Fréttablaðið - 26.02.2019, Síða 42

Fréttablaðið - 26.02.2019, Síða 42
Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is Þórður Bjarni Baldvinsson er einlægur áhugamaður um Harry Potter og ákvað að hafa þemað í fermingarveislu sinni tengt galdrastrákn- um. MYND/SIG- TRYGGUR ARI Þemað var víða sjáanlegt.Harry setti svip á veisluborðið. Fundu skraut í Góða hirðinum Þórður Bjarni Baldvinsson fermdist í Seljakirkju á skírdag í fyrra. Í veislunni var Harry Potter þema enda er Þórður einlægur aðdáandi . Skrautið kom úr nytjaverslunum og ýmsum geymslum. Áhugi Þórðar á Harry Potter á sér langa sögu. „Ég held ég hafi verið um fjögurra ára gamall þegar ég horfði á fyrstu tvær Harry Potter myndirnar á íslensku. Síðan þá hef ég haft rosalega mikinn áhuga á öllu sem tengist Harry Potter,“ segir Þórður sem deilir áhuga sínum með systur sinni Steinunni sem er þrettán árum eldri en hann. „Við erum mjög góðir vinir, eigum allar bækurnar og allar myndirnar og horfum á þær reglulega.“ Þegar kom að fermingunni kom því ekkert annað til greina en að velja Harry Potter þema í skreyt- ingum. „Við keyptum langmest af skrautinu á nytjamörkuðum og í Góða hirðinum. Við vorum lengi að safna saman bæði skrauti og Harry Potter bókunum sem við notuðum líka sem skraut. Síðan skreyttum við borðin sem voru fjögur löng eins og heima- vistarborðin í myndunum og bókunum,“ lýsir Þórður en meðal muna sem keyptir voru á nytjamörkuðunum voru gamaldags kerta- stjakar og annar álíka borð- búnaður. Einnig fengu þau að skoða í geymslur hjá ömmum og öfum fermingarbarnsins til að gramsa eftir álitlegu skrauti. „Eftir veisluna gáfum við síðan allt aftur til nytjamarkaða og reyndum þannig að gera góðverk um leið og við héldum veisluna.“ Þórður fermdist á skírdag í fyrra í Seljakirkju. Veislan var haldin í safnaðarheimilinu. Boðið var upp á heitan mat og tertur í eftirrétt en fermingarbarnið lét ekki sitt eftir liggja í veisluundirbúningnum. „Ég reyndi að taka sjálfur þátt með því að skreyta, elda og baka,“ segir Þórður sem segist hafa fengið að ráða flestöllu sem sneri að veislunni. Fermingarfötin voru hefð- bundin jakkaföt en hins vegar stóð gestum til boða að sveipa yfir sig skikkju í Hogwarts-stíl við sér- Kafað var í hillur nytja- verslana og geymslur hjá ömmum og öfum til að finna réttu skrautmunina. stakan myndavegg og láta smella af sér mynd. „Fólki fannst Harry Potter þemað mjög skemmtilegt og var duglegt að nota myndavegg- inn.“ Harry Potter áhugi Þórðar og systur hans hefur síst dvínað á því ári sem er liðið frá fermingunni. Nú hlakka þau til næstu Fant- astic Beasts myndarinnar en þær myndir hafa tekið við af Harry Potter mynd- unum enda gerast þær í sama galdraheimi. „Við systir mín förum alltaf á frumsýningarn- ar á þessum myndum. Viljum sjá þær strax,“ segir Þórður. Hann segir jafnaldra sína skilja áhugamálið, sér í lagi einn af vinum sínum sem deili áhuga- num. „Við horfum saman á gömlu myndirnar aftur og aftur. Þær eldast svo vel.“ Nýjar fermingarmöppur Mappan geymir myndir, gestabók og kort Varðveittu minningarnar um fermingardaginn á einum stað 9 litir Múlalundur Vinnustofa SÍBS Reykjalundur | 270 Mosfellsbær Sími 562 8500 | www.mulalundur.is 26 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RFERMINGAR 2 6 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :4 2 F B 0 7 2 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 6 8 -B B 4 0 2 2 6 8 -B A 0 4 2 2 6 8 -B 8 C 8 2 2 6 8 -B 7 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.