Fréttablaðið - 26.02.2019, Síða 18

Fréttablaðið - 26.02.2019, Síða 18
„Óskagjöfin er utanlandsferð svo ég komist til útlanda í fót­ boltaskóla með Agli bróður og vini mínum, Páli Steinari Guðna­ syni sem lék Bjössa í Víti í Vest­ mannaeyjum. Ef ég fæ mestmegnis peninga mun ég leggja þá inn á bankabók,“ upplýsir Stefán Bogi. „Mig dreymir um það sama,“ segir Egill. „Mig langar að komast í fótboltaskóla í útlöndum með vini mínum Páli og bróður, en gjafirnar eru ekki aðalatriðið sem ég er að hugsa um í sambandi við ferming­ una. Ef mér hlotnast peningar mun ég geyma þá til framtíðarinnar.“ Með slaufur frá afa sínum Mörgum þykir erfitt að þekkja tvíburabræðurna Egil og Stefán í sundur enda þykja þeir mjög líkir í útliti. „Við verðum ekki eins klæddir á fermingardaginn,“ upplýsir Egill. „Ég verð í gráum jakka, svörtum gallabuxum og hvítri skyrtu en á eftir að finna mér skó, og með svarta slaufu sem afi minn átti þegar hann var á lífi.“ Stefán verður í svörtum galla­ buxum, hvítri skyrtu, bláum jakka og svörtum skóm. „Ég verð líka með slaufu sem móðurafi okkar átti. Hann dó áður en við fæddumst, fyrir tuttugu árum og var bara 56 ára gamall. Hann kynntist okkur því aldrei né við honum en hann var mikið snyrtimenni og átti mikið af spari­ fatnaði, þar á meðal mjög mikið af slaufum og bindum,“ útskýrir Stefán. „Þegar við vorum að ræða saman um hvernig við vildum vera klæddir á fermingardaginn kom í ljós að við vildum báðir vera með slaufu. Þá datt mömmu í hug að við bærum slaufur frá afa. Með því yrði hluti af afa með okkur á fermingardaginn þótt hann sé ekki lengur hjá okkur í lífinu,“ segir Egill, en fermingardag bræðranna ber næstum upp á dag tuttugu árum eftir að afi þeirra lést. Einnig vill svo skemmtilega til að á fermingardaginn eiga for­ eldrar strákanna, þau Ragnheiður Arna Höskuldsdóttir og Guðjón Helgason, tólf ára brúðkaups­ afmæli. Hlakka til að játa trúna Stundum er sagt að börn komist í fullorðinna manna tölu við fermingu. „Ég held að það sé rétt að vissu leyti,“ segir Stefán. „Maður hugsar kannski sjálfur að maður sé orðinn eitthvað fullorðinn fyrst maður er búinn að fermast, en ég held samt að það breyti ekki mjög miklu.“ Egill er á öndverðum meiði í þessum hugleiðingum. „Nei, ég held ég þroskist ekki við ferminguna. Maður þroskast bara með tímanum.“ Fermingardrengirnir hafa ólík framtíðarplön. „Ég ætla að verða stúdent og reyna svo að komast í háskóla í Danmörku. Það er svo margt sem kemur til greina að ég er ekki tilbúinn að velja strax hvað ég ætla að verða,“ segir Stefán. „Framtíðarplönin eru engin eins og er,“ segir Egill. „Ég sé bara til hvað gerist.“ Báðir hlakka mikið til ferm­ ingardagsins. „Ég hlakka til að vera búinn að taka þessa ákvörðun, að fermast. En á fermingardaginn sjálfan; ætli það sé ekki að opna gjafirnar. Þótt þær skipti ekki miklu máli þá er samt alltaf gaman að fá gjafir,“ segir Egill og Stefán er sama sinnis. „Maður hlakkar náttúrlega alltaf til að opna gjafir þannig að ég hlakka til þess. Og síðan að játa trúna,“ segir Stefán. Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ég ákvað að fermast því ég trúi á Guð og Jesú og vil gera Jesú að leiðtoga lífs míns,“ svarar Stefán Bogi um ástæður þess að hann valdi kirkjulega fermingu í stað borgaralegrar. Egill Helgi tekur í sama streng: „Ég vil fermast til að staðfesta skírn mína því ég trúi á Jesú Krist.