Fréttablaðið - 26.02.2019, Page 33

Fréttablaðið - 26.02.2019, Page 33
Blöðruvöndurinn er vöndur sem samsettur er úr nokkr- um mismunandi blöðr- um. Við erum með margs konar staðlaða vendi sem hægt er að velja úr en jafnframt er líka hægt að velja vendi eftir eigin höfði. Panduro í Smáralindinni býður upp á mikið úrval skemmtilegra og fallegra vara í tengslum við fermingarnar fram undan. Verslunin er sannarlega draumaverslun föndrarans þar sem auðvelt er að gefa sköpunar- gleðinni lausan tauminn segir Eva Rán Reynisdóttir verslunarstjóri. „Það sem við erum helst að bjóða upp á er efniviður til að föndra fermingarkortin, ýmiss konar borðskraut, fallegir skrautsteinar, pappírsdúskar, fánalengjur og helíumfylltar blöðrur. Svo erum við að sjálfsögðu með flest allt sem hugmyndaflugið getur unnið með, svo sem málningu, pappastafi, tré- stafi og fleira.“ Ólíkar útfærslur Blöðruvendirnir njóta sívaxandi vinsælda hjá Panduro enda lífga þeir mikið upp á fermingar- veislurnar, eins og raunar allar aðrar veislur. „Blöðruvöndurinn er vöndur sem samsettur er úr nokkrum mismunandi blöðrum. Við erum með margs konar staðl- aða vendi sem hægt er að velja úr en jafnframt er líka hægt að velja vendi eftir eigin höfði. Það er ótrú- lega gaman að sjá hvað fólk velur og að fá síðan að raða því saman í fallegan vönd.“ Frábært skraut Vendirnir eru að sögn Evu Ránar lifandi, litríkir, skemmtilegir og fallegir. „Þeir eru frábærir sem skraut, hvort heldur sem er við inngang, borð eða jafnvel sem bak- grunnur í myndavegg. Þeir lífga svo sannarlega upp á veisluna og gleðja augað.“ Pantið tímanlega Eva Rán segir að þægilegast sé fyrir viðskiptavini að panta blöðru- vendina með a.m.k. dags fyrirvara. „Þá sjáum við um að fylla á blöðr- urnar í versluninni okkar og setja vendina saman. Þannig verða þeir endingarbetri og um leið fallegri. Ef hins vegar um einstakar blöðrur er að ræða og ef viðskiptavinir eru á hraðferð, þá að sjálfsögðu gerum við þetta á staðnum meðan þeir bíða.“ Lífga upp á veisluna og gleðja augað „Þeir eru frábærir sem skraut, hvort heldur sem er við inngang, borð eða jafnvel sem bakgrunnur í myndavegg. Þeir lífga svo sannarlega upp á veisluna og gleðja augað,” segir Eva Rán Reynisdóttir verslunarstjóri. MYND/STEFÁN Blöðruvendirnar frá Panduro eru litríkir, skemmti- legir og fallegir. Þeir henta vel sem skraut og bakgrunnur. KYNNINGARBLAÐ 17 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 FERMINGAR draumaverslun föndrarans kökuna Allt til að skreyta www.panduro.is Smáralind 2 6 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :4 2 F B 0 7 2 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 6 8 -A 7 8 0 2 2 6 8 -A 6 4 4 2 2 6 8 -A 5 0 8 2 2 6 8 -A 3 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.