Fréttablaðið - 26.02.2019, Blaðsíða 54
Bergbys-brauð-
terta er algjört
lostæti, búin til
úr mismunandi
sælkeralögum.
Hér er hún
borin fram á ný-
stárlegan hátt.
Með því að
sáldra góðu
snakki yfir góm-
sætan brauðrétt
fær hann nýtt
og spennandi
yfirbragð.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Hjördís Dögg Grímarsdóttir kennari og matarbloggari. MYNDIR/STEFÁN
Gómsætt baguette með brauðréttarfyllingu er dásamlegt í munn og maga.
Ég elska fermingarveislur því tilefnið er svo skemmtilegt,“ segir Hjördís Dögg Grímars-
dóttir, kennari og bakari af Guðs
náð.
„Fermingarkakan hefur
alltaf heillað mig, litrík og tengd
fermingarbarninu. Oftar en ekki
fær fermingarbarnið að setja sinn
svip á veisluna og skreytingar
eru tengdar áhugasviði barnsins.
Flestir vilja svo halda í hefðirnar
þegar kemur að fermingarveisl-
unni en oft má sjá fermingartertu
með nafni barnsins, kransaköku
og brauðtertur á veisluborðinu.“
Hjördís segir kaffiboð góðan
kost á fermingardaginn og henta á
hvaða tíma dagsins sem er.
„Í kaffiboði er hægt að undirbúa
veitingarnar með góðum fyrirvara.
Tertubotnar eru þá frystir og teknir
upp þegar nær dregur. Brauð í
brauðrétti má líka skera tímanlega,
setja í poka og frysta. Fyllingin er
gerð kvöldinu áður og hellt yfir
brauðið. Kransakakan er bökuð í
tíma og líka sett í frysti. Allt þetta
má gera mánuði fyrr og geyma á
þurrum stað með plasti eða poka
yfir, en rjómafyllingar eru settar á
milli botna degi fyrir veisluna. Með
þessu móti geta gestgjafarnir verið
rólegir á sjálfan fermingardaginn
þegar veitingarnar eru komnar á
veisluborðið og lítið sem þarf að
huga að þeim nema að fylla á, skera
og hita það sem þarf að hita,“ ráð-
leggur Hjördís
Leikur sér með marengs
Bakstursáhugi Hjördísar vaknaði
þegar hún var ung stelpa og fylgd-
ist með móður sinni í eldhúsinu.
„Mamma hefur alltaf verið
mikið fyrir að halda veislur með
dýrindis veitingum og mikið lagt í.
Það var fljótt að smitast yfir til mín
og þegar ég fór að heiman hafði ég
þær hefðir í heiðri. Við mamma
hjálpumst oft að fyrir veislur og
það er mikil stemning að vera fleiri
í undirbúningnum,“ segir Hjördís
sem hefur mikið dálæti á marengs.
„Mér finnst gaman að leika mér
með marengsinn, lita hann, búa til
munstur með sprautustútum og
gera mismunandi rjómafyllingar,
en best finnst mér að setja eplabita
og karamellusúkkulaði á milli.“
Liðinn er rúmur áratugur síðan
Hjördís stofnaði matarbloggið
Mömmur.is.
„Mömmur.is er með fyrstu
matarbloggunum sem sýndu
matar- og kökugerð með mynda-
leiðbeiningum skref fyrir skref.
Kökurnar vöktu áhuga fólks og
margar voru sjaldséðar á þeim
tíma, en þetta hitti í mark og hefur
allar götur síðan verið vinsælt. Ég
varð þess f ljótt áskynja að bakstur,
matseld og skreytingar heilluðu
fólk,“ segir Hjördís sem fann
löngun til að hjálpa fólki að fá hug-
myndir og sýna fram á að allir geti
bakað og útbúið fallegar veitingar.
„Það er allt hægt með viljanum
og ekki verra ef fólk fær aðstoð
sinna nánustu.“
Gagnlegur gátlisti
Hjördís kennir 9. bekk í Grunda-
skóla á Akranesi á daginn en
breytist í kökukonu á kvöldin og
um helgar.
„Ég nýti hvert tækifæri til að
gera skemmtilegar veitingar og
baka aðallega fyrir sjálfa mig en
nánustu vinir og ættingjar hafa
fengið aðstoð frá mér þegar kemur
að stóru kökunni í veisluna. Ég
Elskar fermingarveislur
Hjördís Dögg Grímarsdóttir, kennari og eigandi mömmur.is, er með ráð undir rifi hverju þegar
kemur að veisluréttum. Hún segir kaffiboð hentug því auðvelt sé að undirbúa þau fyrir fram.
hef líka unnið mikið með Betty
Crocker á Íslandi, blogga fyrir Gott
í matinn og hræri eins og vindur-
inn með KitchenAid-hrærivél-
unum mínum. Ég hef því sannar-
lega fengið mörg tækifæri í gegnum
mömmur.is,“ upplýsir Hjördís sem
í fyrra fékk Parka til að hanna fyrir
sig einstakt Mömmueldhús og er
því með tvö eldhús í húsinu sínu,
en þar vinnur hún allt efni sem fer
inn á mömmur.is.
Hjördís gefur frábærar hug-
myndir og gagnlegan gátlista fyrir
ferminguna á mömmur.is.
„Það er gott að hafa gátlista við
hönd og þegar eldri sonur minn
fermdist í fyrra kom hann sér vel.
