Fréttablaðið - 02.02.2019, Page 36

Fréttablaðið - 02.02.2019, Page 36
Ásthildur er fædd og uppalin í umhverfi sveitarstjórnar­mála og landsmála. Faðir hennar, Sturla Böðvarsson, var bæjarstjóri í Stykkishólmi í 20 ár og sat á Alþingi í 17 ár. „Sveitar­ stjórnarmálin og seinna landsmál­ in voru alltumlykjandi á heimilinu og maður drakk þetta eiginlega í sig með móðurmjólkinni. Mér þóttu sveitarstjórnarmálin alltaf áhugaverð,“ segir Ásthildur sem hefur starfað í sveitarstjórnar­ málum og hjá hinu opinbera í hartnær 20 ár. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á málefnum sam­ félagsins, hvernig megi búa svo um hnútana að velferð fólks sé sem mest og umhverfið þannig að allir geti þroskast og dafnað. Það er skemmtilegt og spennandi að vinna hjá sveitarfélagi og geta haft áhrif á nærsamfélag sitt.“ Tók ástfóstri við Vestfirði Ásthildur var bæjarstjóri í Vestur­ byggð í átta ár áður en hún tók við starfi bæjarstjóra Akureyrar. „Við fjölskyldan bjuggum þá á Patreks­ firði en maðurinn minn er þaðan. Þetta var ákaflega góður tími fyrir okkur öll. Á þessum átta árum tók ég miklu ástfóstri við Vestfirði og held áfram að fylgjast náið með öllu sem er að gerast þar. Vestfirð­ ingar eru kraftmikið og dugandi fólk,“ segir Ásthildur en ítrekar um leið að hún sé fyrst og fremst Snæ­ fellingur. Einstakar móttökur Ásthildur tók við sem bæjarstjóri á Akureyri í september á síðasta ári. „Það hefur verið mjög ánægjulegt fyrir mig að finna hversu jákvæðir bæjarbúar eru í minn garð. Ég hef fengið einstakar móttökur sem ég er mjög þakklát fyrir.“ Hún segir engan risastóran mun á því að stýra Vesturbyggð og Akur­ eyri. Bæði séu í vissum skilningi dreifbýl sveitarfélög því eyjarnar Grímsey og Hrísey eru hluti af sveitarfélaginu Akureyri. „Ég segi stundum að það sé erfiðara að vera bæjarstjóri í smábæ en flóknara og annasamara í stærra samfélag­ inu. Í litla samfélaginu þarftu hins vegar að gera flest sjálfur og þar er nándin mikil.“ Mikilvægt að byggja upp flugvöllinn Hagsmunamál Eyfirðinga og Akureyringa brenna á Ásthildi. „Ég er raunar á þeirri skoðun að hags­ munamál einstakra sveitarfélaga séu iðulega hagsmunamál landsins alls því það er engum til hagsbóta að einn landshluti sé látinn sitja á hakanum og það myndist ójafn­ vægi á milli landshluta. Í þessu sambandi má til dæmis líta til uppbyggingar alþjóðaflugvallarins á Akureyri. Við þurfum augljós­ lega að eiga sterkan varaflugvöll ef samgöngur um Keflavík truflast af einhverjum orsökum.“ Önnur hagsmunamál Eyfirðinga að mati Ásthildar eru til dæmis raforku­ öryggi og uppbygging í skóla­ kerfinu. „Akureyri er sterkur fjöl­ skyldubær og það brennur á mér að rennt sé enn traustari stoðum undir gott fjölskyldulíf í bænum. Bærinn býður upp á mjög góða þjónustu við íbúa sína en það má alltaf gott bæta.“ Mörg sóknarfæri Ásthildur segir mörg sóknarfæri í sveitarfélaginu. „Háskólinn er okkar fjöregg og Akureyri tók stökk fram á við þegar skólinn tók til starfa. Flugvöllurinn getur verið stjóriðjan hér í Eyjafirði en við þurfum uppbyggingu á honum sem er lykilatriði fyrir vöxt ferða­ þjónustunnar. Við erum einnig með tvö öflugustu matvælafram­ leiðslufyrirtæki landsins, stórt alþjóðlegt sjávarútvegsfyrirtæki og í kringum þau eru sömuleiðis sterk stoðfyrirtæki,“ segir Ásthildur sem telur að frekari nýsköpun og fleiri verkefni hjá þessum fyrirtækjum muni gera þennan geira þann öflugasta í landinu. „Ég er einn­ ig sannfærð um að starfsemin í kringum háskólann geti vaxið enn frekar, þá sérstaklega í tengslum við þessi fyrirtæki sem ég nefndi.