Fréttablaðið - 26.02.2019, Page 6

Fréttablaðið - 26.02.2019, Page 6
KJARAMÁL Atkvæðagreiðslan um verkfallsaðgerðirnar er rafræn en einnig er hægt að greiða atkvæði á skrifstofu Eflingar. Þar að auki keyr- ir sérstakur bíll milli vinnustaða og safnar utankjörfundaratkvæðum. Hófst sú þjónusta í gær og var Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, ánægður með viðtökurnar. „Við höfum heldur betur fengið góð viðbrögð við þessu. Það hafa verið raðir á vinnustöðum og ótrú- leg stemning. Þetta er alveg magnað og hreint stórkostlegt,“ segir Viðar. Rétt til að greiða atkvæði hafa allir félagsmenn sem vinna sam- kvæmt kjarasamningi vegna vinnu í veitinga- og gistihúsum. Aðf lutt verkafólk er um helm- ingur félagsmanna í Eflingu og enn stærri hluti þeirra sem mögulega fara í verkfall 8. mars. Viðar segir mjög vel hafa gengið að ná til þessa hóps og koma til hans skilaboðum. „Það er hluti þess sem við höfum verið að undirbúa síðustu mánuði. Við höfum verið að rækta okkar tengsl við þessa félagsmenn. Það hefur verið eitt af okkar forgangs- málum en við höfum til dæmis verið að fara inn á vinnustaði með fundi þar sem kosnir hafa verið trúnaðarmenn.“ Oft sé um að ræða vinnustaði þar sem aldrei áður hafi verið kos- inn trúnaðarmaður. „Það er hluti af okkar nýju hugmyndafræði að virkja fólk til þátttöku í félaginu og til þess að standa almennt vörð um sín réttindi sjálft. Við höfum því búið rækilega í haginn fyrir þetta og finnum það mjög skýrt þegar við rúllum af stað svona aðgerð eins og verkfallskosningu.“ Samkvæmt nýjustu kjarakönnun Ef lingar sem gerð var síðastliðið haust voru meðalheildarlaun þeirra sem starfa í gisti- og veitingaþjón- ustu 449 þúsund krónur á mánuði. Var það um 30 þúsund krónum minna en meðaltal allra félags- manna Eflingar. Í eldri könnunum Ef lingar og Flóabandalagsins voru laun ræst- ingafólks sérstaklega könnuð. Haustið 2017 voru meðalheildar- laun þess hóps 393 þúsund á mánuði. Til samanburðar voru meðalheildarlaun í gisti- og veit- ingaþjónustu þá 423 þúsund en hjá öllum félagsmönnum 473 þúsund. Þess ber að geta að launarann- sóknir Hagstofunnar ná ekki til starfsfólks í gisti- og veitingaþjón- ustu. Viðar segir ljóst að ræstingafólk sé hópur sem vinni oft mjög langan vinnudag og vaktavinna sé regla frekar en undantekning. „Þótt við sjáum einhverjar tölur sem ná yfir 400 þúsund á mánuði þá er það ekki vegna þess að fólk sé yfirborgað. Það er bara vegna þess að fólk er að vinna margar vaktir og er að hala þetta inn með álagsgreiðslum.“ sighvatur@frettabladid.is Gengið vel að ná til erlendra starfsmanna Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun starfsmanna Eflingar sem starfa við þrif og hreingerningar á hótelum og gistihúsum hófst í gær. Samtök atvinnulífsins telja atkvæðagreiðsluna ekki standast lög og hvetja Eflingu til að stöðva hana. LAND ROVER HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK, SÍMI: 525 6500 Range Rover Sport HSE PHEV Verð frá: 13.690.000 kr. Range Rover Sport HSE P400e tengitvinnbíll setur ný viðmið. Einstök hönnun, framúrskarandi aksturseiginleikar og 404 hestöfl gera þennan sportlega lúxusjeppa að hagkvæmum og umhverfisvænum kosti. Verið velkomin í reynsluakstur! RAFMAGNIÐ ER KOMIÐ Í RANGE ROVER www.landrover.is E N N E M M / S ÍA / N M 9 2 1 7 3 R a n g e R o v e r S p o rt P H E V 5 x 1 0 f e b Deila um lögmæti Samtök atvinnulífsins skoruðu í gær á Eflingu að stöðva atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls þar sem ólöglega sé að henni staðið. Telja samtökin að ekki sé heimilt að um átta þús- und félagsmönnum sé boðið að taka þátt í atkvæðagreiðslu um aðgerðir sem myndu aðeins ná til um 700 félagsmanna. Þessu hafnar Viðar Þorsteins- son, framkvæmdastjóri Eflingar. Hann segir lögmenn félagsins hafa farið vel yfir undirbúning og framkvæmd atkvæðagreiðsl- unnar. Þar hafi þeir meðal annars notið liðsinnis Alþýðu- sambands Íslands. Þess má geta að Magnús M. Norðdahl, deildarstjóri lög- fræðideildar ASÍ, er jafnframt formaður kjörstjórnar Eflingar. Bíll frá