Mosfellingur - 29.06.2017, Qupperneq 8
- Fréttir úr Mosfellsbæ8
Atvinnusvæði sem verði fullbyggt á næstu 8-12 árum • Kaupverð er 850 milljónir • Deiliskipulag liggur ekki fyrir
Reitir kaupa 15 hektara úr landi Blikastaða
Reitir fasteignafélag hefur keypt 15 hektara
atvinnusvæði úr landi Blikastaða. Seljendur
eru LT lóðir og Arion banki en kaupverð er
850 milljónir króna.
Stjórnendur Reita sjá fram á skort á
lóðum fyrir atvinnuhúsnæði og líta til
atvinnusvæðisins í landi Blikastaða sem
hluta framtíðarlausnar í þeim efnum.
Aukin eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði
miðsvæðis virðist kalla á að léttur iðnaður
og rýmisfrekur rekstur sem þar hefur verið
færist utar í borgina. Í landi Blikastaða eru
tækifæri til þróunar atvinnuhúsnæðis fyrir
fjölbreytt fyrirtæki.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reitum.
Skapar tækifæri til frekari fjárfestinga
„Kaupin skapa tækifæri til frekari fjár-
festinga fyrir Reiti og opna á tækifæri til
að bjóða upp á fleiri valkosti til að upp-
fylla húsnæðisþarfir núverandi og nýrra
viðskiptavina en áður hefur verið,“ segir
Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita.
„Um er að ræða langtímaverkefni, en
gert er ráð fyrir að svæðið allt verði full-
byggt á 8-12 árum. Ljóst er að heildarfjár-
festing Reita á svæðinu verður veruleg á
þessu tímabili en hugsanlega verður hluti
landsins seldur til byggingaraðila eða beint
til fyrirtækja.“
Liggur við mörk Reykjavíkurborgar
Atvinnusvæðið í landi Blikastaða liggur
við sveitarfélagamörk Reykjavíkurborgar
og Mosfellsbæjar. Gert er ráð fyrir að hin
nýja Borgarlína liggi við Vesturlandsveg-
inn. Svæðið afmarkast af Vesturlandsvegi,
bæjarmörkum Mosfellsbæjar og Reykjavík-
ur, ánni Korpu og framtíðarlegu Korpúlfs-
staðavegar. Svæðið hefur verið skilgreint
sem verslunar- og þjónustusvæði/athafna-
svæði í aðalskipulagi Mosfellsbæjar.
Afhendingardagur verður sex mánuðum
eftir gerð kaupsamnings sem skal ganga frá
eigi síðar en þann 1. júlí.
svæðið liggur við sveitarfélagamörk
reykjavíkurborgar og mosfellsbæjar
Að venju veitir Rótarýklúbbur Mosfellssveitar fjórum nemendum í 4. bekk Lágafellsskóla
viðurkenningu fyrir hæfni í samskiptum. Viðurkenningarnar eru afhentar með viðhöfn
á skólaslitum.
Á myndinni: Alfreð S. Erlingsson, forseti Rótarýklúbbs Mosfellssveitar og Sigríður
Johnsen, fyrrverandi skólastjóri Lágafellsskóla ásamt verðlaunahöfunum Bessa Ólafs-
syni, Gabríel Darra Eiríkssyni, Emmu Sigurðardóttur og Maríu Rut Gunnlaugsdóttur.
Samskiptaverðlaun Rótarý-
klúbbs Mosfellssveitar
Mosfellsbær og Ístak hafa undirritað upp-
byggingarsamning vegna fyrsta áfanga
Helgafellsskóla. Bygging skólans verður
stærsta einstaka framkvæmd sveitarfélags-
ins á næstu misserum.
Heildarstærð hússins verður um 7.300
m² og áætlaður byggingarkostnaður um
3.500 milljónir. Skólinn verður byggður í
fjórum áföngum og áætlanir gera ráð fyrir
að fyrsti áfangi sem er um 4.000 m² verði
tekinn í notkun veturinn 2018-2019. Upp-
byggingarhraði mun að einhverju leyti taka
mið af uppbyggingu hverfisins.
Líkan og tölvumyndir af hönnun Helga-
fellsskóla er til sýnis í Kjarna við inngang
Bókasafnsins.
Á myndinni má sjá starfshóp frá Mosfells-
bæ og Ístak við undirritun samningsins.
Undirritun samnings vegna
uppbyggingar á Helgafellsskóla
Lionsklúbbur Mosfellsbæjar
og Lionsklúbburinn Úa gáfu
hjólastólarólu til Reykjadals í
tilefni 100 ára afmælis Lions-
hreyfingarinnar.
Formenn klúbbanna, Alfa R.
Jóhannsdóttir og Bragi Ragn-
arsson, afhentu forstöðumanni
Reykjadals, Andrési Baldurssyni,
róluna. Er það von klúbbfélaga
að rólan komi að góðum notum
á þessum skemmtilega sumar-
og helgardvalarstað fatlaðra
barna og ungmenna.
Hlégarður í túninu heima
Lions-
klúbbar
gefa hjóla-
stólarólu
tekið við veglegri gjöf frá
lionsklúbbunum í mosfellsbæ
Reykjadalur fær gjöf