Fréttablaðið - 26.02.2019, Side 8

Fréttablaðið - 26.02.2019, Side 8
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kjartan Hreinn Njálsson kjartanh@frettabladid.is Fjórðung af heildar- losun gróðurhúsa- lofttegunda má rekja til framleiðslu og flutnings matvæla. Þetta eykur flækjustig og er aðför að lýðræðislega kjörnum fulltrúum í borgarstjórn. Nýverið sendu þeir Sigmundur Davíð Gunn-laugsson, þingmaður og formaður Mið-f lokksins, og Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisf lokksins, frá sér frumvarp til laga um skipulags- og mannvirkjamál á Alþingissvæðinu. Ef frumvarpið verður samþykkt þá tekur Alþingi skipulagsvaldið frá Reykjavík á stóru svæði í Kvosinni en Reykjavíkurborg á tæplega helming eigna á þessu tiltekna svæði. Alþingislóðin er um 18,5 prósent af svæðinu og þá eru rúm 35 prósent lóða í einkaeigu. Þannig er lóð Alþingis einungis tæpur fimmtungur af því svæði sem lagt er til að tekið verði undan skipulags- og byggingarvaldi Reykjavíkurborgar. Þetta sendir mjög slæm skilaboð til allra sveitar- félaga á Íslandi. Ákveðnum aðilum í þinginu finnst borgin ekki vinna hlutina nákvæmlega eins og þeir sjálfir myndu gera en byggja svo mál sitt á litlum sem engum rökum. Að Alþingi geti komið og hrifsað skipulagsvald af sveitarfélögum þegar þeim sýnist er grafalvarlegt mál. Ég held að þetta endurspegli öðru fremur yfirgripsmikla vanþekk- ingu á skipulagsmálum. Í stjórnarskránni er talað um sjálfsákvörðunar- rétt sveitarfélaga og að skipulags- og mannvirkja- mál séu almennt í höndum sveitarfélaga. Ég sé ekki hvernig þetta tiltekna svæði eigi að lúta öðrum lögmálum og fá einhverja sérmeðferð. Þetta eykur f lækjustig og er aðför að lýðræðislega kjörnum fulltrúum í borgarstjórn. Breytingar á skipulagsvaldi í tilteknum málum – til þess einfaldlega að koma sínum málum áfram – eru hvorki fagleg né lýðræðisleg vinnubrögð. Ef frumvarpið verður að lögum er um að ræða veru- legt inngrip ríkisins í skipulagsvald Reykjavíkur- borgar. Sjálfstæðisf lokkurinn sat hjá í atkvæða- greiðslu um þetta mál í borgarráði. Ef það er eitthvað sem kjörnir fulltrúar í sveitarstjórn hafa alltaf verið sammála um þá er það að standa vörð um skipulagsvald. Þegar þeim sýnist Aron Leví Beck varaborgarfull- trúi Samfylk- ingarinnar VELDU GÆÐI! PREN TU N .IS ................................................ mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austurströnd 14 • Hringbraut 35 Fálkagata 18 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is PREN TU N .IS 3 TEGUNDIR AF SÚRDEIGSBRAUÐUM Samráð er hafið um frumvarpsdrög atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra sem tekur til breytinga á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Hér er um að ræða viðbragð stjórnvalda við dómum Hæstaréttar Íslands og EFTA-dómstóls- ins um að núverandi fyrirkomulag leyfisveitinga fyrir innflutningi kjöts og eggja, og frystiskyldu kjöts, brjóti í bága við EES-samninginn. Frumvarpið er yfirgripsmikið; markmið þess og aðferðir virðast rækilega rökstudd. Að auki virðist, miðað við greinargerð frumvarpsins, að nokkuð víðtækt samráð hafi átt sér stað við ritun þess, þar á meðal um myndun verkefnastjórnar um nauðsynlegar mótvægis- aðgerðir sem stjórnvöld munu þurfa að grípa til með þessum breytingum. Í þeim hópi er að finna fulltrúa stjórnvalda, bændasamtaka og atvinnulífsins. Með breytingum er áætlað að ábati neytenda verði tæpar 900 milljónir króna á ári, á meðan áætlaður heildarsamdráttur í tekjum innlendra framleiðenda landbúnaðarafurða verði allt að 600 milljónum króna