Eflingu keyrði milli gististaða þar sem hægt var að greiða atkvæði um verkfallsaðgerðir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN STJÓRNSÝSLA Seðlabankinn telur eðlilegt að endurskoða strax allar sektarákvarðanir og sættir vegna brota á fjármagnshöftum í gildistíð tiltekinna eldri reglna um gjaldeyr- ismál, þar til reglurnar voru lögfest- ar síðla árs 2011, og fara þess á leit að ríkissjóður endurgreiði sektir vegna brota á reglunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum í gær. Sem kunnugt er birti umboðs- maður Alþingis í lok janúar álit vegna kvörtunar Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, þar sem meðal annars var komist að þeirri niðurstöðu að við með- ferð máls Þorsteins Más hjá Seðla- bankanum hefði bankinn ekki tekið afstöðu til röksemda sem lutu að afstöðu ríkissaksóknara til gildis laga og reglna um gjaldeyrismál sem refsiheimilda. Seðlabankinn lagði 1,3 milljóna króna stjórnvaldssekt á Þorstein Má en hann var meðal annars sakaður um að hafa ekki skilað innan tilskilinna tíma- marka erlendum gjaldeyri sem hann fékk greiddan á árinu 2010 vegna endur- greiðslu láns til f jár- málafyrirtækis. Þorsteinn Már hélt því hins vegar fram að bankann hefði skor t heim- ildir til að gera h o nu m a ð greiða stjórnvaldssekt vegna brota á reglunum og að auki hefði ekki verið um neitt brot að ræða. Veg na álit s umboðsmanns Alþingis ritaði Seðlabankinn ríkis- saksóknara bréf þar sem þess var óskað að ríkissaksóknari skýrði frekar þau ummæli um gildi reglna um gjaldeyrismál sem refsiheimilda sem fram komu í fyrri ákvörðunum hans, að því er rakið var í tilkynn- ingu Seðlabankans. „Í svarbréfi ríkissaksóknara sem barst Seðlabankanum undir lok síðustu viku segir að mat hans sé að reglur um gjaldeyrismál gátu ekki talist gild refsiheimild fyrr en þær voru lögfestar með lögum nr. 127/2011.“ Með bréfinu er þar með tekinn af allur vafi um að mat ríkissak- sóknara, sem æðsta handhafa ákæruvalds, sé að reglusetningar- heimild í bráðabirgðaákvæði laga um gjaldeyrismál hafi ekki uppfyllt áðurnefnd skilyrði um framsal laga- setningarvalds og skýrleika refsi- heimilda. Þar með gætu reglur um gjaldeyrismál, sem settar voru á grundvelli bráðabirgða- ákvæðisins, ekki talist gildar sem refsiheimild,“ segir í tilkynn- ingunni. – kij Ríkið endurgreiði sektir K JARAMÁL Fjölmennur fundur fagaðila í iðnaði, sem haldinn var í gær, fordæmdi harðlega það sem þeir telja óforskömmuð vinnubrögð verkalýðshreyfingarinnar þar sem þeir hafi gengið freklega fram hjá innlendri framleiðslu við inn- flutning á fullbúnum húsum, inn- réttingum og húsgögnum hingað til lands. „Að forsvarsmenn verkalýðs- hreyfingarinnar semji við erlenda aðila um innflutning á húsum, inn- réttingum og húsgögnum, á sama tíma og þeir eiga að standa vörð um innlenda framleiðslu, vernda störf, halda við kunnáttu í handverki og tryggja réttindi þeirra starfsmanna sem vinna þessi störf, ber heil- indum þeirra ekki gott vitni,“ segir í ályktun fundarins. „Það er heldur ekki sannfærandi vitnisburður um getu þeirra til að sinna þeim störfum sem þeim hefur verið falið.“ Á þennan fund mætti fjöldi iðn- aðarmanna sem fordæma starfs- hætti ASÍ og BSRB. „Fasteignafélagið Bjarg, stofnað af ASÍ og BSRB, hefur látið fram- leiða og f lytja inn einingahús frá Lettlandi og borið fyrir sig að inn- lendir aðilar anni ekki því magni sem óskað er eftir,“ segir Eyjólfur Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Axis. „Þetta er klárlega næsti bær við félagsleg undirboð og við telj- um þessi samtök, sem verja eiga réttindi verkafólks, ekki gera það í þessu tilviki.“ – sa Iðnaðarmenn hjóla í verkalýðshreyfinguna Eyjólfur Eyjólfs­ son, fram­ kvæmdastjóri Axis. Már Guð­ mundsson seðla­ bankastjóri. 2 6 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 6 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :4 2 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 6 8 -9 D A 0 2 2 6 8 -9 C 6 4 2 2 6 8 -9 B 2 8 2 2 6 8 -9 9 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.