Mosfellingur - 06.04.2017, Blaðsíða 2
Hér gætu komið
opnunartímar.
letur Footlight
Hér gætu komið
opnunartímar.
letur Footlight
Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is)
Í þá gömlu góðu...
MOSFELLINGUR
www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is
Næsti Mosfellingur kemur út 27. apríl
Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is
Ritstjórn: (blaðamenn og ljósmyndarar)
Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is
Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is
Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is
Prentun: Landsprent. Upplag: 4.000 eintök. Dreifing: Pósturinn.
Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf.
Próförk: Ingibjörg Valsdóttir
Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is
og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar
skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag.
Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti.
Okkar Mosó er verkefni sem Mos-fellsbær er nú með í gangi í fyrsta
sinn. Búið er að safna hugmyndum
frá bæjarbúum og velja úr. Hægt er
að kjósa um 25 hugmyndir
og hafa áhrif á hvernig
25 milljónum króna skal
varið. Þetta finnst mér
bráðsniðugt dæmi sem
er vonandi komið til að
vera. Næst er bara að
setja ennþá meiri
pening í þetta og
enn meira vald
til íbúanna.
Þetta hvetur
okkur til að
horfa í kringum okkur og hafa áhrif
á nærumhverfið. Benda á það sem
má betur fara og skapa umræðu um
okkar ágæta bæjarfélag.
Kosningin er einföld og ættu flestir að vera komnir með rafræn skil-
ríki í símana sína. Það er einmitt í dag
sem við leggjum auðkennislyklunum
fyrir fullt og allt. Framtíðin er núna.
Ég hvet alla til að kjósa og kynna sér
verkefnið á mos.is/okkarmoso.
Sýnum að okkur sé treystandi
fyrir ákvörðunum sem teknar eru í
bæjarfélaginu. Nýtum kosningarétt
okkar nú sem endranær.
25 hugmyndir/milljónir
Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings
www.isfugl.is
Fasteignasala Mosfellsbæjar • Kjarna • Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær • S. 586 8080 • fax 586 8081 • www.fastmos.is • Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali
héðan og þaðan
- Frítt, frjálst og óháð bæjarblað2
ÓLaFUR MagnÚSSon
FRÁ MoSFELLI
Ólafur var fæddur á Mosfelli
á nýársdag árið 1910. Þar ólst
hann upp í stórum systkina-
hópi. Það fór ekki fram hjá
sveitungum að þau systkin
voru mikið söngfólk og tóku
um árabil þátt í sönglífi
Mosfellssveitar. Þegar Ólafur
varð 75 ára gamall hélt hann,
þann 23. nóvember 1985,
tónleika í Hlégarði fyrir fullu
húsi ásamt Jónasi Ingimund-
arsyni píanóleikara. Þeir
félagar höfðu þá nýlokið því
stórvirki að taka upp hljóm-
plötu í Hlégarði. Hljóðritun
annaðist Halldór Víkingsson.
Í umsögnum um söng Ólafs
segir m.a.: Þetta virðist ekki
rödd 75 ára gamals manns,
þetta er rödd manns í blóma
lífsins. Hér er á ferðinni
stórlistamaður!áritun á plötuumslagi
frá ólafi til birgis