“ Líður vel í kirkjunni Fermingardagur tvíburanna rennur upp sunnudaginn 7. apríl í Fella­ og Hólakirkju en þeir verða fermdir af prestunum Guðmundi Karli Ágústssyni og Jóni Ómari Gunnarssyni. „Það hefur gengið fínt í ferm­ ingar fræðslunni. Það sem ég get tekið með mér út í lífið eru helst boðorðin tíu, en ég hélt að fræðslan yrði minni lærdómur en hún er,“ segir Stefán Bogi. Þeir Egill Helgi hafa þurft að sækja tíu messur í tengslum við fermingarfræðsluna. „Mér finnst bara fínt að mæta í messur. Það er kannski ekkert mjög gaman en mér finnst gott að sitja í kirkjunni og hlusta,“ segir Egill Helgi. „Messurnar eru ekki á góðum tíma því það er fótboltaæfing í Egilshöll hálftíma eftir messu. Þær hafa ekki verið það skemmti­ legasta sem ég hef gert en mér líður vel í kirkjunni og finnst sérstakt að heyra prestana tóna,“ segir Stefán. Flytur ekki ræðuna einn Fermingarveisla Egils og Stefáns verður haldin á Grand Hótel Reykjavík. „Við ætlum að bjóða upp á bröns­hlaðborð en ég hafði skoðun á því hvað yrði borðað og hvernig skrautið yrði á litinn,“ segir Egill en Stefán hafði minni skoðanir á veisluhaldinu þótt hann hafi fengið að ráða öllu sem hann vildi. „Við bræður erum reyndar sammála um flest. Mér finnst góð tilfinning að fermast með tvíbura­ bróður mínum. Þá verður minni athygli á mér einum í veislunni og í fermingunni sjálfri en við fermumst með bekkjarsystkinum okkar,“ segir Stefán og Egill tekur undir orð bróður síns. „Já, það er fínt að vera ekki einn. Þá þarf ég til dæmis ekki að flytja ræðuna í veislunni einn og ekki að taka einn á móti öllum gestunum,“ segir hann og brosir kankvís. Þeir bræður óttast ekki að bera minna úr býtum þegar kemur að fermingargjöfunum þótt gestirnir þurfi að koma færandi hendi með tvær gjafir. Drauma gjöf Egils Helga og Stefáns Boga er að komast utan í fótboltaskóla með sameiginlegum vini þeirra úr Víti í Vestmannaeyjum. MYND/ERNIR Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Þá datt mömmu í hug að við bærum slaufur frá afa. Með því yrði hluti af afa með okkur á fermingardag- inn þótt hann sé ekki lengur hjá okkur í lífinu. Egill Helgi Guðjónsson Mér finnst góð tilfinning að fermast með tvíbura- bróður mínum. Þá verður minni athygli á mér einum í veislunni. Stefán Bogi Guðjónsson Framhald af forsíðu ➛ LEGGÐU Á BORÐ MEÐ OKKUR UMHVERFISVÆNN BORÐBÚNAÐUR Í ÚRVALI Rekstrarland er hluti af Olís Hleyptu lífi í veisluna þína með fallegum veisluvörum frá Rekstrarlandi. Pappírsdúkar í rúllum, renningar, servíettur í mörgum litum, einnota diskar, glös og hnífapör, kerti og fleira. Fermingarveislur, útskriftir, brúðkaup, afmæli, ættarmót og endurfundir verða enn glaðlegri með veisluvörunum okkar. Rekstrarland verslun Vatnagörðum 10 104 Reykjavík Sími 515 1500 rekstrarland.is OPIÐ ALLA VIRKA DAGA KL. 8–17. 2 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RFERMINGAR 2 6 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :4 2 F B 0 7 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 6 8 -8 4 F 0 2 2 6 8 -8 3 B 4 2 2 6 8 -8 2 7 8 2 2 6 8 -8 1 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.