Fréttablaðið - 02.02.2019, Side 4

Fréttablaðið - 02.02.2019, Side 4
milljóna króna skaðabótakröfu hefur Guðmundur R. Guðlaugs- son lagt fram á hendur ríkinu vegna atvinnumissis í kjölfar ólögmæts gæsluvarðhalds og fjölda þvingunarráðstafana lög- reglu fyrir tæpum áratug. UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 RAM 3500 - HÖRKUTÓL SEM ENDIST ramisland.is EIGUM ALLAR ÚTFÆRSLUR TIL AFHENDINGAR, SLT, LARAMIE, LARAMIE SPORT, LIMITED OG LIMITED TUNGSTEEN. BJÓÐUM UPP Á 37” TIL 42” BREYTINGARPAKKA. 40” BREYTTUR UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI TÖLUR VIKUNNAR 27.01.2019 TIL 02.02.2019 milljónir króna er hámarksgreiðsla frá ríkinu til ein- staks fjölmiðils fyrir hluta kostn- aðar við ritstjórn samkvæmt frum- varpi ráðherra. prósent þátttakenda í könnun segjast ánægð með að leigja hjá Félagsbústöðum. flugslys urðu á Íslandi í fyrra. Það er í fyrsta sinn síðan 1969 að ekkert flugslys er skráð hérlendis. 50 milljónir króna er áætlað að tveir pálmar í gleri kosti uppsettir í hinni nýju Vogabyggð. 60 79 0140 Fáðu blað dagsins í tölvupósti kl. 5.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista Frétta- blaðsins á www.frettabladid.is/ nyskraning. Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið Þrír í fréttum Tíska, laun og hugtök Kolfinna Von Arnardóttir eigandi Reykjavík Fashion Festival fékk eina milljón króna úthlut- aða í styrk frá menningar-, íþrótta- og tómstunda- ráði Reykja- víkurborgar í fyrra. Hátíðin fór þó aldrei fram. Sigríður Rut Júlíusdóttir formaður starfskjaranefndar Orku- veitunnar Nefndin lagði til og fékk samþykkt í stjórn OR að nefndar- menn fái 25 þúsund krónur á tímann. Er taxtinn sagður miðaður við útseldan tíma hjá eigendum lögmannsstofa. Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands gerði í umsögn við nýtt lagafrum- varp athuga- semd við notkun hugtaksins þungunar- rof. „Hið nýja hug- tak vísar á engan hátt til þess lífs sem sannarlega bærist undir belti og er vísir að nýrri mannveru,“ sagði biskup. KJARAMÁL „Við fórum svo sem yfir nokkur atriði sem við teljum að sé full ástæða til að vinna áfram í smærri hópum. Það eru fjölmörg atriði í okkar kröfugerð sem við erum að reyna að þoka okkur áfram með. Atriði sem við erum til dæmis sammála um að þurfi að taka og dýpka umræðuna um,“ segir Vilhjálmur Birgisson, for- maður Verkalýðsfélags Akraness. K j a r a v i ð r æ ð u r S a m t a k a atvinnulífsins og fjögurra stéttar- félaga héldu áfram hjá ríkissátta- semjara í gær en næsti fundur verður á miðvikudag. Vilhjálmur segir ljóst að það renni skarpt úr stundaglasinu og óþreyju sé farið að gæta hjá félagsmönnum sínum. „Við finnum fyrir auknum þrýst- ingi en jafnframt skilningi á því að þetta geti tekið tíma. Þetta er viða- mikið verkefni sem er hér undir og verður að fá að taka þann tíma sem þarf. Það er samt sem áður alveg ljóst að menn ætla ekkert að bíða bara og bíða.“ Vilhjálmur segir beðið eftir því að það skýrist hvort og hvernig stjórnvöld ætli að koma að kjara- samningunum til þess að hægt sé að leggja heildstætt mat á stöðuna. „Samspil við stjórnvöld verður í þessum samningum miklu meira en hefur kannski áður þekkst.“ Aðalsteinn Baldursson, for- maður Framsýnar á Húsavík, segir ganginn í viðræðum Starfsgreina- sambandsins við SA ágætan varð- andi sérmálin en að launamálin séu í raun bara í bið. „Það verður eitthvað að fara að gerast varðandi launaliðinn og launatöflurnar. Ef það fara ekki að koma fram einhver svör við okkar tillögum og kröfum í lok næstu viku þá sé ég ekki að menn geti beðið lengur með að vísa þessu til ríkissáttasemjara,“ segir hann. Aðalsteinn segir stéttarfélögin fjögur sem þegar hafa vísað deilu sinni til ríkissáttasemjara vera svolítið úti í kuldanum. „Þau vís- uðu fyrir rúmum mánuði síðan og enn er staðan sú að þau hafa ekki séð neinar launatölur frá SA.“ Meðal þeirra þátta sem ræddir hafa verið á fundum SGS og SA eru breytingar á vinnufyrirkomulagi sem Aðalsteini hugnast mjög illa. „Ég hafna öllum hugmynd- um sem ganga út á að skerða neysluhlé starfsmanna eða breyta dagvinnutímabili eða færa yfir- vinnutímabil milli mánaða og gera að dagvinnu. Ég er algerlega á móti þessu og trúi seint að verka- lýðshreyfingin ætli að ljá máls á þessu.“ sighvatur@frettabladid.is Segir óþreyju farið að gæta hjá félagsmönnum á Akranesi Formaður Verkalýðsfélags Akraness segist finna fyrir auknum þrýstingi sinna félagsmanna. Það renni hratt úr tímaglasinu. Verkefnið sé þó viðamikið og samspil við stjórnvöld miklu meira en áður hafi þekkst. For- maður Framsýnar á Húsavík telur félögin fjögur sem hafa vísað til ríkissáttasemjara dálítið úti í kuldanum. Fulltrúar Eflingar, VR, Verkalýðsfélags Akraness og Verkalýðsfélags Grindavíkur ræða stöðuna. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR Ég er algerlega á móti þessu og trúi seint að verkalýðshreyfingin ætli að ljá máls á þessu. Aðalsteinn Baldursson, formaður Framsýnar á Húsavík 2 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 2 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :2 2 F B 1 1 2 s _ P 1 0 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 3 8 -A 8 8 8 2 2 3 8 -A 7 4 C 2 2 3 8 -A 6 1 0 2 2 3 8 -A 4 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 1 2 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.