Fréttablaðið - 02.02.2019, Page 92
„Hvað skyldi þetta nú
vera,“ sagði Konráð og
tók upp pappírsblað
með tölustöfum og
undarlegum táknum
sem hann sá liggja
á jörðinni. „Mér
sýnist þetta vera
stærðfræðiþraut,“
sagði Lísaloppa.
„En þessi þrjú tákn
þarna eru ekki tölustafir,
svo það getur nú varla
verið,“ sagði Konráð. „Það
er nú einmitt þrautin,“
sagði Lísaloppa.
„Að finna út fyrir hvaða
tölustafi þessi þrjú tákn
standa, svo þessi fjögur
dæmi gangi upp,“ bætti
hún við.
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
338
Getur þú reiknað út fyrir hvaða tölustafi táknin þrjú standa
?
?
?
Lausn á gátunni
@ er 2, ¥ er 5 og § er 8 ?
Nafn: Lillý Elísabet Jökulsdóttir
Aldur: Sjö ára
Skóli: Kársnesskóli
Hvað finnst þér skemmtilegast að
læra í skólanum? Ég veit það ekki.
Eiginlega bara allt. Finnst gaman
í stærðfræði og íslensku og er góð í
íslensku en annars allt gaman.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera eftir skóla? Ég fer alltaf í dægra-
dvölina eftir skóla og leik mér. Lita,
perla, og stundum fæ ég að leika með
legó eða playmó.
Ertu að æfa einhverjar íþróttir eða
í tómstundum? Ég er að æfa sund og
frjálsar.
Hvað langar þig að verða þegar þú
ert orðin stór? Vísindamaður, skóla-
kennari eða kafari. Mig langar að
verða vísindamaður því mér finnst
risaeðlur svo flottar, og ég held líka
að sumar risaeðlur séu pínulitlar. Svo
langar mig að vera kafari því ég held
það séu svo mörg flott dýr og svo fal-
legt í sjónum.
Áttu gæludýr? Zizou og Keano. Þau
eru Husky-hundar. Þau eru stór og
Keanu er með tvílit augu, eitt blátt og
eitt brúnt, en Zizou er með tvö blá.
Ég væri alveg til í að eiga fleiri dýr
en mest myndi mig langa til að eiga
tígrisdýr – ef það væri tamið.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
Sviðakjammi og núðluréttur.
Hvað myndir þú taka með þér á
eyðieyju? Ég myndi taka með mér
mat, Zizou og Keano og fjölskylduna
mína.
Hvað finnst þér skemmtilegt að
horfa á í sjónvarpinu? Það er mjög
margt en aðallega K3 og Blíða og
Blær.
Hvernig heldur þú að framtíðin
verði? Árið 2050? Held að heim-
urinn verði mjög ólíkur því sem
hann er núna. Held það verði búið
að brenna fleiri hús og bara dálítið
öðruvísi. Ég held að bílarnir verði
alveg eins og núna en kannski aðeins
verri. Ég held að fólkið verði jafngott
og núna.
Hver er uppáhaldsliturinn þinn?
Grænn.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera þegar það snjóar? Oftast finnst
mér skemmtilegast að hlaupa allsber
út og rúlla mér í snjónum. Ég gerði
það með Uglu systur hans pabba um
daginn.
Væri til í
að eiga tamið
tígrisdýr
Lillý Elísabetu langar til að verða vísinda-
maður, skólakennari eða kafari þegar hún er
orðin stór. Henni finnst skemmtilegt sport að
hlaupa allsber út og velta sér í snjónum.
Lillý Elísabetu Jökulsdóttur finnst risaeðlur flottar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Gallsteinar afa Gissa er stór-skemmtileg saga eftir Krist-ínu Helgu Gunnarsdóttur.
Gallsteinar afa Gissa fjallar um
Torfa og Grímu sem eiga virkilega
leiðinlega fjölskyldu. Mamma þeirra
er skipanaglaður harðstjóri með
hollustuæði, pabbinn er viðutan
vinnusjúklingur og Úlfur er ömur-
legt unglingaskrímsli. Systkinin
dreymir um afslappað heimilislíf,
gæludýr og gotterí. Getur hinn sí-
glaði sjóari, afi Gissi, látið draumana
rætast? Hvað gerist ef Torfi og Gríma
eignast óskasteina? Geta óskir verið
hættulegar?
Leikfélag Akureyrar mun frum-
sýna barna- og fjölskyldusöngleik
byggðan á bókinni í Samkomu-
húsinu 23. febrúar næstkomandi.
Leikstjóri sýningarinnar er Ágústa
Skúladóttir.
Við mælum með
Gallsteinum
2 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R48 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR
0
2
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:2
2
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
3
8
-C
1
3
8
2
2
3
8
-B
F
F
C
2
2
3
8
-B
E
C
0
2
2
3
8
-B
D
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
1
2
s
_
1
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K