“ Fjölskyldan alsæl Eiginmaður Ásthildar er Hafþór Gylfi Jónsson útgerðarmaður og börnin þeirra eru Daníel Jón, tæplega 17 ára, og Lilja Sigríður, tveggja ára. Hún er innt eftir því hvort fjölskyldan hafi verið sátt við að flytja sig um set. „Það má segja að maðurinn minn hafi átt þá hugmynd að flytja hingað norður. Sonur okkar var á leið í Menntaskólann á Akureyri og þetta var því augljóslega ekki fráleit hugmynd. Svo fór að ég var ráðin í starf bæjarstjóra. Við fjöl­ skyldan erum alsæl og teljum þetta mikið gæfuspor. Það er nefnilega frábært að búa á Akureyri. Nú til dags er fólk yfirleitt ekki bundið neinum átthagafjötrum og mér líður að mörgu leyti eins og ég sé komin heim.“ Blómlegt mannlíf Ásthildur segir Akureyri einstakan stað með ótal afþreyingarkostum. „Ég hefði aldrei getað ímyndað mér hversu gott er að búa hérna á Akureyri. Þjónustan við barna­ fjölskyldur er að mínu mati framúrskarandi og hér upplifi ég það lífsmunstur sem fólk sækist Ásthildur og Lilja Sigríður. Lilja Sigríður hélt upp á tveggja ára afmælið sitt á Akureyri. Mamma og pabbi eru sæl með stelpuna sína. Ásthildi og fjölskyldu hennar líður afskaplega vel á Akureyri og þau hlakka til næstu ára. MYND/AUÐUNN NÍELSSON Framhald af forsíðu ➛ einna helst eftir, það er að segja einfalt og streitulítið daglegt líf. Hér er vinnukúltúrinn agaður, hér sér maður að fólk drífur sig út í hreyfingu um leið og vinnudegi lýkur. Framboðið er mikið; skíði, hlaup, hjólreiðar, sund, siglingar, golf, fótbolti og skautar. Svo ég tali nú ekki um umfangsmikið stígakerfi í bænum sem fólk nýtir sér í æ meira mæli. Það eru ekki bara íþróttir og hreyfing sem vekja athygli heldur einnig dásamlegt menningarstarf; Listasafnið, Leik­ félag Akureyrar, Menningarhúsið Hof og svo frábært tónlistarlíf. Bærinn er mikill suðupottur blóm­ legs mannlífs.“ En er hún komin með einhver plön fyrir sumarið? „Mitt stærsta verkefni verður auðvitað að sinna þessu skemmti­ lega starfi. Ég hlakka til að hjóla um hjólastígana sem liggja um alla Akureyri og fíflast á leiksvæðunum sem eru óteljandi með Lilju Sigríði. Sömuleiðis hlakka ég til að heim­ sækja eyjarnar Hrísey og Grímsey og skoða mannlífið þar að sumar­ lagi. Svo verður dásamlegt að njóta Lystigarðsins, sundlaugarinnar og Kjarnaskógar sem íbúi en ekki sem ferðamaður. Ég held að ég sé að breytast í Akureyring á undra­ skömmum tíma.“ Við fjölskyldan erum alsæl og teljum þetta mikið gæfu- spor. Það er nefnilega frábært að búa á Akur- eyri. Í Hlíðarfjalli er að finna frábært skíðasvæði. Hér er Ásthildur á skíðum með vinkonum sínum þeim Brynhildi Einarsdóttur og Kristrúnu Lind Birgisdóttur. Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 0 2 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :2 2 F B 1 1 2 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 3 8 -F 7 8 8 2 2 3 8 -F 6 4 C 2 2 3 8 -F 5 1 0 2 2 3 8 -F 3 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 1 2 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.