kemur
á daginn að hópinn skortir breidd
eða tiltekna þekkingu eða reynslu
sem skiptir viðkomandi fyrirtæki
miklu máli. Síðast en ekki síst er
gjarnan leitað í þröngan hóp eftir
stjórnarkandídötum og vettvang
hefur skort fyrir hæfa aðila til að
gefa kost á sér til stjórnarstarfa.
Tilnefningarnefndir geta bætt
ferlið til muna með því að eiga
samtal við hluthafa og auglýsa sem
víðast eftir hæfum einstaklingum.
Þó samtal við hluthafa í tilnefn-
ingarferlinu sé alla jafna af hinu
góða þurfa tilnefningarnefndir að
varast að takmarka samráð sitt við
stærstu hluthafana. Sú hefð hefur
skapast að stærstu hluthafarnir velji
að kjósa tiltekna einstaklinga sem
sína fulltrúa í stjórn. Slík ráðstöfun
fer í bága við grunnskilgreiningu á
hlutafélagaforminu þar sem stjórn-
armenn fara með umboð allra hlut-
hafa og öllum stjórnarmönnum ber
að gæta hagsmuna þeirra allra óháð
því hvaðan þeir fá stuðning sinn. Því
er mikilvægt að skapa aðgengilegan
vettvang fyrir alla hluthafa til að
koma á framfæri við tilnefningar-
nefnd sjónarmiðum er varða kröfur
til stjórnarmanna, sem og að gefa
þeim kost á að tilnefna frambæri-
lega einstaklinga.
Sem áður segir ber tilnefningar-
nefnd að ganga úr skugga um að þeir
sem mælt er með til stjórnarsetu búi
sem heild yfir nægilegri þekkingu
og reynslu. Því er ekki nægilegt að
nefndin gangi úr skugga um að þeir
einstaklingar sem mælt er með hafi
hver um sig eitthvað til brunns að
bera, heldur ber nefndinni skylda
til að tryggja sem hagfelldasta sam-
setningu stjórnar fyrir fyrirtækið.
Af þessu leiðir að tilnefningarnefnd
þarf í tillögum sínum að mæla með
ákveðnum hóp eða tiltekinni sam-
setningu. Ekki nægir að gefa álit
á því hvort einstaklingar teljist
hæfir til stjórnarsetu. Í fljótu bragði
virðist því eina færa leiðin að til-
nefna jafn marga einstaklinga og
fjöldi stjórnarsæta sem um ræðir.
Sú leið gefur þó þeim hluthöfum
sem leggja mikið upp úr því að fara
að tilmælum nefndarinnar afar tak-
markaða valkosti. Til þess að gefa
hluthöfum aukið svigrúm mætti þó
vel hugsa sér að tilnefningarnefnd
legði til fleiri en eina mögulega sam-
setningu á stjórn og léti hluthöfum
eftir að velja þar á milli.
Þegar upp er staðið er það ávallt
á forræði hluthafafundarins að
velja stjórn. Hluthafar eiga áfram
að hafa það frelsi að kjósa hvern
sem er, eða hafna hverjum sem er.
Ef hluthafar velja annan kost en
þann sem tilnefningarnefnd mælir
með verður svo að vera. Skýru ferli
og vel rökstuddum tillögum frá til-
nefningarnefnd er fyrst og fremst
ætlað að auka gagnsæi, auðvelda
aðkomu allra hluthafa og þannig
auka líkur á því að hluthafar taki
upplýsta ákvörðun þegar þeir beita
atkvæðisrétti sínum á hluthafa-
fundi. Það er því lykilatriði að störf
tilnefningarnefnda þróist á þann
veg að sá ávinningur náist.
Tilnefningarnefndir
– gagn eða ógagn?
Þóranna
Jónsdóttir
doktor í stjórnar-
háttum og for-
maður nefndar
um endurskoðun
Leiðbeininga um
stjórnarhætti
Til þess að gefa
hluthöfum aukið
svigrúm mætti þó vel hugsa
sér að tilnefningarnefnd
legði til fleiri en eina mögu-
lega samsetningu á stjórn og
léti hluthöfum eftir að velja
þar á milli.
Lifandi fréttamiðill með nýjustu
fréttum allan sólarhringinn
ásamt ítarlegri umöllun um
málefni líðandi stundar.
Kristjana Guðbrandsdóttir,
Fréttamaður
11M I Ð V I K U D A G U R 6 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 MARKAÐURINN
0
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
3
F
-C
C
A
4
2
2
3
F
-C
B
6
8
2
2
3
F
-C
A
2
C
2
2
3
F
-C
8
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
5
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K