Fréttablaðið - 26.02.2019, Qupperneq 18
„Óskagjöfin er utanlandsferð
svo ég komist til útlanda í fót
boltaskóla með Agli bróður og
vini mínum, Páli Steinari Guðna
syni sem lék Bjössa í Víti í Vest
mannaeyjum. Ef ég fæ mestmegnis
peninga mun ég leggja þá inn á
bankabók,“ upplýsir Stefán Bogi.
„Mig dreymir um það sama,“
segir Egill. „Mig langar að komast í
fótboltaskóla í útlöndum með vini
mínum Páli og bróður, en gjafirnar
eru ekki aðalatriðið sem ég er að
hugsa um í sambandi við ferming
una. Ef mér hlotnast peningar mun
ég geyma þá til framtíðarinnar.“
Með slaufur frá afa sínum
Mörgum þykir erfitt að þekkja
tvíburabræðurna Egil og Stefán í
sundur enda þykja þeir mjög líkir
í útliti.
„Við verðum ekki eins klæddir á
fermingardaginn,“ upplýsir Egill.
„Ég verð í gráum jakka, svörtum
gallabuxum og hvítri skyrtu en
á eftir að finna mér skó, og með
svarta slaufu sem afi minn átti
þegar hann var á lífi.“
Stefán verður í svörtum galla
buxum, hvítri skyrtu, bláum jakka
og svörtum skóm.
„Ég verð líka með slaufu sem
móðurafi okkar átti. Hann dó áður
en við fæddumst, fyrir tuttugu
árum og var bara 56 ára gamall.
Hann kynntist okkur því aldrei
né við honum en hann var mikið
snyrtimenni og átti mikið af spari
fatnaði, þar á meðal mjög mikið
af slaufum og bindum,“ útskýrir
Stefán.
„Þegar við vorum að ræða
saman um hvernig við vildum
vera klæddir á fermingardaginn
kom í ljós að við vildum báðir
vera með slaufu. Þá datt mömmu
í hug að við bærum slaufur frá
afa. Með því yrði hluti af afa með
okkur á fermingardaginn þótt
hann sé ekki lengur hjá okkur í
lífinu,“ segir Egill, en fermingardag
bræðranna ber næstum upp á dag
tuttugu árum eftir að afi þeirra
lést. Einnig vill svo skemmtilega
til að á fermingardaginn eiga for
eldrar strákanna, þau Ragnheiður
Arna Höskuldsdóttir og Guðjón
Helgason, tólf ára brúðkaups
afmæli.
Hlakka til að játa trúna
Stundum er sagt að börn komist
í fullorðinna manna tölu við
fermingu.
„Ég held að það sé rétt að vissu
leyti,“ segir Stefán. „Maður hugsar
kannski sjálfur að maður sé orðinn
eitthvað fullorðinn fyrst maður er
búinn að fermast, en ég held samt
að það breyti ekki mjög miklu.“
Egill er á öndverðum meiði í
þessum hugleiðingum.
„Nei, ég held ég þroskist ekki við
ferminguna. Maður þroskast bara
með tímanum.“
Fermingardrengirnir hafa ólík
framtíðarplön.
„Ég ætla að verða stúdent og
reyna svo að komast í háskóla
í Danmörku. Það er svo margt
sem kemur til greina að ég er ekki
tilbúinn að velja strax hvað ég ætla
að verða,“ segir Stefán.
„Framtíðarplönin eru engin eins
og er,“ segir Egill. „Ég sé bara til
hvað gerist.“
Báðir hlakka mikið til ferm
ingardagsins.
„Ég hlakka til að vera búinn að
taka þessa ákvörðun, að fermast.
En á fermingardaginn sjálfan; ætli
það sé ekki að opna gjafirnar. Þótt
þær skipti ekki miklu máli þá er
samt alltaf gaman að fá gjafir,“
segir Egill og Stefán er sama sinnis.
„Maður hlakkar náttúrlega
alltaf til að opna gjafir þannig að
ég hlakka til þess. Og síðan að játa
trúna,“ segir Stefán.
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ég ákvað að fermast því ég trúi á Guð og Jesú og vil gera Jesú að leiðtoga lífs míns,“ svarar
Stefán Bogi um ástæður þess að
hann valdi kirkjulega fermingu í
stað borgaralegrar.
