Fréttablaðið - 02.02.2019, Síða 24
Ragna Fossberg förð-unarmeistari er nýhætt á Ríkisútvarpinu eftir nær hálfrar aldar starf þar. Hún hættir vegna aldurs en hún verður
sjötug 27. febrúar. „Ég er mjög sátt af
því alls kyns verkefni bíða mín. Hins
vegar eru þessar reglur fáránlegar,
þingmenn mega vinna áttræðir og
þeir setja lögin, en ríkisstarfsmenn
verða að víkja sjötugir þótt þeir hafi
fulla heilsu,“ segir hún.
Sjálf er Ragna einstaklega heilsu-
hraust. Hún segir að á þeim 47 árum
sem hún hafi unnið á RÚV hafi hún
einungis tekið fjóra veikindadaga.
Spurð hvort hún sé vinnuþjarkur
svarar hún: „Ég held að ég megi
kallast það. Ég get ekki farið í frí og
legið á sólbekk, ég þarf alltaf að hafa
eitthvað fyrir stafni.“
Hvenær fékkstu fyrst áhuga á
förðun?
„Þetta var bara tilfallandi. Ég lærði
hárgreiðslu og greiddi sjónvarps-
þulunum. Ég kynntist starfsfólki í
húsinu og var reyndar gift einum
sem vann þar. Auðbjörg Ögmunds-
dóttir sem var yfirsminka og dönsk
sminka fengu mig til að hjálpa til
við förðun í uppfærslu á Skálholti
Ég er ennþá
að læra
Ný verkefni bíða Rögnu sem segist samt ekki ætla að fylla líf sitt af vinnu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@frettabladid.is
Ragna Fossberg förð-
unarmeistari vann í
nær hálfa öld hjá Rík-
isútvarpinu. Nú er
hún hætt þar en ný
verkefni bíða hennar.
Í viðtali ræðir Ragna
um starf sitt og segir
frá óvenjulegri og
dramatískri fjöl-
skyldusögu. Hún fór
árið 2000 til Jamaíka
á slóðir fjölskyldu-
harmleiks.
eftir Guðmund Kamban. Eftir það
var mér bent á að sækja um starf
sminku og Auðbjörg kenndi mér
síðan undirstöðuatriðin í förðun.
Þannig byrjaði boltinn að rúlla.
Þetta hefur verið mjög skemmtilegt
starf og ég segi alltaf að ég sé enn að
læra. Ef ég hefði einhvern tímann
fundið að ég væri ekki lengur að
læra þá hefði ég hætt.“
Á þessum árum hafa fjölmargir
sest í stólinn hjá Rögnu og fengið
smink. Spurð hvort hún hafi farðað
fólk sem hafi verið skjálfandi af
stressi fyrir upptöku svarar hún því
játandi: „Það gerist oft þegar fólk er
að koma í fyrsta skiptið og oftar hjá
konum, allavega viðurkenna þær
frekar að þær séu stressaðar. Þá er
það mitt að afstressa fólk og það
gengur oft mjög vel.“
Hún segir að það hafi komið fyrir
að fólk hafi neitað að láta sminka
sig. „Thor Vilhjálmsson neitaði
alltaf og þá var það bara í góðu lagi.
David Attenborough sagðist alltaf
hafa neitað að láta sminka sig. Við
sminkurnar erum ekki að breyta
fólki með því að farða það, við erum
að láta fólki líða vel. Við erum iðn-
aðarmenn.“
Himneskir íslenskir leikarar
Ragna hefur gert alls kyns gervi fyrir
ýmsa þætti eins og Spaugstofuna og
Áramótaskaup. Hún er spurð hvort
hún sé sérstaklega stolt af einhverju
sérstöku gervi sem hún hafi gert. „Já,
það sem mér hefur fundist takast
best er Halldór Laxness sem Pálmi
Gestsson lék. Hann var það líkur
Laxness að Dunu dóttur hans fannst
óþægilegt að horfa á hann.“
Hún hefur séð um förðun í tuga
kvikmynda og hefur sjö sinnum
unnið til Edduverðlauna. Hún
hefur unnið með Baltasar Kormáki í
flestum mynda hans. „Hann er stór-
kostlegur leikstjóri, er fylginn sér
og það sem hann segir stenst. Hann
er með fasta mynd í huganum og
er ekki stöðugt að umbylta henni.
Það getur verið erfitt að vinna með
leikstjórum sem eru alltaf að breyta
hlutunum og ætlast svo til að maður
viti af breytingunum án þess að þeir
hafi sagt manni frá þeim.“
Hún hefur farðað fjölda erlendra
stórstjarna en segir skemmtilegra að
vinna með íslenskum leikurum en
þeim erlendu. „Sumum erlendum
stórleikurum finnst að það eigi að
vera vesen í kringum þá og þeir
komast upp með mikla tilætlunar-
semi. Upp til hópa er þetta samt
ágætis fólk. Ég kynntist Forrest
Whittaker sem er afskaplega geð-
ugur eins og Julie Christie, og Julia
Stiles er yndisleg ung manneskja.
Þetta er fólk sem fellur inn í það
umhverfi sem það er í.
Íslenskir leikarar eru himneskir,
það er aldrei neitt vesen í kringum
þá. Nýlega var ég að vinna með
Elmu Lísu Gunnarsdóttur sem leikur
aðalhlutverkið í Tryggð, og hún er
yndisleg manneskja. Í myndinni
er hún í hverri einustu senu og það
kostar mikið átak fyrir leikara að
túlka gleði og sorg allan tímann.
Hún gerir það frábærlega.“
Amma var mamma
Blaðamaður snýr talinu að uppvexti
Rögnu og í ljós kemur fjölskyldusaga
sem er sneisafull af dramatík og þar
er líka mikill harmur.
„Æskuheimili mitt var Barma-
hlíð 7 þar sem ég bjó til tvítugs. Þar
voru bæði amma mín, Jóhanna, og
blóðmóðir mín, Helga. Ömmu mína
kallaði ég móður og blóðmóður
mína kallaði ég systur. Ég veit ekki
hver faðir minn er, hef aldrei reynt
að komast að því og mér stendur svo
innilega á sama,“ segir Ragna.
Spurðir þú aldrei blóðmóður þína
hver væri faðir þinn?
„Jú, ég gerði það en það gekk ekki
þannig að ég hætti að spyrja. Það
skipti heldur ekki máli. Ég fékk gott
og heilbrigt uppeldi hjá þeirri konu
sem ól mig upp.“
Hvenær vissirðu að hún væri ekki
mamma þín?
„Í barnaskóla átti ég að skrifa
fæðingarártal móður minnar og
þá setti ég höndina fyrir til að fela
blaðið því enginn mátti sjá að móðir
mín var fædd 1889. Fyrir fermingu
þurfti ég svo að ná í fæðingarvottorð
Á ÞEIM 47 ÁRUM SEM HÚN
HAFI UNNIÐ Á RÚV HAFI
HÚN EINUNGIS TEKIÐ
FJÓRA VEIKINDADAGA.
2 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
2
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:2
2
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
3
8
-D
9
E
8
2
2
3
8
-D
8
A
C
2
2
3
8
-D
7
7
0
2
2
3
8
-D
6
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
1
2
s
_
1
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K