á ársgrundvelli. Að auki felst ábati neytenda í betra úrvali matvæla og meiri samkeppni á matvælamarkaði. Hins vegar er efnahagslegur ábati neytenda á engan hátt það mikilvægasta í þessu samhengi. Ógnin sem felst í auknu sýklalyfjaónæmi er ein sú alvarlegasta sem blasir við mannkyni og líkur eru á að um miðja öld verði ónæmi einhver mesta áskorun sem nútíma lækna- vísindi hafa þurft að takast á við. Margþættar ástæður búa að baki útbreiðslu sýklalyfjaónæmis, þar á meðal er ofnotkun sýklalyfja í almennri heilbrigðisþjónustu og búfjárframleiðslu. Sýklalyfjaónæmi á Íslandi er umtals- vert minna en gengur og gerist víðast hvar annars staðar, þennan árangur ber að vernda. En er það hægt með inn- flutningi á ferskum matvælum? Útbreiðsla sýklalyfjaónæmis er óneitanlega fylgifiskur þeirra tíma sem við lifum, en með skilvirkum og vel fjármögnuðum mótvægisaðgerðum, eins og þeim sem tíundaðar eru í frumvarpinu, á að lágmarka þá áhættu. Athyglisvert er að á sama tíma og tekist er á um ferska matvöru þá hefur greið leið sýklalyfjaónæmra baktería til landsins með ferðamönnum fengið litla athygli. Þetta er hætta sem er til staðar og mun fara vaxandi á næstu árum en lítill áhugi virðist á því að vekja ferðamenn og ferðaþjónustufyrirtæki til umhugsunar um þetta. Frumvarp atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra er nauðsynlegt viðbragð við skekkju sem leiðrétta þarf til að hlíta dómi EFTA, ellegar er hætta á neikvæðum áhrifum af aðild að EES. Þeir sem tala fyrir hagsmunum íslensks landbúnaðar ættu að horfast í augu við þessa staðreynd og þess í stað beina orku sinni og athygli að því að hvetja fólk til að kaupa frekar íslenskar vörur en aðrar. Það ætti ekki að vera flókið verk. Fjórðung af heildarlosun gróðurhúsalofttegunda má rekja til framleiðslu og flutnings matvæla. Og á tímum þar sem heimsbyggðin hefur sameinast um að stemma stigu við allra verstu hörmungum hnattrænna loftslags- breytinga með því að draga úr losun, þá skýtur skökku við að auka enn innflutning matvæla þegar höfuðáhersla ætti að vera á innlenda sjálfbærni í matvælaframleiðslu. Ónæmi og óþarfi Leynilegt Atkvæðagreiðsla um verkfalls- boðun ræstingafólks hótela innan Ef lingar hófst í gær og varð hún strax umdeild. Samtök atvinnulífsins hafa nú þegar boðað mál fyrir Félagsdómi sem snýr að því hverjir hafi kosningarétt. En það er ekki hið eina sem velta má vöngum yfir. Kosningin er rafræn en að auki er hægt að kjósa utan kjörfundar í þar til gerðum bíl sem rúntar milli vinnustaða. Vinnudeilulögin kveða á um að slíkar atkvæðagreiðslur skuli vera leynilegar. Það má því velta fyrir sér hvort það standist kröfur sem gera skal til leyni- legra kosninga að kjörstaðurinn mæti til þín og fylgst sé með meðan atkvæði er greitt. Engin símtöl Undanfarnar vikur hefur Fréttablaðið fjallað nokkuð reglulega um greiðsluþrot Íslandspósts og mögulegar ástæður fyrir þeirri stöðu sem komið hefur upp. Hefur það þýtt að reglulega þarf að hafa samskipti við fyrirtækið. Svörin þaðan hafa oftar en ekki búið til f leiri spurningar en þær hafa svarað. Þá hefur forstjóri fyrirtækisins neitað að ræða við blaðið og vill aðeins svara spurningum skrif lega. Slíkt styrkir í raun tilfinninguna um að eitthvað sé ekki í lagi. joli@frettabladid.is 2 6 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 2 6 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :4 2 F B 0 7 2 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 6 8 -B 1 6 0 2 2 6 8 -B 0 2 4 2 2 6 8 -A E E 8 2 2 6 8 -A D A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.