Egill Helgi tekur í sama streng:
„Ég vil fermast til að staðfesta
skírn mína því ég trúi á Jesú Krist.“
Líður vel í kirkjunni
Fermingardagur tvíburanna
rennur upp sunnudaginn 7. apríl í
Fella og Hólakirkju en þeir verða
fermdir af prestunum Guðmundi
Karli Ágústssyni og Jóni Ómari
Gunnarssyni.
„Það hefur gengið fínt í ferm
ingar fræðslunni. Það sem ég
get tekið með mér út í lífið eru
helst boðorðin tíu, en ég hélt að
fræðslan yrði minni lærdómur en
hún er,“ segir Stefán Bogi.
Þeir Egill Helgi hafa þurft að
sækja tíu messur í tengslum við
fermingarfræðsluna.
„Mér finnst bara fínt að mæta
í messur. Það er kannski ekkert
mjög gaman en mér finnst gott að
sitja í kirkjunni og hlusta,“ segir
Egill Helgi.
„Messurnar eru ekki á góðum
tíma því það er fótboltaæfing í
Egilshöll hálftíma eftir messu.
Þær hafa ekki verið það skemmti
legasta sem ég hef gert en mér líður
vel í kirkjunni og finnst sérstakt að
heyra prestana tóna,“ segir Stefán.
Flytur ekki ræðuna einn
Fermingarveisla Egils og Stefáns
verður haldin á Grand Hótel
Reykjavík.
„Við ætlum að bjóða upp á
brönshlaðborð en ég hafði skoðun
á því hvað yrði borðað og hvernig
skrautið yrði á litinn,“ segir Egill
en Stefán hafði minni skoðanir
á veisluhaldinu þótt hann hafi
fengið að ráða öllu sem hann vildi.
„Við bræður erum reyndar
sammála um flest. Mér finnst góð
tilfinning að fermast með tvíbura
bróður mínum. Þá verður minni
athygli á mér einum í veislunni
og í fermingunni sjálfri en við
fermumst með bekkjarsystkinum
okkar,“ segir Stefán og Egill tekur
undir orð bróður síns. „Já, það er
fínt að vera ekki einn. Þá þarf ég
til dæmis ekki að flytja ræðuna
í veislunni einn og ekki að taka
einn á móti öllum gestunum,“ segir
hann og brosir kankvís.
Þeir bræður óttast ekki að bera
minna úr býtum þegar kemur að
fermingargjöfunum þótt gestirnir
þurfi að koma færandi hendi með
tvær gjafir.
Drauma gjöf Egils Helga og Stefáns Boga er að komast utan í fótboltaskóla með sameiginlegum vini þeirra úr Víti í Vestmannaeyjum. MYND/ERNIR
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Þá datt mömmu í
hug að við bærum
slaufur frá afa. Með því
yrði hluti af afa með
okkur á fermingardag-
inn þótt hann sé ekki
lengur hjá okkur í lífinu.
Egill Helgi Guðjónsson
Mér finnst góð
tilfinning að
fermast með tvíbura-
bróður mínum. Þá
verður minni athygli á
mér einum í veislunni.
Stefán Bogi Guðjónsson
Framhald af forsíðu ➛
LEGGÐU Á
BORÐ MEÐ
OKKUR
UMHVERFISVÆNN
BORÐBÚNAÐUR
Í ÚRVALI
Rekstrarland er hluti af Olís
Hleyptu lífi í veisluna þína með fallegum veisluvörum frá Rekstrarlandi.
Pappírsdúkar í rúllum, renningar, servíettur í mörgum litum, einnota diskar,
glös og hnífapör, kerti og fleira. Fermingarveislur, útskriftir, brúðkaup, afmæli,
ættarmót og endurfundir verða enn glaðlegri með veisluvörunum okkar.
Rekstrarland verslun Vatnagörðum 10 104 Reykjavík Sími 515 1500 rekstrarland.is
OPIÐ ALLA
VIRKA DAGA
KL. 8–17.
2 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RFERMINGAR
2
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
6
8
-8
4
F
0
2
2
6
8
-8
3
B
4
2
2
6
8
-8
2
7
8
2
2
6
8
-8
1
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K