Fréttablaðið - 26.02.2019, Page 54

Fréttablaðið - 26.02.2019, Page 54
Bergbys-brauð- terta er algjört lostæti, búin til úr mismunandi sælkeralögum. Hér er hún borin fram á ný- stárlegan hátt. Með því að sáldra góðu snakki yfir góm- sætan brauðrétt fær hann nýtt og spennandi yfirbragð. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Hjördís Dögg Grímarsdóttir kennari og matarbloggari. MYNDIR/STEFÁN Gómsætt baguette með brauðréttarfyllingu er dásamlegt í munn og maga. Ég elska fermingarveislur því tilefnið er svo skemmtilegt,“ segir Hjördís Dögg Grímars- dóttir, kennari og bakari af Guðs náð. „Fermingarkakan hefur alltaf heillað mig, litrík og tengd fermingarbarninu. Oftar en ekki fær fermingarbarnið að setja sinn svip á veisluna og skreytingar eru tengdar áhugasviði barnsins. Flestir vilja svo halda í hefðirnar þegar kemur að fermingarveisl- unni en oft má sjá fermingartertu með nafni barnsins, kransaköku og brauðtertur á veisluborðinu.“ Hjördís segir kaffiboð góðan kost á fermingardaginn og henta á hvaða tíma dagsins sem er. „Í kaffiboði er hægt að undirbúa veitingarnar með góðum fyrirvara. Tertubotnar eru þá frystir og teknir upp þegar nær dregur. Brauð í brauðrétti má líka skera tímanlega, setja í poka og frysta. Fyllingin er gerð kvöldinu áður og hellt yfir brauðið. Kransakakan er bökuð í tíma og líka sett í frysti. Allt þetta má gera mánuði fyrr og geyma á þurrum stað með plasti eða poka yfir, en rjómafyllingar eru settar á milli botna degi fyrir veisluna. Með þessu móti geta gestgjafarnir verið rólegir á sjálfan fermingardaginn þegar veitingarnar eru komnar á veisluborðið og lítið sem þarf að huga að þeim nema að fylla á, skera og hita það sem þarf að hita,“ ráð- leggur Hjördís Leikur sér með marengs Bakstursáhugi Hjördísar vaknaði þegar hún var ung stelpa og fylgd- ist með móður sinni í eldhúsinu. „Mamma hefur alltaf verið mikið fyrir að halda veislur með dýrindis veitingum og mikið lagt í. Það var fljótt að smitast yfir til mín og þegar ég fór að heiman hafði ég þær hefðir í heiðri. Við mamma hjálpumst oft að fyrir veislur og það er mikil stemning að vera fleiri í undirbúningnum,“ segir Hjördís sem hefur mikið dálæti á marengs. „Mér finnst gaman að leika mér með marengsinn, lita hann, búa til munstur með sprautustútum og gera mismunandi rjómafyllingar, en best finnst mér að setja eplabita og karamellusúkkulaði á milli.“ Liðinn er rúmur áratugur síðan Hjördís stofnaði matarbloggið Mömmur.is. „Mömmur.is er með fyrstu matarbloggunum sem sýndu matar- og kökugerð með mynda- leiðbeiningum skref fyrir skref. Kökurnar vöktu áhuga fólks og margar voru sjaldséðar á þeim tíma, en þetta hitti í mark og hefur allar götur síðan verið vinsælt. Ég varð þess f ljótt áskynja að bakstur, matseld og skreytingar heilluðu fólk,“ segir Hjördís sem fann löngun til að hjálpa fólki að fá hug- myndir og sýna fram á að allir geti bakað og útbúið fallegar veitingar. „Það er allt hægt með viljanum og ekki verra ef fólk fær aðstoð sinna nánustu.“ Gagnlegur gátlisti Hjördís kennir 9. bekk í Grunda- skóla á Akranesi á daginn en breytist í kökukonu á kvöldin og um helgar. „Ég nýti hvert tækifæri til að gera skemmtilegar veitingar og baka aðallega fyrir sjálfa mig en nánustu vinir og ættingjar hafa fengið aðstoð frá mér þegar kemur að stóru kökunni í veisluna. Ég Elskar fermingarveislur Hjördís Dögg Grímarsdóttir, kennari og eigandi mömmur.is, er með ráð undir rifi hverju þegar kemur að veisluréttum. Hún segir kaffiboð hentug því auðvelt sé að undirbúa þau fyrir fram. hef líka unnið mikið með Betty Crocker á Íslandi, blogga fyrir Gott í matinn og hræri eins og vindur- inn með KitchenAid-hrærivél- unum mínum. Ég hef því sannar- lega fengið mörg tækifæri í gegnum mömmur.is,“ upplýsir Hjördís sem í fyrra fékk Parka til að hanna fyrir sig einstakt Mömmueldhús og er því með tvö eldhús í húsinu sínu, en þar vinnur hún allt efni sem fer inn á mömmur.is. Hjördís gefur frábærar hug- myndir og gagnlegan gátlista fyrir ferminguna á mömmur.is. „Það er gott að hafa gátlista við hönd og þegar eldri sonur minn fermdist í fyrra kom hann sér vel. Ég skoðaði mikið á netinu, bjó til minn eigin lista og vikuna fyrir fermingardaginn gerði ég lista fyrir hvern dag. Það lukkaðist allt vel með góðri hjálp frá fjölskyldunni.