Fréttablaðið - 26.02.2019, Síða 48
Kara Guð-
mundsdóttir,
matreiðslu-
maður hjá Fiski-
félaginu.
MYNDIR/STEFÁN
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
Fyrsta ráð sem Kara Guð-mundsdóttir, matreiðslumað-ur hjá Fiskifélaginu, gefur er að
ofhugsa ekki hlutina þegar kemur
að veitingum. „Það er betra að gefa
sér meiri tíma í færri rétti svo gestir
njóti færri betri rétta, frekar en of
margra misgóðra rétta. Það er gott
að vita af ýmsum sérþörfum, hvort
gestir hafi ofnæmi og góður tími og
undirbúningur skiptir miklu máli.
Auk þess er góð regla í fermingar-
veislum að hafa a.m.k. einn græn-
metisrétt, jafnvel tvo.“ Hér gefur
Kara lesendum þrjár uppskriftir.
Graskerssúpa með lime
og chili
Fyrir 35 manns
4 stk. meðalstór grasker
Fjölbreytnin í fyrirrúmi
Kara Guðmundsdóttir, matreiðslumaður hjá Fiskifélaginu og meðlimur
kokkalandsliðsins, gefur hér lesendum nokkrar skemmtilegar uppskriftir í fermingarveisluna.
Lúxus piparhamborgari með sætri kartöflu.Epla-crumble með kanil og súkkulaði. Graskerssúpa með límónu og chili.
700 g saltað smjör
400 g púðursykur
½ stk. rautt chili, smátt saxað og
fræhreinsað
3-5 límónur
2 l rjómi
Smakkið til með salti
Skerið graskerin langsum í tvennt
og hreinsið kjarnann úr. Bútið
smjörið yfir hvern helming og
stráið púðursykri yfir. Bakist við
170°C með blæstri þar til gras-
kerið er eldað í gegn (u.þ.b. 30-45
mín.). Takið graskerið úr ofninum
og takið allt kjötið úr hýðinu, með
t.d. skeið. Næst er graskerið sett í
pott ásamt rjóma og chili. Maukið
saman með töfrasprota. Mikil-
vægt er að allt sé heitt á meðan svo
maukið nái mjúkri áferð. Skrælið
börkinn af límónunum með rif-
járni og passið að hvíta fari ekki
með. Kreistið safann úr límón-
unum í súpuna, setjið börkinn í
súpuna og smakkið til með salti og
lime-safa.
Lúxus piparhamborgari
með sætri kartöflu
Fyrir 35 manns
35 stk. hamborgarabrauð
35 stk. hamborgarabuff
8 stk. piparostur
6 stk. sætar kartöflur
8 stk. rauðlaukar
7 stk. rauð paprika
1 kg sveppir
1 búnt ferskt garðablóðberg
(timían)
1 kg majónes
400 g Dijon-sinnep
100 g smjör
Hrærið saman majónes og sinnep
og setjið til hliðar. Skrælið sætu
kartöflurnar og skerið í 1 cm
þykkar skífur. Skerið piparostinn
niður í sneiðar. Bakið kartöflurnar
í ofni við 180°C í 10 mínútur. Raðið
ostinum ofan á og bakið í 15 mín.
Skerið sveppina, paprikuna og
laukinn og setjið til hliðar. Steikið
sveppina á heitri pönnu á háum
hita með olíu og salti. Þegar svepp-
irnir byrja að brúnast skal bæta við
smjöri og fersku garðablóðbergi.
Leyfið smjörinu að freyða til að
ná fullkominni steikingu og takið
af pönnu. Steikið hamborgarana
á pönnu með salti. Steikið í 2-3
mínútur á hvorri hlið. Gott er að
setja brauðin í ofn í 5 mínútur til
að ná hita en ef hægt er skal setja
það á grillið, 2-3 sekúndur á hvorri
hlið. Smyrjið sósu á botnbrauðið
og bætið við sveppunum, kjötinu,
paprikunni og lauknum. Að
lokum kemur sæta kartaflan með
ostinum.
Epla-crumble með kanil
og súkkulaði
Fyrir 35 manns
400 g hveiti
400 g saltað smjör
400 g púðursykur
400 g möndlumjöl
8 stk. græn epli
300 g sykur
3 msk. kanill
Sítrónusafi
3 plötur súkkulaði (t.d. mjólkur-
eða karamellusúkkulaði. Persónu-
lega vel ég dökkt).
1,5 l rjómi
Skerið eplin í miðlungs bita (2 cm
x 2 cm) og kreistið safa úr einni
sítrónu yfir svo þeir verði ekki
brúnir. Stráið kanilsykri yfir og
blandið saman. Setjið þurrefnin
ásamt smjörinu í skál og vinnið
saman með höndunum. Setjið
eplin í eldfast mót og stráið deiginu
yfir þannig að það nái yfir eplin.
Hægt er að geyma réttinn á þessu
stigi í kæli í heilan dag, áður en
hann er bakaður. Að lokum er
rétturinn bakaður við 170°C með
blæstri í 35-45 mín. Saxið súkku-
laðið í ræmur og setjið yfir um leið
og rétturinn kemur úr ofninum.
Þeytið rjómann og berið fram
heitt.
32 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RFERMINGAR
2
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
6
8
-B
6
5
0
2
2
6
8
-B
5
1
4
2
2
6
8
-B
3
D
8
2
2
6
8
-B
2
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K