Ég skoðaði mikið á netinu, bjó til
minn eigin lista og vikuna fyrir
fermingardaginn gerði ég lista fyrir
hvern dag. Það lukkaðist allt vel
með góðri hjálp frá fjölskyldunni.“
Hjördís segir rjómatertu, súkku-
laðiköku, marengs, kransaköku,
bollakökur, ístertu og brauðrétti
sígildar og vinsælar veitingar á
fermingarveisluborðið.
„Yngstu gestirnir kunna svo að
meta veitingar í smærri kantinum
og í fermingarveislu stráksins míns
buðum við upp á kleinuhringi frá
Krispy Kreme sem slógu í gegn hjá
yngri kynslóðinni, sem og nammi-
barinn, popp og Cheerios-bitar.“
Brauðréttir slá alltaf í gegn
Hjördís gefur hér lesendum
uppskriftir að gómsætum brauð-
réttum.
„Þegar kemur að brauðréttum og
brauðtertum er fólk oftast vana-
fast. Hefðbundin majónessalöt
með skinku, rækju eða túnfiski,
eru sígilt álegg og brauð terturnar
eru skreyttar með til dæmis
skinku, vínberjum og gúrku,“ upp-
lýsir Hjördís um það vinsælasta á
veisluborðið.
„Brauðréttir með mildri fyllingu
slá alltaf í gegn en þá samanstend-
ur fyllingin af til dæmis smurosti,
rjóma, aspassafa, skinku, papriku
og sveppum. Það er þó alltaf að
færast í aukana að gera eitthvað
öðruvísi og skemmtilegt, og með
því að setja snakk ofan á brauðrétt-
inn verður hann öðruvísi. Þá má
líka smyrja brauðtertur á annan
máta og setja á þær álegg í líkingu
við það sem er sett á samlokur.“
Heilræði og uppskriftir Hjör-
dísar má finna á mömmur.is,
Instagram undir mömmur og á
Facebook, þar sem hún á um 22
þúsund fylgjendur.
Bergbys-brauðterta
fyrir 25-30 manns
4 rúllutertubrauð
Hráefni:
Majónes
Beikonsmurostur
Kál
Hunangsskinka
Mexíkóostur
Rautt pestó
Bergbys-sinnep
Doritos
Fyrsta brauðlag: Majónes, kál
og Bergbys-sinnep. Mæjónesi er
smurt undir næsta brauðlag.
Annað brauðlag: Smurostur,
hunangsskinka og rifinn Mexíkó-
ostur. Smurostur smurður undir
næsta brauðlag.
Þriðja brauðlag: Pestó, kál og
Bergbys-sinnep. Majónesi er smurt
undir næsta brauðlag.
Fjórða brauðlag – efsta lag: Sýrðum
rjóma er smurt yfir brauðið. Kál
sett yfir ásamt Doritos-flögum og
rifnum Mexíkó-osti.
Brauðteningar
Vel er hægt að útfæra þessa brauð-
tertuhugmynd sem brauðteninga.
Fylgt er sömu aðferð að fjórða
brauðlaginu en þá er brauðið
pressað í 2 tíma með því að setja
eitthvað þungt yfir kökuna. Brauð-
ið er haft í kælingu á meðan. Síðan
er rauðu pestói smurt í þunnu lagi
yfir. Brauðið skorið í bita og tann-
stönglar settir í miðjuna á hverjum
brauðteningi.
Það má geta þess að standur-
inn sem brauðtertan er á fæst í
versluninni Basti í Kringlunni. Þar
er til mikið úrval af kökudiskum.
Æðislegur brauðréttur
með snakki
Fyrir 25 manns
1½ samlokubrauð
Fylling:
1 pakki skinka
1 stk. paprika
½ dós sveppir
½ l matreiðslurjómi
1 dós papriku-smurostur
½ dós beikon-smurostur
1 stk. pepperóní-ostur, rifinn
1 grænmetisteningur
2-3 msk. Hellmanns chili-
maj ónes
Yfir réttinn:
Mozzarella-ostur – rifinn
Salt og pipar Maruud-snakk
Skinka, paprika og sveppir skorið
í litla bita og steikt upp úr smjöri.
Matreiðslurjóma hellt yfir og
smurostunum og rifnum peppe-
róní-osti blandað saman við.
Grænmetisteningur settur út í
ásamt chili-majónesi. Hitið þar til
osturinn hefur bráðnað. Skerið
brauðið í litla teninga og setjið í
smurt eldfast mót. Hellið fylling-
unni yfir réttinn og sáldrið mozz-
arella-osti yfir. Hitið við 175°C hita
(blástur) þar til osturinn hefur
tekið smá lit, í um 20 mínútur.
Sáldrið þá snakkinu yfir og hitið
áfram í 5-10 mínútur.
Baguette-brauðréttur
Eitt baguette-brauð dugar fyrir 20
manns.
Hægt er að nota sömu fyllingu og í
brauðréttinum til að búa til bagu-
ette-brauðrétt. Fylling sem gefin er
upp með brauðréttinum dugar í 3
til 4 baguette-brauð. Það er nauð-
synlegt að nota baguette-brauð
og brauðið þarf að vera ágætlega
breitt.
Brauðið er skorið eftir miðju,
hreinsað innan úr því með skeið
og bætt saman við brauðréttar-
fyllinguna. Fyllingin er sett inn í
baguette-brauðið með skeið, osti
sáldrað yfir og baguette-brauð-
rétturinn hitaður við 175°C hita
(blástur) í 18 til 20 mínútur. Passið
að baguette-brauðið verði ekki of
mikið bakað. Skerið í sneiðar og
berið fram.
38 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RFERMINGAR
2
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
6
8
-7
B
1
0
2
2
6
8
-7
9
D
4
2
2
6
8
-7
8
9
8
2
2
6
8
-7
7
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K