“ Hjördís segir rjómatertu, súkku- laðiköku, marengs, kransaköku, bollakökur, ístertu og brauðrétti sígildar og vinsælar veitingar á fermingarveisluborðið. „Yngstu gestirnir kunna svo að meta veitingar í smærri kantinum og í fermingarveislu stráksins míns buðum við upp á kleinuhringi frá Krispy Kreme sem slógu í gegn hjá yngri kynslóðinni, sem og nammi- barinn, popp og Cheerios-bitar.“ Brauðréttir slá alltaf í gegn Hjördís gefur hér lesendum uppskriftir að gómsætum brauð- réttum. „Þegar kemur að brauðréttum og brauðtertum er fólk oftast vana- fast. Hefðbundin majónessalöt með skinku, rækju eða túnfiski, eru sígilt álegg og brauð terturnar eru skreyttar með til dæmis skinku, vínberjum og gúrku,“ upp- lýsir Hjördís um það vinsælasta á veisluborðið. „Brauðréttir með mildri fyllingu slá alltaf í gegn en þá samanstend- ur fyllingin af til dæmis smurosti, rjóma, aspassafa, skinku, papriku og sveppum. Það er þó alltaf að færast í aukana að gera eitthvað öðruvísi og skemmtilegt, og með því að setja snakk ofan á brauðrétt- inn verður hann öðruvísi. Þá má líka smyrja brauðtertur á annan máta og setja á þær álegg í líkingu við það sem er sett á samlokur.“ Heilræði og uppskriftir Hjör- dísar má finna á mömmur.is, Instagram undir mömmur og á Facebook, þar sem hún á um 22 þúsund fylgjendur. Bergbys-brauðterta fyrir 25-30 manns 4 rúllutertubrauð Hráefni: Majónes Beikonsmurostur Kál Hunangsskinka Mexíkóostur Rautt pestó Bergbys-sinnep Doritos Fyrsta brauðlag: Majónes, kál og Bergbys-sinnep. Mæjónesi er smurt undir næsta brauðlag. Annað brauðlag: Smurostur, hunangsskinka og rifinn Mexíkó- ostur. Smurostur smurður undir næsta brauðlag. Þriðja brauðlag: Pestó, kál og Bergbys-sinnep. Majónesi er smurt undir næsta brauðlag. Fjórða brauðlag – efsta lag: Sýrðum rjóma er smurt yfir brauðið. Kál sett yfir ásamt Doritos-flögum og rifnum Mexíkó-osti. Brauðteningar Vel er hægt að útfæra þessa brauð- tertuhugmynd sem brauðteninga. Fylgt er sömu aðferð að fjórða brauðlaginu en þá er brauðið pressað í 2 tíma með því að setja eitthvað þungt yfir kökuna. Brauð- ið er haft í kælingu á meðan. Síðan er rauðu pestói smurt í þunnu lagi yfir. Brauðið skorið í bita og tann- stönglar settir í miðjuna á hverjum brauðteningi. Það má geta þess að standur- inn sem brauðtertan er á fæst í versluninni Basti í Kringlunni. Þar er til mikið úrval af kökudiskum. Æðislegur brauðréttur með snakki Fyrir 25 manns 1½ samlokubrauð Fylling: 1 pakki skinka 1 stk. paprika ½ dós sveppir ½ l matreiðslurjómi 1 dós papriku-smurostur ½ dós beikon-smurostur 1 stk. pepperóní-ostur, rifinn 1 grænmetisteningur 2-3 msk. Hellmanns chili- maj ónes Yfir réttinn: Mozzarella-ostur – rifinn Salt og pipar Maruud-snakk Skinka, paprika og sveppir skorið í litla bita og steikt upp úr smjöri. Matreiðslurjóma hellt yfir og smurostunum og rifnum peppe- róní-osti blandað saman við. Grænmetisteningur settur út í ásamt chili-majónesi. Hitið þar til osturinn hefur bráðnað. Skerið brauðið í litla teninga og setjið í smurt eldfast mót. Hellið fylling- unni yfir réttinn og sáldrið mozz- arella-osti yfir. Hitið við 175°C hita (blástur) þar til osturinn hefur tekið smá lit, í um 20 mínútur. Sáldrið þá snakkinu yfir og hitið áfram í 5-10 mínútur. Baguette-brauðréttur Eitt baguette-brauð dugar fyrir 20 manns. Hægt er að nota sömu fyllingu og í brauðréttinum til að búa til bagu- ette-brauðrétt. Fylling sem gefin er upp með brauðréttinum dugar í 3 til 4 baguette-brauð. Það er nauð- synlegt að nota baguette-brauð og brauðið þarf að vera ágætlega breitt. Brauðið er skorið eftir miðju, hreinsað innan úr því með skeið og bætt saman við brauðréttar- fyllinguna. Fyllingin er sett inn í baguette-brauðið með skeið, osti sáldrað yfir og baguette-brauð- rétturinn hitaður við 175°C hita (blástur) í 18 til 20 mínútur. Passið að baguette-brauðið verði ekki of mikið bakað. Skerið í sneiðar og berið fram. 38 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RFERMINGAR 2 6 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :4 2 F B 0 7 2 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 6 8 -7 B 1 0 2 2 6 8 -7 9 D 4 2 2 6 8 -7 8 9 8 2 2 6 8 -7 7 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.